Fréttir - Eyjafréttir - 09.08.2001, Page 15
Fimmtudagur 9. ágúst 2001
Fréttir
15
Símadeildin: IBV 1 - Fram 3
Slæm
Það voru ekki margir sem voru
þeirrar skoðunnar að næstneðsta
lið Símadeildarinnar gæti gert það
sem flestum öðrum íslenskum
liðum hefur mistekist, það er að
segja að leggja IBV að velli á
Hásteinsvellinum. Það gerðu þeir
hins vegar með stæl, nýttu þau fáu
færi sem þeir fengu og uppskáru
tveggja marka sigur, 1-3.
Fyrir leik ÍBV og Fram í Símadeild
karla höfðu Eyjamenn ekki enn tapað
leik í sumar á heimavelli og það sem
meira var, þeir höfðu ekki enn fengið
á sig mark.
Eyjamenn voru mun betri aðilinn í
fyiri hálfleik og áttu fjölmörg færi.
Þrátt fyrir það voru það gestirnir sem
komust yfir á þriðju mínútu eftir
klaufagang í vöm ÍBV. Það sem eftir
lifði hálfíeiksins sóttu Eyjamenn
nánast látlaust en eftir hálftíma leik
munaði minnstu að Framarar kæmust
tveimur mörkum yfir þegar þeir áttu
stangarskot úr upplögðu færi. Hlynur
Stefánsson jafnaði leikinn hins vegar
tíu mínútum fyrir leikhlé og þar við
sat.
Seinni hálfleikur var hins vegar
aðeins skugginn af þeim fyrri, enda
dag farið að stytta og orðið ansi
skuggsýnt á Hásteinsvellinum. Það
var hins vegar ekki myrkrið sem var
það svartasta þetla miðvikudagskvöld,
leikmenn IBV virkuðu værukærir í
leik sínum og tvenn varnarmistök
voru dýrkeypt enda ekki á hverjum
degi sem Eyjamenn sjá varnarmistök
hjá leikmönnum IBV.
Lokatölur urðu I -3 og varla hægt að
byrjun á þjóðhátíð
PÁLL Almarsí hörðum slag á móti Breiðabliki en hann átti ásamt
fleiri varnarmönnum slakan dag á móti Fram.
segja að ÍBV hafi fengið marktækifæri
í seinni hálfleik.
Það var frekar dauf og óvenjuleg
stemmning í búningsklefa IBV eftir
leikinn en Bjarnólfur Lárusson sagði
m.a. að leikmenn gætu ekki komið
með neina afsökun fyrir tapinu.
„Þetta var jafn fyrri hálfleikur en
mér fannst við samt hafa undirtökin.
Það verður sanrt ekki tekið af Fröm-
urum að þeir voru betri aðilinn í dag.
Eg vil ekki meina það að menn hafi
verið komnir hálfa leið inn í Dal á
Þjóðhátíð en einbeitingin hjá okkur
var alls ekki nógu góð. Við erum
búnir að vera með mjög góða
vamarlínu í sumar en það gekk ekki
upp í dag. Hins vegar skomm við
bara eitt mark, eins og vanalega en
það dugði bara ekki í dag.“
Kristinn Jónsson, þjálfari Fram var
kampakátur í leikslok þegar blaða-
maður Frétta spurði hann hvort hann
hefði í fómm sínum lykilinn að sigri á
Hásteinsvelli?
„Nei, ætli það sé nokkuð ein sérstök
aðferð sem dugar til sigurs héma. Við
höfum verið á uppleið og í síðustu
fimm leikjum höfum við bara tapað
einum leik í venjulegum leiktíma. Við
erum komnir með þann mannskap
sem við treystum og ég veit að við
getum unnið hvaða lið sem er, við
sýndum það í kvöld. Sjálfstraustið
jókst náttúrulega mjög mikið við það
að komast yfir og Eyjamenn gerðu sig
seka um sjaldséð varnarmistök sem
Ási nýtti sér til fulls. Það getur reynst
okkur mjög dýrmætt að fara héðan
með þrjú stig, bæði andlega og svo
líka töpuðu bæði Blikarnir og KR
héma þannig að við erum eiginlega að
fá þrjú bónusstig.“
ÍB V 1 -Fram 3
ÍBV spilaði 4-4-2
Birkir Kristinsson, Hjalti
Jóhannesson, Kjartan Antonsson,
Hlynur Stefánsson, Páll Hjarðar,
Alexander Ilic, Tommy Schram,
Atli Jóhannsson, Bjarnólfur
Lárusson, Tómas Ingi Tómasson,
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Varamenn: Gunnar B. Runólfsson,
Ingi Sigurðsson (kom inn á
58.mín.), Hjalti Jónsson, Jón Helgi
Gíslason, Davíð Egilsson.
