Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Blaðsíða 7
Föstudagur 3. janúar 2003 Fréttir 7 BENÓNÝ BIRKIR BRYNJAR GUÐNÝ HALLGRÍMUR HEIMIR Birkir og Heimir reyna sig í blaðamennsku THEÓDÓRA ÞÓRÓLFUR Krakkamir í 10. bekk Barna- skóla tóku þátt í starfskynningu og skelltu sér í mörg fyrirtœfá. Strákamir Heimir og Birkir tóku viðtöl við nokkur ung- lömb. Afraksturinn var skemmtilegur og gaman að sjá hvað krakkamir voru jákvœðir gagnvart þessu. Morgunstund gefur gull í mund Nafn: Birkir Fannar Einarsson Starfsstaður: Fréttir. Hvenær þurftir þú að vakna? Eldsnemma í morgun- sárið en morgunstund gefur víst gull í mund. Hvernig líkar þér starfið? Þetta er alveg magnþrunginn og frábær vinnustaður, svarar hann með bros á vör. Hvers vegna valdir þú Fréttir? Vegna áhuga, mikils áhuga. Drekkur þú kaffi? Nei ég helli ekki í mig eitri. Eru Fréttirsvalar? Frábærar. Starfsmenn Frétta leggja sig alla fram og skila árangrinum í þeim dúr. Hver er þinn uppáhalds- drykkur? Eg segi Islenskt Já takk, MALT. Eitthvað að lokum? Hver er sinnar gæfu smiður (Júlli lét mig skrifa þetta). Við lifum ekki í lýðræði, opnaðu augun. sXe Mig langar í slopp eins og apótekari Nafn: Rúnar Kristinn Rúnars- son Starfstaður: Apótekið. Hvenær þurftir þú að vakna? Kl. 8, svarar hann, þreyttur en hann var nýkominn á staðinn. Hvernig líkar þér starfið? Mjög fínt og gott starf. Hvers vegna valdir þú starf apótekara? Vegna peninga og flotta sloppsins. Drekkur þú kaffi? Nei. Eru Fréttirsvalar? Þokkalegt æði. Hver er þinn uppáhalds- drykkur? Malt, það bætir meltingu og gefur gott útlit. Eitthvað að lokum? Ég hvet alla til að sýna apótekinu mikla virðingu. Koss til allra Nafn: Rúnar Einarsson Starfstaður: Magnúsarbakan Hvenær þurftir þú að vakna? Kl. 6, segir hann. Hvernig líkar þér starfið? Ljómandi vel, ég hef lært mik- ið, segir hann hlæjandi. Hvers vegna valdir þú starf bakara? Vegna áhuga, segir hann aftur hlæjandi. Drekkur þú kaffi? Já með deiginu, hann hlær aftur (mjög jákvæður strákur) Eru Fréttir svalar? Já þegar ég er í þeim. Hver er þinn uppáhalds- drykkur? Pepsi Cola. Eitthvað að lokum? Koss til allra. Ég er Tölvunjörður Nafn: Hallgrímur Helgi Hall- grímsson. Starfstaður: Tölvun. Hvenær þurftir þú að vakna? Kl. 8. Hvernig líkar þér starfið? MJÖG VEL, segir hann með bros út að eyrum. Hvers vegna valdir þú þetta starf? Þvf ég er tölvunjörður Döö. Drekkur þú kalfi? Já, þá get ég hangið meira í tölvunni. (Lol, segir hann svo en það skildum við ekki). Eru Fréttir svalar? Ég neita að svara. Hver er þinn uppáhalds- drykkur? Pepsi. Eitthvað að lokum? St4y 1337. Viltu nammi Nafn: Kári Yngvason Starfstaður: Iþróttahúsið Hvenær þurftir þú að vakna? Kl. 6, segir hann þreyttur. Hvernig líkar þér starfið? Allt í lagi bara. Hvers vegna valdir þú starf klefavarðar? Við völdum bara eitthvað. Drekkur þú kaffi? NEI, svarar hann með djúpum tón. Eru Fréttir svalar? Jájá Hver er þinn uppáhalds- drykkur? Pepsi. Eitthvað að lokum? Hvað kemur það öðrum við þó