Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Föstudagur 3. ianúar 2003
EYJAMAÐUR VIKUNNAR
Lofa að við verðum
grófari að ári.
Svo farðu varlega á árinu 2003, karlinn minn
Eyjaskaupið hefur mælst vel fyrir í
bænum og einn af fimmmenningun-
um sem stóðu að skaupinu er Einar
Björn Árnason. Hann lék mörg af
stærstu hlutverkum skaupsins og
sýndi sérstaklega skemmtilega takta
og þótti takast vel upp með við-
fangsefni sín. Einar er Eyjamaður
vikunnar að þessu sinni.
Fullt nafn? Einar Björn Árnason.
(Mel Gibson)
Fæðingardagur og ár? 9. desem-
ber 1976.
Fæðingarstaður? Að sjálfsögðu
Vestmannaeyjar
Fjölskylda? Konan mín heitir
Bryndi's Einarsdóttir og dóttir
Margrét íris. Foreldrar Mjöll i Klöpp
og Sigurjón Birgis. Tvö hálfsystkini í
Eyjum, Biggi og Þóra og fimm
hálfsystkini sem Árni faðir minn á.
Égersem sagt Klappari.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Smiður eins og
pabbi.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga?
Eins og er, Honda Civic.
Uppáhaldsmatur? Að sjáifsögðu
slátur.
Versti matur? Ég borða allt, enda
ekki annað hægt þegar maður er að
vinna hjá Grími kokk.
Uppáhaldsvefsíða? Arsenal.is
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap? Helgi Björns og að sjálfsögðu
Tónsmíðafélagið.
Með hvaða aðila
vildirþú helst eyða
helgi með? Auðvitað
Bryndísi, hún ersvo
rómó.
Aðaláhugamál?
Fótbolti og matreiðsla en dóttirin er
númer eitt.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Herjólfsdalur yfir
þjóðhátíð.
Uppáhaldsíþróttamaður eða
íþróttafélag? Óðinn vinur minn
Sæba. Við leggjum okkur alltaf
120% fram á móti hvor öðrum og
yfirleitt þarf hann að lúta í lægra
haldi. Félög í uppáhaldi eru Arsenal,
ÍBV og KFS.
Stundar þú einhverja íþrótt?
Fótbolta, golf og ég tefli stundum við
páfann.
Ertu hjátrúarfullur? Ekkert
sérstaklega.
Uppáhalds sjónvarpsefni?
Fótbolti, annars er Lína langsokkur í
sjónvarpinu 10 tíma á dag heima hjá
mér.
Besta bíómynd sem þú hefur
séð? In the name of the father og
Dumb and dumber.
Hvað finnst þér gera fólk
aðlaðandi? Hresst og skemmtilegt
fólk er aðlaðandi.
Einar Björn Arnason er
Eyjamaður vikunnar
Hvað finnst þér gera fólk
fráhrindandi? Fýlupúkar eru mér
ekki að skapi.
Hvernig gengu tökur á skaupinu?
Frábærlega, mikið hlegið og
handritið sérstaklega frumlegt.
Hvaða hlutverk fannst þér
skemmtilegast að leika? Þegar ég
og Arnar vorum að dodoa (gera
það).
Hvernig hafa viðbrögðin verið?
Afar góð af því sem ég hef heyrt
enda myndi ég ekki nenna að
standa í þessu ef maður mætti ekki
fara aðeins fyrir neðan beltisstað.
Ég lofa því að við verðum grófari að
ári svo farðu varlega 2003, karlinn
minn.
Eitthvað að lokum? Við strákarnir
í 5 stjörnum þökkum þeim fjölmörgu
sem stóðu með okkur í þessu og
strákar: Verðum í sambandi, við
þurfum að finna góðan tíma til að
slútta. Jæja, Mel Gibson er í
gemsanum, sjáumst hress að ári,
takk fyrir.
Fyllt
lúðustykki
Bvrjci ú að óska öilum gieðiiegs nýs árs með þökkjýrir
jjað gamla
Eisku Dóra mín, mikið ieggurþú á þig til að slíta
okkar vinskap. Var að hugsa wn að hafa eitthvað
indversktfyrir þig, en er bara ekki svoleiðis kvikincli
svo ég set hérnafisk afheimamiðum og eftirrétt sem
reynst hefur vinsœll.
