Fréttir - Eyjafréttir - 14.03.2002, Side 9
Fimmtudagur 14. mars 2002
Fréttir
9
Líf og fjör á árshátíð sýslumannsembættisins
KARL Gauti sýslumaður og Sigurlaug Jóhanna, hans ektakvinna
tóku á móti gestum.
ÞARNA gæti Jóhannes verið að
ræða um fótbolta.
ÁSGEIR lögregluvarðstjóri og Sólveig kona hans voru að sjálfsögðu
mætt á árshátíðina.
Árshátíð sýsluniannsembættisins
var haldin síðasta
laugardagskvöld og þótti takast í
alla staði vel. Karl Gauti
Hjaltason sýslumaður og
eiginkona hans Sigurlaug Jóhanna
Stefánsdóttir buðu starfsfólki
embættisins heim ásamt mökum
og buðu upp á léttar veitingar.
Eftir að hafa verið hjá þeim
hjónum í góðu yfirlæti hélt
hópurinn af stað með rútu í
Höllina þar sem dýrindis
veisluborð beið gestanna. Því næst
tók við skcmmtidagskrá í umsjón
skemmtinefndar og víst að mörg
atriðin kitluðu hláturtaugar
viðstaddra. Einnig sýndu ungar
stúlkur dansatriði og Thelnia Rós
Tómasdóttir söng við undirleik
móður sinnar Sigurrósar
Ingólfsdóttur. Hljómsveitin Papar
lék fyrir dansi og árshátíðargestir
dönsuðu og skemmtu sér fram á
rauða nótt.
SÝSLUMAÐUR með fögrum konum, þeim Jóhönnu og Guðrúnu.
GUÐBJÖRG Hriinn, Marý Kolbcins og Birgir Sigurjónsson.
Margt á döfinni hjá
Þróunarfélaginu
Á fundi bæjarráðs á mánudaginn
var tekið fyrir bréf frá Þorsteini
Sverrissyni fyrir hönd Þróunar-
félagsins þar sem farið er fram á að
fá úthlutað sjö og hálfri milljón af
framlagi félagsins fvrir árið 2002
strax.
Ástæðuna segir Þorsteinn að verk-
efni sem Þróunarfélagið hefur ráðist í
hafi tekið lengri tíma en áætlað var í
fyrstu og mörg verkefni séu fram-
undan.
Þorsteinn tilgreinir fjögur verkefni
þar sem peningum hafi verið varið í,
þrjár milljónir eru í Eignarhaldsfélagi
Vestmannaeyja, sex milljónir í mat-
réttaverksmiðju. rúm hálf milljón í
Islandslaxi og þrjár og hálf milljón í
It4food. „Félagið þarf fé til rekstrar og
fyrirsjáanlegs kostnaðar vegna breyt-
inga á húsnæði fyrir matréttaverk-
smiðjuna og breytingar á starfí ferða-
málafulltrúa og uppsetningu upplýs-
ingamiðstöðvar í afgreiðsluhúsnæði
Herjólfs á Básaskersbryggju og í
llugstöðinni. Þessum breytingum
fylgja ákveðin byrjunarútgjöld og
kostnaðarauki fyrir félagið."
Bæjarráð samþykkti erindið.
Andrés leikstjóri þakkar fyrir sig
Andrés Sigurvinsson leikst jóri
sendi bæjarráði bréf þar sem hann
ásamt Gunnari Þór Guðbjörns-
syni þakkar fyrir skjót og góð
viðbrögð við erindi sínu í janúar
um fjárstuðning fyrir leikfélagið.
Ennfrcmur upplýsir hann að
hafnar séu æfingar á leikriti og er
það samstarfsverkefni Leikfélags
Vestmannaeyja og Framhalds-
skólans í Vestmannaeyjum og
munu þáttakendur vera um
fjörtíu manns.
„Við vonumst til að fjárfesting
þessi eigi eftir að skila sér í auð-
ugra og betra mannífi á komandi
vori og næstu framtíð.“
ANDRÉS hefur haldið námskcið í leiklist í vetur og hefur aðsókn
verið góð.
Brauostríð í Vestmannaeyjum:
Andrés bakari býður
Krónunni byrginn
með lægra verði
Andrés Sigmundsson, hakari í
Magnusarbakaru, ætlar ekki að
gefast upp fyrir ofurcflinu, heldur
lækka sín brauð niður fyrir það
verð sem Krónan býður sín brauð
á.
Með tilkomu lágvöruverðsversl-
unar Krónunnar til Eyja buðust
samlokubrauð á 89 krónur. Það verð
er langt undir því verði sem
bakararnir í Eyjum buðu. Nú hefur
Andrés bakari í Magnúsarbakaríi í
samstarfi við Vöruval lækkað sín
brauð niður í 75 krónur.
Andrés er brattur og segist ætla að
taka þátt í þessari baráttu áfram. „Ég
er alltaf reiðubúinn í svona, ég sel
meira en bara samlokubrauð og mér
hefur fundist fólkið í bænum taka
mjög vel í þetta framtak okkar.“
Lækkunin sem um ræðir er úr 250
krónum brauðið niður í 75 krónur.
Bakaríum í bænum fækkaði um eitt í
síðustu viku, má jafnvel búast við
frekari fækkun? „Ég vona ekki. við
erum búin að vera lengi í þessu og
það hefur ekki alltaf verið auðvelt.
Ég mun alla vega taka fullan þátt í
þessu a.m.k. á meðan Eyjafólk
kaupir brauð framleidd í Eyjum,"
sagði Andrés að lokum.
Sfðustu fréttir herma að Krónan
bjóði samlokubrauðin á 69 krónur.
ANDRÉS bakari ætlar ekki að
láta þá stóru knésetja sig.