Fyrír 03 eftir þjóðhátíð
-Hvað serist hjá karla- 03 kvennalióum ÍBV?
Spekinsurinn
Þá tekur Jón Oli aftur við
spekingsstörfum eftir viku pásu en
um helgina sást til hans liggja yfir
tölfræði sem hann komst yfir, til
að koma sér aftur á strik.
Við ákváðum í sameiningu að
láta KFS leikinn gegn Njarðvík
fylgja með enda eru þessi tvö lið í
harðri toppbaráttu í B-riðli og geta
úrslit riðilsins ráðist í þessum leik.
Breiðablik-ÍBV Símadeild
kvenna
Við vinnum 0-1 og gerum allt
vitlaust á toppi Símadeildar. Þetta
brýtur Blikana andlega niður, sem
tapa hverjum þeiknum á fætur
öðrum á meðan IBV vinnur þá og
stendur svo uppi sem íslands-
meistari. Bryndís Jóhannesdóttir
skorar markið í fyrri hálfleik.
Fram-ÍBV 2. II. karla
Mér skilst að þetta sé leikur í
botnbaráttunni. Strákamir taka
þetta 0-2 og Einar Hlöðver og ívar
Róberts skora.
ÍBV-FH 2. fl. kvenna
Þetta verður léttur leikur hjá
stelpunum og endar 5-0. Margrét
Lára skorar tvö, Elva Dögg, Rakel
og Sara eitt mark hver.
KR-ÍBV Símadeild karla
Þetta verður hörkuleikur og bæði
lið sýna gamla takta. Það verður
samt bara eitt mark skorað og Jrað
gerir Alexander Ilic og tryggir IBV
aftur sigurinn á KR.
Grindavík-ÍBV Símadeild kv.
Eins og ég sagði áðan þá vinna
stelpumar rest og þessi leikur endar
0-3. Bryndís, íris og Pauline skora
mörkin.
KFS-Njarðvík
Ég hef trú á KFS þetta árið og ekki
versnar það eftir að fá liðsstyrk frá
ÍBV. KFS vinnur 4-1 þar sem
Heimir fyrirliði skorar tvö, Sindri
og Unnar Hólm skora svo sitt
markið hvor.
I gegnum árin hefur verið talað um
dcildarkeppnina sem tvö tímabil,
fyrir og eftir þjóðhátíð. Oft hefur
verið sagt um IBV að liðinu gangi
alltaf mjög vel eftir þjóðhátíð en
það liefur verið sérstaklega
áberandi hjá karlaliðinu. Bæði
karla- og kvennalið IBV hafa komið
nokkuð á óvart í sumar og eru bæði
í toppbaráttunni. Það getur því
verið ansi fróðlegt að líta flmm ár
aftur í tímann og bera saman gengi
liðanna þá og nú.
Á þessari töflu má sjá að ÍBV hefur
ávallt verið í kringum tuttugu stig ef
frá em talin meistaraárið 1998 og svo
árið 1996. Nú þegar sex umferðir em
eftir getur ÍB V mest náð í 38 stig sem
samkvæmt síðustu fimm ámm, duga í
annað af tveimur efstu sætunum og
dugði ÍBV til sigurs í deildinni 1998.
Deildin er í ár jafnari en nokkm sinni
fyrr þannig að gera má ráð fyrir að 38
stig muni duga til sigurs í efstu deild
karla. Það er hins vegar ekki að sjá að
karlaliðið spili eitthvað betur eftir
þjóðhátíð, nema kannski 1997
Það sem fyrst og fremst vekur
athygli í þessari töflu er stigvaxandi
árangur liðsins til ársins 1999. Á
aðeins fimm ámm hefur liðinu tekist
að breytast úr slöku úrvalsdeildarliði í
lið sem gæti jafnvel unnið titla. Liðið
hefur aldrei haft jafn mörg stig fyrir
þjóðhátíðina og í ár en þrátt fyrir það
eru leikmenn og forráðamenn liðsins
ekki ánægðir. Jafnteflin gegn FH á
útivelli og Val á heimavelli^eta sett
stórt strik í reikninginn hjá IBV en í
pottinum em ennþá 21 stig og þá væri
ÍBV með 39 stig. Islandsmeistarar
síðustu fimm ára hafa verið með stig á
bilinu 37-42 og í fyrra unnu Blikar
deildina á 37 stigum en þessi tvö lið
mætast einmitt í kvöld og þar munu
úrslit íslandsmótsins ráðast.
