Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Qupperneq 1
innimálning
27. árgangur » Vestmannaeyjum 23. nóvember 2000 * 47. tölublað » Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 * Fax:481 1293
Verkfdll á farskipum:
Herjólfur
stöðvast í kvöld
-Ekki hefur verið sótt um undanþágu vegna
siglinga Herjólfe og forseti FFSI á ekki von á
að neinar undanþágur verði veittar
Að öllu óbreyttu hefst boðað
verkfall yfirmanna á farskipum á
miðnætti í kvöld. Ef ekki semst
fyrir þann tíma fara skipstjórar,
stýrimenn, brytar og matsveinar í
verkfall.
Þetta mun m.a. hafa þau áhrif að
siglingar Herjólfs stöðvast og ferð
skipsins í dag því sú síðasta íyrir
verkfall.
Grétar Mar Jónsson, forseti
Farmanna- og Fiskimannasambands-
ins, segir að samningaviðræður hafi
staðið yfir undanfama daga og fundað
fram eftir kvöldi. „Ég veit ekki hvað
ég á að segja um gang þeirra við-
ræðna. Auðvitað vonar maður að
þetta leysist en ég er ekkert of
bjartsýnn,“ sagði Grétar Mar.
Að sögn Grétars Mars hafa engar
undanþágubeiðnir borist um siglingar
í verkfalli, hvorki frá stjóm Heijólfs
né öðmm og hann sagðist ekki eiga
von á að neinar undanþágur yrðu
gefnar ef til verkfalls kemur.
„Menn em að tala saman og meðan
það á sér stað þá er alltaf von um að
samningar takist og ekkert verði úr
verkfalli. En komi til verkfalls þá
munum við sækja um undanþágu íyrir
Herjólf,“ sagði Magnús Jónasson,
ífamkvæmdastjóri Heijólfs hf.
I
, , ' Fréttir/Guðmundur Ásmundsson
FJOLMENNI var a þjoðlagamessu i Landakirkju a sunnudagskvöldið. Þetta var
notaleg kvöldstund þar sem fjölskyldan gat komið saman og hlýtt á létta tónlist með
Guðsorðinu. Litlu lærisveinarnir leiddu sönginn en fleira tónlistarfólk léttil sín heyra.
Háey VE:
Dró trillu
til hafnar
Togskipið Háey VE (áður Emma
VE) kom vélbátnum Guðrúnu frá
Hafnarfirði til aðstoðar á mánu-
dag og dró Guðrúnu til Hafnar-
fjarðar eftir að drepist hafði á vél
bátsins.
Óskar Þór Kristjánsson, skipstjóri á
Háey, segir að þeir hafi verið norð-
vestur af Garðskaga og verið á leið
til Hafnarfjarðar þegar þeir heyrðu í
talstöðinni að sést hefði neyðarblys á
lofti. „Svona meðan við vorum að
kanna þetta og miða út staðinn sem
blysið hafði sést á, þá sáum við
neyðarblys, svona fjórar mílur fyrir
framan okkur, og héldum á það. Þá
var þetta Guðrún HF, 12 tonna trilla.
Þeir höfðu lent í einhverjum vélar-
pikkles, fengið sjó inn á vélina og
voru rafmagnslausir. Þyrla Land-
helgisgæslunnar var þama skammt
frá við æfingar, svo og varðskipið
Ægir en það varð að ráði að við
tækjum Guðrúnu í tog til
Hafnarfjarðar," segir Óskar Þór.
Þetta átti sér stað um kvöld-
matarleytið á mánudag en Óskar Þór
segir að skipveijamir þrír á Guðrúnu
hafi verið einhvem tíma að brasa við
vélina áður en þeir skutu upp blys-
inu. „Við settum landfestingartóg
um borð til þeirra en svo þegar við
vomm búnir að toga þá nokkra stund
þá slitnaði upp pollinn hjá þeim sem
það var fest í. Þá komu þeir spotta
yfir til okkar sem slitnaði fljótlega og
það var ekki fyrr en þeir voru búnir
að taka tógið frá okkur aftur um borð
og binda það tryggilega að þetta fór
að ganga og eftir það gekk áfalla-
laust alla leið til Hafnaríjarðar."