ég sé eigingjam. Viltu nammi. J. Fanta Lemon klikkar ekki Nafn: Brynjar Frímannsson Starfstaður: íþróttahúsið Hvenær þurftir þú að vakna? KI. 6 galvaskur. Hvernig líkar þér starfið? Ansi vel. Hvers vegna valdir þú starf klefavarðar? Við völdum bara eitthvað. Drekkur þú kaffi? Nei, ég þarf ekkert svoleiðis ósóma. Eru Fréttirsvalar? Já. Hver er þinn uppáhalds- drykkur? Ékkert jafnast á við ískall Fanta Lemon. Eitthvað að lokum: Nei. Skógrækt á dag kemur skapinu í lag -Ég, Heimir Gústafsson mætti galvaskur í vinnuna mína á Fréttum. Einu orðin sem geta lýst þessari lífsreynslu eru: þetta var unaður. Ég þurfti samt að vakna eldsnemma eða klukkan korter í átta. Mér þótti þetta æðisgengið og spennandi starf. Ég er sannur íslenskur karlmaður því ég þarf ekkert kaffi til að vakna, nó sörrý bobb. Ég fæ mér bara kók. Að lokum vil ég hvetja alla til að leggja sitt fram í skógrækt. Islenskt já takk. Kennarar rúlla Hann heitir Þórólfur Benedikt Kjartansson, sá drengur mætti upp í skóla klukkan átta að morgni til þess að læra að vera kennari. Hann valdi þetta starf vegna þess að honum þykir það áhugavert. Hann segir að skemmtilegast sé að liggja í leti og gera ekkert. Hann les Fréttir reglulega og hann drekkur ekki kaffi með blaðinu. Hann kýs frekar að drekka Mix Exotic sem honum þykir ákaflega gott. Þessi áhugasami drengur lokar viðtalinu með því að segja: kennarar rúlla. Drekkur ekki kaffi Sindri Steinarsson fór til Land- flutninga og líkaði það bara vel. Hann þurfti að vísu að vakna klukkan hálf átta sem þykir allsnemmt. Hann valdi þetta starf til að fræðast um hvað væri gert þar. Hann drekkur ekki kaffi. Hann kaupir að venju kók því að honum fmnst það best. Sindri segir að Samskip séu svalastir. Samskip með öflugan sess á markaðinum Benoný Þórisson skellti sér einnig í Landflutninga og segir þetta bara fjölbreytt og skemmtilegt starf. Hann vaknaði klukkan sjö fjömtíu og fimm sem þykir líka all- snemmt. Honum finnst þetta bara mjög skemmtilegt og fjölbreytt starf. Eins og Sindri drekkur hann ekki kaffi. En hinsvegar drekkur hann ekki kók heldur skellir hann í sig maltdollu. Honum finnst Fréttir stundum svalar. Að lokum vill Benoný segja að Samskip sé RÚNAR EINARS. RÚNAR RÚNARS. gott fyrirtæki með öflugan sess á markaðinum. Vaknaði kl 9 Guðný Sigurmundsdóttir fór niður í Klett og skemmti sér stórvel að eigin sögn. Hún vaknaði kl. 9 og byrjaði strax að afgreiða. Hún drekkur ekki heldur kaffi, henni finnst Fréttir mjög svalar og drekkur Coca Cola. Að lokum vill hún segja að Birkir og Heimir séu sæt- astir, og að Kletturinn sé heimsklassasjoppa. Fréttir mjög svalar Theódóra Ágústsdóttir fór með vinkonu sinni Guðnýju niður í Klett, og unnu þær stöllur saman. Hún vaknaði kl 8 og drekkur heldur ekki kaffi, henni finnst Fréttur bara mjög svalar og hlakkar til að lesa þær og þær Guðný höfðu sömu Íokaorð: Birkir og Heimir eru sætastir, og að Kletturinn sé heimsklassasjoppa.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.