Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Qupperneq 20
y r Ahöfninni á Alsey VE sagt upp störfum Skipinu lagt fram til vors - Ástæðan er m.a. staða ísfélagsins í bolfiskkvóta Öllum skipverjum á togskipinu Álsey VE var sagt upp störfum í síðustu viku. Álsey er í eigu ísfélags Vest- mannaeyja og í áhöfninni eru átta til níu manns. Hörður Óskarsson, fjármálastjóri Isfélagsins, segir að Álsey verði lagt fram til vors. Kvótastaða Isfélagsins í bolfiski sé meðal annars ástæða þessa. „Síðasta skerðing kom illa við okkur. Kvótinn okkar í dag er ekki meiri en einn meðalfrystitogari hefur yfir að ráða og við höfum verið að reyna að skipta honum milli þriggja skipa, auk þess sem við vorum líka að senda Heimaey á loðnu á loðnuvertíðinni. En nú sáum við fram á að þetta gengi ekki upp og urðum því miður að grípa til þessara ráða,“ sagði Hörður. Hörður sagði ennfremur að áhöfninni yrði gefmn kostur á ráðningu á önnur skip Isfélagsins eftir því sem kostur væri. Úthlutun þessa árs til Isfélagsins er 1578 tonn af þorski, 707 tonn af ýsu, 587 tonn af ufsa og 357 tonn af karfa. „Þetta er óttalega dapurt," sagði Hörður Jónsson, skipstjóri á Álsey. „En þetta er víst þróunin og maður getur lítið sagt við þessu, það vantar varanlegar aflaheimildir. Auðvitað er mannskapurinn sár yfir þessu, sumir hverjir búnir að vera hjá útgerðinni í 15 til 20 ár. Það er búið að lofa plássum á öðrum skipum félagsins og ég býst við að flestir taki því. Mér hefur verið boðin vinna í þijá mánuði og hvað tekur við eftir það verður tíminn bara að leiða í ljós. Ég er nú kominn á þann aldur að ég reikna ekki með að það verði slegist um mann,“ sagði Hörður Jónsson. upp á versl Bjóða unarferðir til Nú hafa nokkrir áhugasamir einstaklingar í Vestmannaeyjum ákveðið að snúa verslunardæminu við og bjóða þeim sem búa á fastalandinu að bregða sér í verslunarferð til Vestmannaeyja á aðventunni og gera sér glaðan dag í lciðinni og það á kostakjörum. Það eru þau Helga Dís Gísla- dóttir, kaupkona í Róma, Steinunn Guðmundsdóttir, veitingakona á Lundanum, Jóhann Heiðmundsson hótelstjóri á Þórshamri og Páll Pálsson hjá PH- ferðum sem standa fyrir þessu. Þær Helga Dís og Steinunn segja að hugmyndin liall kviknað í haust þegar þær uppgötvuðu að í Eyja Vestmannaeyjum er að finna alls 40 sérverslanir og eru þá matvöruverslanir, sjoppur og hárgreiðslustofur ekki meðtaldar. „Okkur finnst upplagt að kynna þetta úrval verslana fyrir öðrum Isiendingum, fyrir nú utan allt annað sem hægt er að gera í leiðinni,“ segja þær. Bls. 15. Rútuferðir - Bus tours Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM (3)481 1909 - 896 6810-fax 4811927 Vilhjálmur Bergsteinsson n 481.2943 sewBÍfgi>aA»iu. *r 897-1178 UNNAR Hólm Ólafsson hlýtur Fréttabikarinn að þessu sinni. Unnar Hólm er sterkur vamarmaður en um leið fjölhæfur leikmaður sem brá sér óhikað í sóknina líka og var stundum stillt upp framar á vellinum. Unnar er útsjónarsamur á vellinum og öruggur með boltann. Hann var einn af máttarstólpum 2. flokks í sumar og skoraði þar ein fimm eða sex mörk. Öll mörkin skoraði hann með skalla eftir homspymur. Er athyglisvert því hann er ekki hár í loftinu. Unnar er farinn að banka upp á hjá meistara- flokki og kom inn á síðasta leiknum í deildinni í sumar. Það má segja að Unnar hafi byijað að blómstra í þriðja flokki á síðasta ári og síðan hefur leiðin legið upp á við. Hann er í hópi margra ungra leikmanna ÍBV sem nú em að komast til þroska. 'Kjarmu ÍyóSDUÐ BERH HÍM SHADOWi Vikutilboð 23.-29- nóv UESTURUEG118 Kjarna smjörlíki, 500gr. 99 kr. • áður 129,- Maaena sósujafnari 115 kr. - áður 148,- Kynning í dag fimmtudag frá kl. 13 ■ 18 Santa Maria Tex Mex vörur

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.