Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Page 2
2
Fréttir
Föstudagur 3. janúar 2003
Rólegt hjá
lögreglu um
áramótin
Rólegt var hjá lögreglu yfir liátíð-
irnar, fóru áramótin mjög vel fram
og engin slys á fólki vegna með-
ferðar flugelda. Alls voru 180
færslur í dagbók lögreglu í sl. viku
sem eru nokkuð færri færslur en í
síðustu viku.
Einn þjófnaður var tilkynntur til
lögreglu að morgni 27. des. en
slolið hafði verið tveimur slökkvi-
tækjum sem voru í olíuvögnum hjá
Olíudreifmgu við Geirseyri.
Þrisvar var tilkynnt um
skemmdarverk til lögreglu í vik-
unni.
Þann 27. desember var tilkynnt
utn að sparkað hefði verið í bifreið
sem stóð við Strembugötu 24 en
atvikið mun hafa átt sér stað
aðfaranótt sama dags.
Þann 28. desember var tilkynnt
um að sparkað hefði verið í bifreið
sem var við gatnamót Skólavegar
og Vestmannabrautar. Á nýársdag
var tilkynnt um að hliðarspegill hafi
verði brotinn af bifreið sem stóð við
Höfðaveg 13.
Einungis fjögur umferðarlagabrot
eru skráð í dagbók lögreglu eftir
vikuna. í tveimur tilvikum er um að
ræða kærur vegna hraðaksturs, ein
kæra vegna vanrækslu á að færa
ökutæki til skoðunar og ein kæra
vegna vanrækslu á vátrygginga-
skyldu.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt í
vikunni og átti það sér stað á
gamlársdag við verslun 10-11 v/
Goðahraun.
Tveir brunar
Tilkynnt var um tvo bmna í vikunni
og var um minniháttar tjón að ræða
í báðum tilvikum. Þann 29.
desember var tilkynnt um að kveikt
hafði vetið í salemum á Skansinum
en í Ijós kom að liugeldi hafði verið
kastað inn á salernin og við það
hafði myndast mikill reykur en ekki
var um eld að ræða. Á gamlársdag
var tilkynnt um að kviknað hafði í
potti á eldavél en heimilisfólki tókst
að slökkva eldinn áður en hann náði
að breiðast út. Hins vegar varð tjón
af sökum reyks og sóts.
Fækkar um tæpt
prósent
Ibúum Vestmannaeyja fækkaði um
0,95 prósent síðasta ár sem er
heldur minna en undanfarin ár.
Þann 1. desember 2001 vom fjögur
þúsund fjögur hundruð fimmtíu og
átta íbúar í Vestmannaeyjum en
bráðabirgðatölur frá 1. desember
2002 segja íbúa fjögur þúsund
tjögur hundmð og sextán. Sú tala
getur breyst lítillega þegar nánar
verður farið yfir tölur síðasta árs.
Hækkun ó
hafnargjöldum
Þjónustugjaldskrá Vestmannaeyja-
hafnar hækkaði um fimm prósent
um áramót. Var þetta samþykkt í
bæjarstjóm þann 30. desember sl.
Áður hafði Hafnarsamband
sveitarfélaga lagt til að hækkunin
yrði 7,5%.
Völva Frétta sannspá um
margt sem gerðist 2002
Völva Frétta reyndist að mörgu
leyti sannspá fyrir árið 2002. Til að
mynda sá hún fyrir gott gengi
kvennaliðsins í handboltanum og
óánægju almennings með ferðatíðni
Herjólfs. Hér verður farið yfir
helstu atriði er varða atvinnumál
samgöngur, íþróttir og kosning-
arnar á síðasta ári.
Völvan minntist á að Vestmanna-
eyingum hafi fækkað undafarin ár en
sagði fólksfækkun verða minni árið
2002 en undanfarin ár eða undir einu
prósenti. Þetta reyndist rétt því sam-
kvæmt bráðabirgðatölum fækkaði um
0,95 prósent á síðasta ári. Völvan
sagði sjávarútveg ganga vel í heildina
og loðnuvertíð verða góða og það
reyndist rétt vera.
