Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Síða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Síða 11
Fimmtudagur 8. júní 2000 Fréttir 11 Dagar lita og tóna: Sýning á verkum Ragnars Engilbertssonar Eins og undanfarin ár mun árieg menningarhátíð kennd við Daga lita og tóna verða haldin í Vestmannaeyjum um hvítasunnuhelgina. Hátíðin verður sett fostudaginn 9. júní klukkan 20.30 í Akóges með opnun myndlistarsýningar Ragnars Engilbertssonar. Sýninginer yfirlitssýning á verkum Ragnars, sem spannar árin frá 1943 þegar hann var við nám í Konunglegu Listaakademíunni í Kaupmanna- höfn til dagsins í dag, eða um sex tugi ára. A setningunni munu einnig verða tónlistaratriði að vanda. Ókeypis er á setninguna og allir velkomnir. Dagar lita og tóna hafa verið helgaðir jasstónlistinni og er von á margri jasskempunni til Eyja að þessu sinni. Meðal öflugra sveiflumeistara sem koma til Eyja á hátíðina eru Quartet Kapplagjóta undir stjórn Ólafs Stoltsenwald og Quintet Kristjönu Stefánsdóttur, Dixiesveit Lúðrasveitar Vestmannaeyja, Geir Ólafsson Ice blue og Furstarnir, Dúó Gunnars Gunnarssonar píanóleikara og Tómasar R. Einarssonar bassavirtúóss, og Vinir Davíðs Þórs en vinir hans eru Ómar Guðjónsson gítar, Kjartan Hákonarson trompet, Valdimar K. Sigurjónsson bassi og Helgi Svavar Helgason trommur. Tónleikarnir verða bæði laugardags- og sunnudagskvöld og hefjast klukkan 21.00 bæði kvöldin. Sýning Ragnars Engilbertssonar verður opin laugardag og sunnudag frá klukkan 14.00 til 18.00 og 14.00 til 22.00 annan í hvítasunnu. Rétt er að hvetja Vestmannaeyinga og alla þá er verða í Eyjum um hvítasunnuna að fjölmenna á hátíðina, enda um mikla menningarveislu að ræða sem mikill metnaður hefur verið lagður TOMAS R. Einarsson hefur átt sinn þátt í að gera Daga lita og tóna í. eins eftirminnilega og raun ber vitni. Hann mætir einnig í ár. rÍ4» (1 STAFKIRKJAN, sem Norðmenn eru að byggja á Skansinum er að taka á sig mynd. Hún verður vígð í Iok júh' og er ekki annað að sjá en að þá verði framkvæmdum lokið. FRETTIR fiuglýsinga- síminn er 481-3310 Krabbameinsleit Konur sem fengið hafa boðunarbréf frá Krabbameinsfélaginu eru hvattar til að panta tíma í skoðun í síma 481-1955 Heilbrigðisstofnunin Síðastliðinn laugardag var Bylgjulestin með heilmikið húllumhæ á Stakkó, en það er orðinn árviss atburður að Bylgjulestin leggi teina undir hjól og þeysist um landið með skemmtidagskrá af ýmsum toga, en Vestmannaeyjar voru fyrsti viðkomustaður lestarinnar á þessu sumri. Meðal skemmtikrafta voru Laddi og Steinn Ármann sem brugðu sér í ýmissa karakteralíki, jafnt söngelskra sem og tungulipra húmorista. Auk þess var börnunum boðið í ýmis leiktæki sem voru vel nýtt. Bylgjulestin er á ferð með nokkrum fyrirtækjum sem kynntu varning sinn og þjónustu, hvort heldur til saðningar eða þeirrar þjónustu sem til framfara mega teljast á hinum ýmsu sviðum. Bylgjan var síðan með beina útvarpssendingu frá Stakkó þjóðinni til nokkurrar upplýsingar um þá ágætu stemmningu sem ríkti á Stakkó þennan dag. FLUGFELAGISLANDS Sumaráætlun tekur gildi 3. apríl Fjórar ferðir á dag Bókanir og upplýsingar um flug f s. 481 3300 www.flugfelag.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.