Þangað komu þeir um tvöleytið um
nóttina en Óskar Þór segir að skip-
verjamir um borð í Guðrúnu hafi
verið orðnir ansi kaldir og þrekaðir
enda enginn hiti um borð hjá þeim.
„Þó hresstust þeir talsvert eftir að
okkur tókst að koma til þeirra
kaffibrúsa og ég held að þeir hafi
verið fljótir að ná sér þegar í land var
kornið," sagði Óskar Þór þegar við
ræddum við hann í gær.
Loðnu landað í gær í Vestmannaeyjum
Loðnufrysting hafin
hjá Vinnslustöðinni
Fyrstu loðnunni um langt skeið var
landað í Vestmannaeyjum í gær.
Það var Sigurður VE sem hingað
kom með 1400 til 1500 tonn af
loðnu sem fengust á loðnumiðunum
við Vestfirði. Sú loðna fer öll til
bræðslu hjá FES.
Loðnuveiðin hefur verið dræm fram
til þessa en sjómenn segja að eitthvað
virðist vera að rofa til núna og betur
gangi að ná henni. Fleiri skip em
væntanleg hingað með loðnu, t.d. átti
Isleifur VE að koma til Eyja í nótt
með 500 tonn og er ætlunin að reyna
að frysta eitthvað af afla hans hjá
Vinnslustöðinni. Kap er einnig vænt-
anleg í dag með 700 tonn og verður
sömuleiðis fryst úr þeim afla. Þór
Vilhjálmsson, hjá Vinnslustöðinni
segir að búið sé að setja á vaktir fyrir
loðnufrystinguna en allt sé enn í
óvissu með hve mikið unnt verður að
frysta af þessum afla. Gæði loðn-
unnar koma til með að ákvarða það.
En það er fínt að fá þetta í framhaldi af
síldarfrystingunni," sagði Þór.
LÖNDUN úrSighvati.
Sfldarfrystingu er lokið hjá Vinnslu-
stöðinni, a.m.k. í bili. Sighvatur
Bjamason VE, sem verið hefur á
sfldveiðum fyrir Vinnslustöðina, hefur
hætt þeim veiðum að sinni, enda lítið
að finna af sfld, og var í gær á leiðinni
á loðnumiðin. Ef vel gengur með að
frysta úr afla þessara loðnuskipa og
góð veiði helst áfram, má fastlega
reikna með að áframhald muni verða
á frystingunni sem er góð búbót á
þessum árstíma en oft hefur ástandið
verið með daufara móti í fisk-
vinnslunni um þetta leyti árs.
Guðmundur VE fékk einnig ágætan
loðnuafla í gær en ákveðið var að
hann landaði í Krossanesi. Jón Ólafur
Svansson, framleiðslustjóri hjá Is-
félaginu, segir að þar sé verið að
skoða möguleikana á því að frysta
loðnu á Rússlandsmarkað. „Reyndar
er flokkarinn okkar bilaður en við
getum fengið flokkaða loðnu hjá
Vinnslustöðinni og höfum verið að
athuga með möguleikana á því að
frysta eitthvað af aflanum hjá Isleifi.
Við erum svona að setja okkur í
stellingar og ef þessi loðna er í lagi þá
er ekkert því til fyrirstöðu að við
frystum líka,“ sagði Jón Ólafur.
TM-ÖRYGGI
FYRIR
FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll trygg ngamálin
áeinfaldanog
Bíföverkstæöiö BVagginni s.f.
jHtéHÉ&aiff o',g] s'pTiaiöifiiiim
Flötum 20 - Sími 481 1535
VM®ímik ©g) swwfMfS
VetraragetiBWl
írá Ftyjui frá Nflábnitii
IMáiiudl. - laugardl. fell. 08.1 S lcl. 12.00
Sunnudag kl. 114.00 kll. 118.00
AiUfeaferð föstud. kl. 15.30 kl. 110.00
HerjóHiir
Sími 481 2800 - Fax 481 2991