Fyllt lúðustykki
Nokkur lúðustykki í venjulegum heimilisstærðum
Reyktur lax frá Þurý og stelpunum í Friðarhöfninni
Camembertostur
3egg
hveiti
1 dl rjómi
50 gr smjör
Skerið í lúðustykin og setjið inn íþau sneið af reyktum
laxi og camembert osti, þrýstið þessu saman.
Hrcerið saman eggin og rjómcmn. Blandið saman hveiti
salti og pipar.
Veltið sneiðunum upp úr kryddhveitinu og síðan upp úr
eggjahrterunni. Steikið ísmjörinu við meðalhita, þá
verður hjúpuinn gullinbrúnn það eru ca. 3-4 mín á livorri
hlið.
Með þessu er hcegt að haj'a ncínast hvað sem er.
Björgvin Arnaldsson
Á eftir er svo ostakaka, góður kostur og einfaldur
Haust hafrakex (magn fer eftir því hversu stórt og djúpt
mótið er sem nota á)
smjör
matargerðar ijómaostur
ijómi
Kirsubeijasósa frá Den gamle fabrik (fæst hjá Kristleifi
og Ástþóri)
Kexið er mulið og þjappað saman með mjúku smjöri
Osturinn og rjóminn þeyttur saman (setja má flórsykur
saman við effólk viil liqfa þetta mjög scett, en sósan ersvo
sœt að það þerf ekki að mínu mati) og síðctn smurtyfir
kexþjöppunina. Að lokum er síðan sósunni helltyfirog
þettci stðcm kœil áður en borið erfram
Síðan ætla ég að skora á Guðmund Ólafsson rafvirkja í Geisla sem næsta
matgæðing en hann eldar bestu gæsir sem ég hef nokkurn tímann fengið.
r
Ohress með vinnubrög lögreglunnar
Ungur maður hafði samband við
blaðið og kvartaði yfir því að
lögregla gerði meiri kröfur til ungra
ökumanna í bænum en til þeirra
sem eldri eru.
"Lögreglan er að hirða filmuplast úr
bílum hjá okkur og er búin að stoppa
eitthvað um sjö unga ökumenn en
fullorðnu bílstjórarnir eru látnir í
friði," segir maðurinn.
Hann segir ólöglegt að vera með
litaðar filmur í rúðum á framhluta
bifreiða hvort sem er bílsjóra- eða
farþegamegin. Hins vegar er löglegt
að vera með litaðar filmur í afturhluta
bifreiða.
" Ég skil vel að það verði að fara að
reglum en mér fmnst að ef gera á
rassíu þá verði að taka alla, ekki bara
unga fólkið. Ég er búin að skrá niður
þá sem eru með filmuplast í sínum
bílum og veit um tíu fullorðna
ökumenn. Við krakkamir tölum
saman og maður verður var við það í
svona litlu bæjarfélagi að það gilda
aðrar reglur um okkur unga fólkið en
jafnt á að ganga yfir alla," segir ungi
ökumaðurinn.
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður,
segir lögreglu hafa sinnt þessu máli
undanfama daga þar sem það er
ólöglegt. "Ég bíð þennan mann
velkominn til mín og hann getur bent
mér á þá borgara sem em að brjóta
reglur án þess að lögreglan sinni því,"
segir Karl Gauti.
9°"
Vestmannaeyingar
Þann 30. nóvember sl. eignuðust Margrét G. Ólafsdóttir og Hjörtur
Sigurðsson dóttur sem skírð hefur verið Ásrún Emma. Hún var 52 sm.
og 3515 grömrn við fæðingu. Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum.
endnrsýnt í kvöld kl. 20.00
/*
A mánudaginn kl. 17.30 verður bein
útsending frá afhendingu viðurkenninga
ársins. Þar verða tilnefndir einstaklingar
sem hafa skarað fram úr á árinu að mati
Frétta.
Fjölsýrt ...fetiframar
Á döfinni 4*
Janúar
4. Dansleikur í Höllinni: Sálin hans jóns míns.
5. Essó deild kvenna: ÍBV - Valur kl. 17.00.
6. Grímuball Eyverja milli 15.00 og 17.00 í Alþýðuhúsinu.
6. Þrellándagleði á malarvellinum við Löngulá.
24. Essó deild kvenna: ÍBV - Víkingur kl. 20.00.
Þú getur fylgsl nánar með hvað er ó döfinni á www.eyjafretlir.is