Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Qupperneq 13
Fimmtudagur 23. nóvember 2000 Fréttir 12 Haldið upp á 120 ára afmæli barnafræðslu Á fímmtudag í síðustu viku var haldið upp á að 120 ár eru síðan samfelld barnafræðsla hófst í Vestmannaeyjum. Hjálmfríður Sveinsdóttir, skólastjóri Barnaskólans, segir að ekki sé með vissu vitað hvaða dag það nám hófst, fyrir 120 árum, en talið að það hafi verið í nóvember. Á fímmtudaginn var líka dagur íslenskrar tungu og þótti tilvalið að slá þessu tvennu saman. Hjálmfríður segir að nemendum í miðstigi skólans, 5.-7. bekk, hafí verið blandað saman í sex hópa. Þeir hópar héldu síðan í bæinn á fimmtudag og fluttu undirbúna dagskrá í ýmsum stofnunum, svo sem í Ráðhúsinu og leikskólunum, þar sem krakkarnir lásu upp og sögðu frá skólahaldi. Hönnunarhópar í 10. bekk hafa að undanförnu unnið að útfærslu merkis skólans með margs konar efniviði og var efnt til sýningar í skólanum á þeirri vinnu krakkanna. Sú sýning er enn uppi og Iífgar verulega upp á skólann. Að sjálfsögðu var svo slegið upp veislu fyrir nemendur og starfsfólk, með dýrindis skúffukökum sem runnu ljúflega niður, enda ekki daglegt brauð, hvorki hjá mannfólki né stofnunum, að halda upp á 120 ára afmæli. MAGNÚS Loftsson er höfundur að merki skólans og hönnunarhóparnir útfærðu merkið með margs konar efniviði. Merkið efst til vinstri heitir „Bland í poka“ og er unnið úr sælgæti. Þá kemur „Harður nagli“ og er unnið úr plasti og öðrum byggingarefnum. Lengst til hægri er svo „Eldheitt gler“ sem er unnið úr gleri. I neðri röð er til vinstri „Flækja“ sem er unnið úr tauefnum, „Skansinn“ úr fjörugróðri og grjóti og loks „Ilmur“ sem er unnið úr lauthlöðum og kvistum. Þessar myndir prýða veggi skólans. Arnar Hjaltalín spyr hvort líkamsrækt sé: Skyndilausn eða lífsstíll Með breyttum lífsstíl, reglulegri lrkamsrækt og réttu fæði ferðu að sjá árangur. Rétt fæði hjálpar mikið til að ná góðum árangri. Þá er ég ekki að tala um megmnarfæði, heldur að borða nógu mikið af réttum fæðutegundum og gæta þess að borða nógu oft. Sannaðu til þú getur náð árangri, þú uppskerð alltaf eins og þú sáir. Höfum við ekki allir hugsað sem svo „Nú dríf ég mig í líkamsrækt tek vel á og verð orðinn flottur fyrir jól“. En hvað svo? Ör- fáir okkar drífa sig af stað og aðeins brot af þeim sem byijuðu em ennþá að þegar kemuraðjólum. Hvað veldur þessu, er þetta svona hundleiðinlegt og erfitt, sjáum við engan árangur strax, eða vinnum við svo mikið að enginn tími er aflögu fyrir líkamsræktina? Kannski er sannleikur í öllu þessu, allavega frá mínum bæjardyrum séð er ég var að byija að æfa í Hressó. Ekki þótti mér gaman að mæta dauðþreyttur og fara að púla eftir langan og erfiðan vinnudag. Ekki létu harðspemimar og verkimir á sér standa, en alltaf var ístran jafn slöpp og björgunarhringurinn um mittið hefði getað haldið mörgum mönnum á floti. Samt var ég búinn að vera að í heilan mánuð tvisvar til þrisvar í viku klukkutíma í senn. Eg varð hálf fúll og reyndi að sannfæra sjálfan mig um að ég gæti alveg eins styrkt mig og grennt í sófanum heima. En auðvitað gengur það ekki. Ef við ætlum að ná árangri til lengri tíma litið þurfum við að setja okkur markmið. Skapa okkur aðstæður til að geta unnið að þeim. Gefa okkur tíma