Þá sagði hún kaup og rekstur
fiskiskips valda mikilli úlfúð. Eins og
kunnugt er kom Guðni Olafsson til
Eyja á síðasta ári og rekstur skipsins
gekk ekki eins og áætlanir gerðu ráð
fyrir og eigendur sökuðu sjávarútvegs-
ráðherra um óheilindi m.a. vegna
breytinga á fiskveiðikerfinu. Völvan
sagði gamalgróið fyrirtæki í sjávarút-
vegi hætta rekstri en Úndína, í eigu
Gísla Vals Einarssonar, hætti á árinu.
Völvan minnist á að tvö flugfélög
héldu uppi áætlunarflugi til Vest-
mannaeyja en sá fyrir að annað myndi
hætta flugi hingað í óbreyttri mynd.
Eins og kunnugt er hætti Jórvík að
fljúga hingað á árinu. Hún sagði
Flugfélag Islands íhuga að koma aftur
inn með áætlunarflug og að Flug-
félagi Vestmannaeyja ætti eftir að
vaxa fiskur um hrygg og árið yrði
félaginu gott.
Hún sá fyrir að rekstur Heijólfs yrði
tekinn til endurskoðunar og sagði
óánægju verða meðal fólks sem
beindist að stjómvöldum frekar en
þeim sem sjá um rekstur ferjunnar.
Eins og kunnugt er var mikil umræða
meðal fólks um tíðni ferða með
Herjólfi í bænum. Meðal annars var
haldinn borgafundur um samgöngu-
mál og almenningur lét þessi mál sig
miklu varða á árinu.
Þjóðhátíðina sagði völvan verða
aðalhátíð verslunannannahelgarinnar
en „veður á eftir að spila talsvert inn í
og spilla nokkuð fyrir.“ Þjóðhátíðin
var sú blautasta í manna minnum og
veðrið í aðalhlutverki en hátíðin tókst
samt sem áður mjög vel. Þá sá hún
fyrir mikið Qölmenni um helgi fyrri
hluta ársins og fleiri gesti hér um eina
helgi en áður hafi verið. Minntist hún
á ákveðnar og fremur umdeildar uppá-
komur í því samhengi.
Á sama tíma og Shellmótið var
haldið var hér æfing á vegum Sam-
varðar 2002 og urðu miklar deilur um
gamla bátaskýlið á Eiðinu en það var
notað við rústabjörgunaræfingu og
spengt í loft upp.
Völvan sá fyrir gott gengi í
boltaíþróttum og einn eftirsóttan bikar
í Eyjum. Handboltastelpurnar urðu
eins og kunnugt er bikarmeistarar
2002. Hún sá fyrir ósætti innan
íþróttaforystunnar og taldi að ein-
hverjir myndu hætta í kjölfar þeirra
deilna. Einnig minntist hún á vand-
ræðamál sem tengdist knattspymunni.
Þjálfarar í karla- og kvennaknatt-
spymu voru látnir fjúka á árinu auk
þess sem stjóm knattspyrnuráðs
kvenna hætti öll og ekki er hægt að
segja annað en málið um meinta
lyfjamisnotkun einstakra liðsmanna
kvennafótboltans hafi verið vand-
ræðalegt.
Bæjarstjómarkosningamar sl. vor
taldi völvan að yrðu þær tvísýnustu
sem um getur. Síðan sagði hún:
„Þegar ég í desember byijaði að rýna í
væntanleg úrslit þeirra, kom upp sú
undarlega staða að dagaskipti voru á
því hvaða úrslit ég sá lyrir.... Fyrir jól
sýndust mér allar líkur á að
sjálfstæðismenn myndu halda meiri-
hlutanum en svo milli jóla og nýárs
þegar lokahönd var lögð á spána, fékk
ég ekki betur séð en vinstri menn væm
komnir með meirihluta. Eins og
staðan er nú finnst mér því allt benda
til þess að sjálfstæðismenn missi
meirihluta sinn.“ Þetta gekk eftir en
vinstrimenn mynduðu ekki meirihluta
heldur sjálfstæðismenn með fram-
sóknarmönnum. Þá taldi hún að
flokkamir ættu í basli með að raða
fólki á lista svo öllum líkaði en eins og
kunnugt er buðu framsóknarmenn
fram lista í síðustu kosningum.
Völvan spáir alltaf sérstaklega fyrir
Fréttum og sá fyrir breytingar á
starfsliði Frétta. Guðmundur Ás-
mundsson flutti ásamt fjölskyldu sinni
til Hveragerðis og Sæþór Þorbjamar-__
son kom til starfa á blaðinu.
