Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 8. júní 2000 Fréttir 15 Eins og kunnugt er hefur verið unnið að endurbyggingu Land- lystar á vegum Istaks í Reykjavík. Tómas Tómasson byggingatækni- fræðingur hjá ístak segir að búið sé að stilla upp húsgrindinni og klára þær endurbætur sem nauðsynlega varð að gera á húsinu. A þeim að Ijúka í júlí. „Húsið var töluvert ver farið en við bjuggumst við þegar farið var að raða því saman, svo að fella þurfti inn nýja viði, sem keyptir voru frá Noregi í stað þeirra sem ónothæfir voru. Það er gert ráð fyrir að byrjað verði að reisa húsið á sökklum sínum á Skansinum í næstu viku og stefnt að því að það verði tilbúið í tæka tíð.“ Guðmundur Jónsson yfirsmiður endurbyggingar Landlystar sagði að uppsetning hússins hefði gengið mjög vel. „Grindin er löngu tilbúin og hún mun koma til Eyja öðru hvoru megin við helgina. Húsgrindin er endumýtt að 70 hundraðshlutum, en annað er nýsmíði, auk þess sem öll klæðning utan á húsið er alveg ný, því ekki þótti fært að nota gömlu klæðninguna vegna þess hve illa hún var farin. Það var pöntuð sérvalin gömul fura frá fyrirtæki í Noregi sem sérhæfir sig í gæðatimbri til endurbygginga gamalla húsa.“ Guðmundur sagði að ekki væri um að ræða flóknar tæknilegar lausnir við samsetningu hússins. „Þetta em allt gamlar hefðbundnar lausnir, þar sem búnir em til trélásar til þess að tengja saman grindina. Húsið mun upphaf- lega hafa verið bikað, en nú mun verða borin á það viðarolía sem lituð verður með svörtu, karmar verða hvítir en hurðir innandyra í þeim litum sem upphaflega vom á þeim.“ Guðmundur sagði að húsið væri ekki allt reist í einu lagi á sama tíma, þannig að um væri að ræða þijú byggingarstig, sem húsið hefði gengið í gegnum. „Miðhúsið er elst, þá var sjúkrastofu bætt við, en yngsti hluti hússins var svo íbúð læknisins. Einnig voru bíslög við húsið, en þau verða aðeins færð til en þar kemur til með að verða salernisaðstaða. Samt sem áður verður húsið í megindráttum eins og það var upphaflega, en þó mun verða sett tvöfalt gler í glugga. Byggðasafnið mun svo sjá um að setja upp þá muni sem hæfa munu því tímabili og starfsemi sem í húsinu var á sínum tíma.“ Guðmundur sagði að gaman hafi verið að vinna við endurbyggingu hússins. „Vinna við endurbyggingu gamalla húsa er alltaf nokkuð ná- kvæmnisverk, svo það má segja að verkið hafí verið gaman með blæ- brigðum. Húsið á að vígjast þann 30. júní og ég sé ekki annað en það muni nást. Eftir að hafist verður handa við að reisa húsið í Eyjum munu tveir Eyjamenn verða við verkið, en allan tímann hefur Siggi á Háeyri unnið með okkur að endursmíðinni í Reykjavík." Löng meðganga Landlyst var reist 1874 af Matthíasi Markússyni snikkara og Sólveigu Pálsdóttur, Jónssonar. Áriðl849er byggt við húsið, en Þorsteinn Jónsson læknir stækkar það svo aftur 1870 og það er sú mynd sem húsið er endurreist í á Skansinum. Ólafur Ólafsson bæjartæknifræðingur sagði ánægjulegt til þess að vita að endurreisn Landlystar á Skanssvæðinu hefði náð fram að ganga og að nú sæist fýrir endann á þeirri löngu með- göngu sem húsið hefði átt í kerfinu. „Það er rétt að þetta hefur tekið ÞEIR vinna við endurbygginguna, f.v. Guðmundur Jónsson yfírsmiður, Axel Michiat, Siggi á Háeyri og Valdimar Gíslason. nokkur ár. Það var vilji fyrir því að varðveita húsið og þess vegna var tekin ákvörðun um að taka það niður og geyma þangað til fjárveiting fengist til endursmíði þess. Með Ijárveitingu úr Húsafriðunarsjóði og frá Vest- mannaeyjabæ var svo ákveðið að endurreisa það á Skansinum um leið og uppbygging þess svæðis ætti sér stað.“ Ólafur sagði að með uppbyggingu menningarminjasvæðis á Skansinum sem nú væri að ljúka yrði Landlyst einn af máttarstólpum þess. „Það voru skiptar skoðanir um hvar húsið skyldi nsa. Húsfriðunarsjóður mælti til að mynda með því að húsið myndi rísa inni í virkinu á Skansinum, en heimamenn töldu það óásættanlegt. Nú held ég að flestir séu sammála um staðsetningu hússins og sjái að það muni sóma sér vel á svæðinu. Húsinu er svo einnig gefin aukin vigt með hleðslunni undir því og í kringum það. Einnig má benda á að á lóðinni innan hleðslunnar sunnan megin er pláss fyrir tvö hús af sambærilegri stærð, en það er að vísu seinni tíma mál,“ sagði Ólafur að lokum. LANDLYST rifin. Húsgrindin er endurnýtt að 70 hundraðshlutum, en annað er nýsmíði, auk þess sem öll klæðning utan á húsið er alveg ný, því ekki þótti fært að nota gömlu klæðninguna vegna þess hve illa hún var farin. Það var pöntuð sérvalin gömul fura frá fyrirtæki í Noregi sem sérhæfir sig í gæðatimbri til endurbygginga gamalla húsa.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.