til að ná þeim. Bíta bara á jaxlinn þegar þreytan og verkimir segja til sín. Ef þú byijar einn þá hefur þú alltaf leiðbeinendur til að segja þér til, hvetja þig áfram og eftir smátíma ertu yfirleitt kominn í hóp sem heldur utan um þig og hvetur þig áfram. Eins og ég kom inn á í upphafi þarf maður sem ætlar að ná árangri til lengri tíma litið að gera líkamsþjálfun og líkamsrækt að lífsstíl. Gefa því forgang fram yfir öll hin forgangs- verkefnin. Koma sjálfum sér á dagskrá, helst á hverjum degi, 5 daga vikunnar. Átakshópar sem Hressó fer reglulega af stað með em góð byrjun, en fylgja verður þeim eftir með reglulegri líkamsrækt. Annars ertu með þeim að sóa bæði tíma og peningum. Með breyttum lífsstíl, reglulegri líkamsrækt og réttu fæði ferðu að sjá árangur. Rétt fæði hjálpar mikið til að ná góðum árangri. Þá er ég ekki að tala um megrunarfæði, heldur að borða nógu mikið af réttum fæðu- tegundum og gæta þess að borða nógu oft. Sannaðu til þú getur náð árangri, þú uppskerð alltaf eins og þú sáir. Höfundur erformaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. ívar Róbertsson skrifar: Aðstaða fyrir ungt fólk er til staðar í Eyjum Eg og vinir mínir höfum eytt mörgum klukkutímunum í Eyverja- salnum við spil og spjall og höfum haft gaman að. Ég vil hvetja ungt fólk til að athuga málið því þama er toppaðstaða sem allt of fáir nýta sér. Öllum er velkomið að koma í sal Eyverja. Ekki alls fyrir löngu var skrifuð grein í Fréttir þar sem umræðuefnið var að- stöðuleysi ungs fólks í Eyjum, er þá verið að að tala um ungt fólk á aldrinum 16-20 ára. Langaði mig því að koma með smá innlegg í þá umræðu. Eg og vinir mínir höfum komist að raun um að það er til aðstaða hér í Eyjum fyrir ungt fólk, meira að segja alveg toppaðstaða. Þessi staður er öllum opinn. Er hann á neðri hæð Ásgarðs við Heimagötu, hann er kallaður Eyverjasalurinn og er öll aðstaða þar til fyrirmyndar. I salnum er að finna sjónvarp og video, tölvu, billjardborð, græjur og aðstöðu til að spila og spjalla. Það eru ekki seldar veitingar á staðnum en öllum er fijálst að koma með nesti með sér og hella upp á kaffi. Eg og vinir mínir höfum eytt mörgum klukkutímunum í Eyverja- salnum við spil og spjall og höfum haft gaman af. Eg vil hvetja ungt fólk til að athuga málið því þama er topp- aðstaða sem allt of fáir nýta sér. Öllum er velkomið að koma í sal Eyverja enda kostar ekkert inn, við þurfum bara að mæta og nota þá aðstöðu sem er fyrir hendi. Ivar Róbertsson Spurt er of snemma setja upp ingarnar? Rut B. Zolilen, gistihússtjóri: „Já, mér finnst ekki eiga að setja þær upp fyrr en á aðventu." Hrefna Gunnarsdóttir, nem- andi: _ „Nei, alls ekki. Þetta er ágælt eins og það er, svona seinnihlutann í nóv- ember en fyrr má það nú varla vera." Katrín Harðardóttir, versl- unarstjóri: „Nei, að minnsta kosli ekki skreyt- ingar í verslunum. Við verðum að fylgja Reykjavík eftir í því svo að við missum ekki f'ólk suður í jólainn- kaupin." I’ríða I). Jóhannsdóttir, versl- unarmaður: ,.Nei, það fínnst mér ekki. Þærerunauð- synlegar í skantm- deginu." Bertlia Johansen, kennari: „Nei, þær líl'ga upp á skammdegið." Flliði Vignisson, kennari: n„Eg er í of við- kvæmri aðslöðu til að tjá mig um það."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.