Vestfirðir - 06.11.2014, Page 6
6 6. Nóvember 2014
TÆ K I Ð S E M T E M U R H A F I Ð
STÖÐUGLEIKABÚNAÐUR Í BÁTA OG SKIP
Nútíma tækni
Tekur minna pláss
Notar minna rafmagn
Einkaleyfisvarin tækni
Leiðandi á heimsvísu
Einfalt í uppsetningu og notkun
Minni mótstaða - Vinnur í lofttæmdri kúlu
Hentar þínum báti - 5 mismunandi stærðir
Hefur sannað gildi sitt á Íslandi
Sérstaða SEAKEEPER
W W W . K A R L . I S
K-KARL ehf
Grandagarði 16
101 Reykjavík
Sími: 696 0008
info@karl.is
Rafmagnstruflanir
vegna álagsprófana
Næstu daga verða Vestfirðingar fyrir rafmagnstruflunum vegna álagsprófana sem fram
þurfa að far avegna nýju varafalsstöðv-
arinnar í Bolungavík. Framkvæmdir
hófust í fyrra og verið er að leggja
lokahönd á verkið með prófunum á
vélbúnaði og tæknibúnaði. Fyrirséð
er að þær munu valda truflunum hjá
notendum á öllum Vestfjörðum. Reynt
verður að lágmarka óþægindin með því
að framkvæma prófanirnar að næt-
urlagi. Landsnet stendur fyrir byggingu
varafalstöðvarinnar og er það unnið til
þess ða bæta afhendingaröryggi raf-
magns á Vestfjörðum þannig að þegar
upp er staðið eiga Vestfirðingar að vera
mun betur staddir en áður hvað þetta
varðar.
Fyrst fara prófanir fram að degi til
mánudaginn 10. nóvember og eiga
notendur ekki að verða varir við nein
óþægindi. Síðan koma fjórar nætur
samfellt frá aðfaranótt þriðjudagins 11.
nóvember til aðfaranætur föstudagins
14. nóvember. Fyrstu nóttina eiga
notendur ekki að verða varir við nein
óþægindi. Aðfaranótt miðvikudagins
12. nóvember mun valda straumleysi í
Bolungavík og á Ísafirði og síðari tvær
næturnar verður straumleysi hjá öllum
íbúum Vestfjarða.
Prófunum lýkur svo aðfaranætur
þriðjudagins 18. nóvember og mið-
vikudagsins 19. nóvember ef þörf
krefur og ef af þeim verðu mun verða
straumleysi hjá öllum notendum á
Vestfjörðum. Nánari upplýsingar vegna
prófananna verða birtar á heimasíðu
Landsnets, landsnet.is og Orkubús
Vestfjarða, ov.is og í öðrum fjölmiðlum
ef þurfa þykir.
Að þessu loknu er bara að láta sig
hlakka til þess að hafa rafmagn í öllum
óveðrum á komandi vetri.
Þingeyri:
Valþjófur ehf einn eftir
Artic Oddi hefur sagt sig frá umsókn um 400 tonna aflamark Byggðastofn-
unar á þingeyri pg stendur þá ein
eftir umsókn frá Valþjófi ehf. sem
gerir út bátinn Hrólf Einarsson ÍS
frá Flateyri. Sigurður Árnason,
Byggðastofnun sagði að beðið væri
eftir frekari gögnum frá fyrirtækinu
og vonaðist eftir því að stofnunin
myndi fyrir áramót taka ákvörðum
um að hefja samninga við Valþjóf ehf.
ÓlafurJens Daðason hjá Valþjófi ehf
sagði að áfram yrði unnið að mál-
inu í samstarfi við Byggðastofnun
en það hefði áhrif að enn hefði Vísir
hf ekkert gefið út um það hvenær
fyrirtækið myndi hætta starfsemi á
þingeyri og hvaða vélar yrðu teknar
með suður.
Frá höfninni á Þingeyri.
Nær öll fólksfjölgun
á höfuðborgarsvæðið
Svæðisskipulag fyrir höfuðborgar-svæðið fyrir 2015 - 2040 er að leiðinni í almenna kynningu.
Athygli vekur að í forsendum er gert
ráð fyrir því að íbúum fjölgi um 70.000
á þessi 25 ára tímabili. Það er ekki alveg
út í bláinn því sama fjölgun varð frá
1985 til 2012. Þá fjölgaði íbúum um
liðlega 50% úr 135.000 manns upp í
205.000 manns.
Á sama tímabili gerir Hagstofa Ís-
lands ráð fyrir í mannfjöldaspá sinni
( miðspá) að landsmönnum fjölgi úr
321.000 manns í 402.000 manns eða
um 80.000 manns. Sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu gera því ráð fyrir því
að nærri 90% af allri fjölgun þjóðar-
innar verði á þeirra svæði.
Þessi forsenda er í eðli sínu pólitísk
yfirlýsing um þróun þjóðfélagsins á
næstu 25 árum. Hún getur ekki orðið
að veruleika nema stjórnmálaflokk-
arnir standi að því að hrinda henni
í framkvæmd. Sveitarfélögin annars
staðar á landinu verða að bregðast við
spurningin er hvaða leiðir pólitískir
fulltrúar íbúanna á landsbyggðinni
vilja fara til þess að efla og bæta búsetu
og samfélögin.
FYLGIRIT I-A
Umhverfisskýrsla
Hluti af forsendum
svæðisskipulags
höfuðborgarsvæðisins
2015-2040
Tillaga til auglýsingar
3. sept. 2014
rauðasandur sýnir einstæða náttúrfegurð vestfjarða – sem er helsti styrkur
svæðisins.