Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Page 24
AÐ vanda voru aldnir sjósóknarar og kempur heiðraðar á sjómannadaginn. Sveinn
Valdimarsson og Bergþór Guðjónsson voru heiðraðir af Skipstjóra og stýri-
mannafélaginu Verðandi, Guðmundur Ólafsson af Vélstjórafélagi Vestmannaeyja og
Guðni Pálsson var heiðraður af Sjómannafélaginu Jötni.
Hugmyndir um útboð Herjólfs:
Útboðslýsing í skoðun hjá bæjarstjórn
Samkvæmt heimildum Frétta hefur
bæjarstjórn nú undir höndum drög
að útboðslýsingu Vegagerðarinnar
vegna fyrirhugaðs útboðs á sam-
göngumannvirkinu Herjólfi.
Hefur það þótt sæta nokkurri furðu
að bæjarstjóm skuli fá að kynna sér
útboðið og gefa umsögn um það áður
en það fer í endanlegt form og auglýst
áalmennumútboðsmarkaði. Sérstak-
lega vekur þetta furðu þar sem
Vestmannaeyjabær er hluthafi í
Herjólfi hf. og ekki síður að Rrkið,
sem á meirihluta í Herjólfi hf., skuli
fela Vegagerðinni sem er ríkisstofnun
gerð útboðsins.
Ekki náðist í Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóra vegna þessa máls áður en
blaðið fór í prentun, en heimildir eru
fyrir því að einhverjar athugasemdir
hafi verið gerðar við útboðslýsinguna.
Meðal annars munu athugasemdir
vera gerðar við tíðni ferða og ýmsar
aukaferðir, t.d. vegna útskriftarferða
10. bekkjar og að aukaferðir skyldu
ekki hafa áhrif á fasta áætlun sam-
göngumannvirkisins. Guðjón Hjör-
leifsson mun eiga fund með fulltrúum
Vegagerðarinnar í dag fimmtudag þar
sem athugasemdir við útboðið verða
lagðar ffam.
I bæjarráði í gær kom fram vilji um
óbreytt rekstrarfyrirkomulag.
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
0)4811909 - 896 6810 - fax 4811927
Vilhjálmur Bergsteinsson
» 481-2943
v 897-1178
SMMCPAÚLL
Vilja hvorki ganga
í AÞSS né SASS
Á fundi í bæjarráði 15. maí kom
fram tillaga frá Vestmannaeyja-
listanum um að kanna mögu-
leikana á því að Vestmannaeyjar
gengju í Atvinnuþróunarsjóð
Suðurlands og SASS. Var þeirri
tillögu vísað til bæjarstjórnar, sem
síðan felldi tillöguna. I framhaldi af
umræðu á síðasta bæjarstjórnar-
fundi frá 31. maí fylgdu síðan
bókanir frá minni- og meirihluta.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
óskuðu að bókuð yrði undrun þeirra á
tillögu fulltrúa Vestmannaeyjalistans
að þeir hefðu ekki hugmynd um þann
kostnað sem fylgdi því að ganga í
Atvinnuþróunarsjóð Suðurlands og
SASS en á fundinum viðurkenndu
bæjarfulltrúar Vestmanneyjalistans að
þeir vissu ekki hvað tillögur þeirra
myndu kosta bæjarsjóð."
Guðrún Erlingsdóttir bað um
fundarhlé vegna þessarar bókunar og
í framhaldi af því óskaði Vestmanna-
eyjalistinn eftir að bókað yrði að
kostnaður vegna atvinnumála væri
alltaf afstæður og þyrfti að reiknast út
frá heild, þ.e.a.s. hverju aðildin skilaði
til baka í bæjarfélagið með meiri
tekjum, samvinnu og betra samfélagi.
Fulltrúar Vestmannaeyjalistans
hörmuðu því afstöðu sjálfstæðis-
manna að vilja einungis líta á þátt-
tökugjöldin ein og sér en ekki í
samhengi við hvað aðildin gæti skilað
sér til Eyja.
Haft var samband við Guðrúnu
Erlingsdóttur og hún spurð hvort
Vestmannaeyjalistinn hefði kannað
hvað það kostaði bæjarfélagið að
ganga í áðurgreindan félagsskap.
Guðrún sagði að það hefði ekki verið
gert, enda vildu fulltrúar listans láta
bijóta á þessu strax, auk þess sem ekki
var um vilja hjá meirihlutanum að ljá
máls á þessu. Guðrún sagði að hægt
væri að koma að þessum félagsskap
með ýmsum hætti svo að ekki væri
hægt að nefna neina fasta
kostnaðartölu á meðan ekki væri vilji
til þess að láta kanna málið.
Guðjón Hjörleifsson sagði að sér
fyndist út í hött af minnihlutanum að
koma með tillögu um að ganga í
einhvem félagsskap og koma ekki
með fullmótaðar og ígmndaðar
tillögur um ávinninginn fyrir bæinn
og kostaðinn sem því fylgdi. Guðjón
sagði að miðað við reynsluna teldi
hann hagsmunum Vestmannaeyja
betur borgið með því að heimamenn
ynnu að þessum málum sjálfir._
Fjör um
hvítasunnuna
Um hvítasunnuhelgina verður
haldið opið golfmót Flugfélags
Islands á iðagrænum velli Golf-
klúbbs Vestmannaeyja.
Mótið hefst laugardaginn 10. júm' kl.
09.00 og lýkur á sunnudeginum 11.
júní. Leiknar verða 36 holur með og
án forgjafar. Lokaskráning í mótið er
kl 18.00 ídag.
Hvítasunnumót SJÓVE verður um
helgina. Hafa menn á þessum mótum
krækt í margan góðan fiskinn og er
engin ástæða til að ætla annað nú,
þegar nýjasta svarta skýrsla Hafró
hefur litið dagsins ljós. Mótið verður
sett á föstudaginn kl. 20.00 og blíðu
spáð á miðunum.
Dagar lita og tóna verða líka í
Akóges um helgina.
Svartir sorppokar, Wstk
198,- áður25G,-|^B
VikutUboð Vöruvals
*vikuna 8. - 14. júní