Þegar á allt er litið er ekki annað
hægt að segja en að völvan hafi reynst
æði sannspá fyrir nýliðið ár. Sama
völva spáir fyrir árinu 2003 að þessu
sinni í blaðinu í dag og nú er bara að
sjá hvort henni tekst jafnvel upp að
þessu sinni og í fyrra.
Hópaleikur ÍBV:
Hárarnir
sigruðu
Nú er fyrsta hópaleik vetrarins
lokið hjá IBV getraunum. Það
voru hinir gamalreyndu feðgar,
Elías Björnsson og Björn
Elíasson með hóp sinn
„Hárarnir“ sem báru sigur úr
býtum með alls 43 stig. Fá þeir
að launum ferð á leik í Englandi
að verðmæti 40.000 kr hvor.
Oskum við þeim feðgum
innilega til hamingju með þetta.
I öðru sæti varð svo Litla
Lundafélagið með 42 stig, og er
þetta mjög góður árangur hjá
þeim, en þeir voru að taka þátt í
fyrsta skipti. Það voru síðan þeir
félagar Ragnar Oskarsson og
Einar Friðþjófsson sem enduðu í
þriðja sæti með sinn hóp, ER.
I fyrstu deild sigruðu Heimir
„Tannsi“ Hallgrímsson og
Júlíus „Golfari“ Hallgrímsson
með hópinn Dímon. Þeir náðu
alls 42 stigum en í öðru sæti varð
hópurinn ÞYS með 41 stig, en
hann skipa þeir Sigursveinn
Þórðarson á Fréttum og Þórður
Sigursveinsson. Eins og í
úrvalsdeildinni var þriðja sætið
svo frátekið fyrir kennara en í
því sæti lentu þeir Pörupiltarnir
Már Jónsson og Baldvin
Kristjánsson.
Vorleikurinn hefst
11. janúar
Vorleikur IBV getrauna hefst
svo þann 11. janúar. Verður
hann með svipuðu sniði og
haustleikurinn og hvetjum við
alla þá sem styðja vilja við bakið
á unglingastarfi IBV til að skrá
sig. Þátttökugjald er það sama
og áður, 4000 kr á hóp. Það telst
ekki mikið þegar litið er á hver
aðalvinningurinn er,
utanlandsferð fyrir tvo að
verðmæti 80.000 kr. Hægt er að
skrá sig hjá þeim Tryggva Má
og Fúsa á Mánabar og minnum
við alla á að skrá sig sem fyrst og
vera með frá byrjun.
Leiðrétting
I síðasta blaði þar sem sagt er
frá myndlistarsýningu í
Listakoti er því haldið fram að
þar sé um að ræða
myndlistarnemdur Steinunnar
Einarsdóttur. Það rétta er
nokkrir þeirra hafa numið
listina hjá Steinunni en þarna
var um samsýningu að ræða,
óháð því hvar menn höfðu lært
að mála.
Eru aðstandendur beðnir
afsökunar á þessum mistökum.
Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, hélt upp á fimmtugsafmæli sitt sl. laugadag og bauð
vinum og vandamönnum til kaffisamsætis í Akógeshúsinu. Vænti hún þess að sjá sem flesta klædda
þjóðbúningi og þrettán konur voru í íslenska búningnum í veislunni. Sjálf var Guðbjörg Ósk í glæsilegum
faldbúningi sem hún saumaði sjálf.
Um hundrað manns voru í veislunni og Kirkjukór Landakirkju söng fyrir afmælisbarnið og gesti. Þá
spiluðu þær Rósa og Védís Guðmundsdætur á fiautu og píanó og Anna Cwalinska og móðir hennar
sungu tvö lög. Á myndinni eru Anna Lilja Jónsdóttir, Stcinunn Sigurðardóttir, Sigurborg Ólína
Herniannsdóttir, Hermann Einarsson, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Steinunn Ásta Hermannsdóttir og
Anna Elín Bjarkadóttir.
FRETTIR
Utgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson,
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310.
Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni,
ísjakanum, Bónusvídeó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði og afgreiðslu Hejrólfs í Þorlákshöfn. FRÉTTIR em prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR
eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.