Karlaliðið
Heimaleikir + útileikir Sigrar, jafntefli, töp Heimaleikir + útileikir Sigrar, jafntefli, töp
Ár Fyrir þjóðhátíð Eftir þjóðhátíð
2000 7+7 6-5-3 = 23 stig 2+2 2-0-2
1999 5+5 6-3-1 = 21 stig 4+4 5-2-1
1998 6+5 8-1-2 = 25 stig 3+4 4-1-2
1997 6+5 6-3-2 = 21 stig 3+4 6-1-0
1996 5+6 4-1 -6 = 13 stig 4+3 4-0-3
2001 6+6 6-2-4 = 20 stig
Kvennaliðið
Heimaleikir + útileikir Sigrar, jafntefli, töp Heimaleikir + útileikir Sigrar, jafntefli, töp
Ár Fyrir þjóðhátíð Eftir þjóðhátíð
2000 5+5 3-5-2 = 11 stig 2+2 2-0-2
1999 4+5 4-1-4 = 13 stig 3+2 3-0-1
1998 5+4 3-2-3 = 11 stig 2+3 3-0-2
1997 4+4 2-1-5 = 7 stig 3+3 3-0-3
1996 4+5 1-1-7 = 4 stig 3+2 2-0-3
2001 5+4 5-3-1 = 18 stig
ÍV gerir út frá
Reykjavík
í fyrra féll lið Eyjamanna, ÍV úr
1. deild í körfubolta el'tir tveggja ára
dvöl þar. Rekstur liðsins hefur
verið afar erfiður enda er þröngt í
gömlu íþróttahöllinni og liðið
yfirleitt ekki æft á kristilegum
tímum. Þá hefur gengið misjafn-
lega að koma upp starfsemi yngri
ilokkanna sem er að sjálfsögðu
grundvallaratriði fyrir áframhald-
andi starfi næstu ára.
ÍV verður með í 2. deildinni í
vetur. Amsteinn Ingi Jóhannesson,
formaður ÍV, sagði að reksturinn
yrði með breyttu sniði, þar sem liðið
yrði nú gert út í Reykjavík til hag-
ræðingar. „Önnur deildin er þannig
að sum lið hafa ekki efni á að koma
til Eyja þannig að til að halda
friðinn og spara öllum peninginn
ákváðum við að spila okkar
heimaleiki í Reykjavík, enda erum
við flestir ef ekki allir búsettir héma
á Reykjavíkursvæðinu.“
Liðsstyrkur
Bikarmeisturum ÍBV í kvenna-
handboltanum hefur borist góður
liðstyrkur fyrir átökin á komandi
vetri.
„Til liðs við okkur hal'a gengið tvær
spænskar stelpur sem hafa spilað sl.
ár í frönsku annarri deildinni," sagði
Hlynur Sigmarsson í stjórn kvenna-
deildar ÍBV.
„Nýir liðsmenn okkar em
miðjumaðurinn Isabel Iruela Orlis
sem er 34 ára og skyttan Ana
Fernandez Perez sem er 29 ára.
Þær hafa sl. ár spilað í Frakklandi
með liðum Le Havre og Toulon.
Isabel á að baki 13 A landsleiki og
23 unglingalandsleiki og Ana á að
baki 15 unglingalandsleiki fyrir
Spán.“
Amela Hegic er gengin til liðs
við Gróttu/KR og Tamara Mandich
og Anita Andreassen munu ekki
leika með liðinu á næsta ári.
Rólegt
Það er búið að vera heldur rólegt hjá
yngri flokkum ÍBV síðastliðna viku
en þó léku tveir karlaflokkar í
íslandsmótinu. Fyrst mætti fimmti
flokkur karla Leikni á miðviku-
deginum fyrir Þjóðhátíð og var
leikið í A-, B- og C-liðum. A-liðið
tapaði illa 0-4 en B- og C-liðin
hefndu ófaranna. B-liðið vann 4-1
þar sem Arnór skoraði tvö mörk,
Gauti eitt og Guðjón eitt. C-liðið
vann svo sinn leik 4-2 þar sem Gísli
gerði tvö, William eitt og Guð-
mundur sömuleiðis eitt.
Fjórði flokkur mætti svo Vík-
ingum á þriðjudaginn var en
Víkingar eru taldir meðal sterkustu
liða í þessum aldurstlokki. Eyja-
peyjar létu það hins vegar ekki
hræða sig og unnu 2-1 eftir
spennandi leik. Birkir Ágústsson
skoraði bæði mörk ÍBV.
Framundan
Fimmtudagur 9. ágúst
Kl. 19.00 Breiðabl-ÍBV Símad. kv.
Föstudagur 10. ágúst
Kl. 19.00 ÍBV-FH 2.11. kvenna
Kl. 19.00 Fram-ÍBV 2,fl. kvenna
Kl. 19.00 Ægir-KFS
Sunnudagur 12. ágúst
Kl. 18.00 KR-ÍBV Símadeild karla
Mánudagur 13. ágúst
Kl. 19.00Grindavík-ÍBV Símadeild
kvenna
Þriðjudagur 14. ágúst
Kl. 18.00 IBV-Breiðab. 3,fl. kvenna
Kl. 19.00 KFS-Njarðvík.