Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Blaðsíða 10
10
Fréttir
Föstudagur 3. janúar 2003
w
IBV vann
alla sína
leiki á æf-
ingamóti
Um síðustu helgi fór fram æfínga-
mót milli liðaíEssodeild kvennaen
þátttökuliðin voru þrjú, ÍBV,
Haukar og Víkingur. Leikin var
tvöföld umferð og fóru Eyjastelpur
í gegnum mótið án þess að tapa leik
en leikið var á laugardegi og
sunnudegi. Úrslit leikjanna urðu
þau að gegn Víkingum endaði fyrri
leikurinn 26 - 21 og seinni leikurinn
28-21.
Fyrri leikurinn gegn Haukum
endaði með jafntefli 30 -30 en
seinni leikurinn endaði með sigri
ÍBV, 25-21.
Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari
ÍBV sagði að ferðin hefði fyrst og
fremst verið hugsuð til þess að
hrista saman mannskapinn. „Við
höfum auðvitað verið dreifðar um
allan heim, þrjár fóru út til sinna
heimalanda og austurrísku stelp-
urnar komu t.d. í hálfícik í fyrsta
leiknum. Það var stígandi í þessu
hjá okkur, í fyrsta leiknum vorum
við dálítið ryðgaðar en svo náðum
við tökum á þessu og lékum
ágætlega það sem eftir var.
Drög að
deildar-
bikarnum
Fyrir liggja drög að deildarbikar-
keppni KSÍ en keppnin verður með
sama sniði og á síðasta ári, þ.e.a.s.
efri og neðri deild í bæði karla- og
kvennaflokki. ÍBV er að sjálfsögðu
í efri deild og í B-riðli ásamt
Grindavík, Víkingum, Fylki, Val,
Haukum, FH og Þrótti en fyrsti
leikurinn er 23. febrúar.
Kvennaliðið er einnig í efri deild
og þar leika ásamt IBV, Valur,
Stjaman, KR, Breiðablik og
Þór/KA/KS en fyrsti leikur ÍBV er
22. mars.
KFS, sem hefur tekið þátt í
deildarbikarnum síðastliðin þrjú ár,
ákvað að taka ekki þátt í ár.
Framundan
Sunnudagur 5. janúar
Kl. 13.30 ÍBV-ÚMFA 2. fl. karla
Bikar
Kl. 17.00 ÍBV-Valur Essodeild
kvenna
Kl. 11.00 5. fl. karla íslandsmót í
innanhússknattspymu í
Austurbergi.
Miðvikudagur 8. janúar
Kl. 19.00 Fylkir/ÍR-ÍBV SS-bikar
kvenna
Miklir dýrgripir
-á sýningu Ragnars Engilbertssonar
Myndlistarsýning með verkum
Ragnars Engilbertssonar var í
Gallerí Prýði, sýningarsal, 21. til 23.
desember sl. Tuttugu og sjö myndir
voru á sýningunni, unnar með
vatnslitum, olíu og olíupastel.
Verkin em unnin á löngu tímabili
eða allt frá 1942 til dagsins í dag og
þau elstu geta talist heimildir um
umhverfi Eyjanna eins og það var. A
annað hundrað manns sóttu sýninguna
og að sögn Svanhildar Gísladóttur,
sýningarstjóra em margar vatnslita-
myndimar miklir dýrgripir. „Þama
vom frábær olíuverk, sérstaklega
mynd af austurbænum sem að hluta er
farinn undir hraun og Eyjafjallajökull
í baksýn. Myndimar seldust mjög vel
og sýningargestir vom mjög
ánægðir,“ sagði Svanhildur, en lista-
maðurinn dvelur hjá systur sinni í
Kaupmannahöfn um þessar mundir.
EIN af myndum Ragnars.
Mynd Jói listó.
Fundur í skólamálaráði:
Leikskóli skal rísa á kjörtímabilinu
-274 börn á leikskólunum og starfsmenn 68 í 48 stöðugildum
Á fundi skólamálarúðs þann 18.
desember sl. voru lagðar fram
upplýsingar er marka launa- og
tekjuforsendur fjárhagsáætlunar
leikskólanna fyrir 2003.
Kom þar fram að alls em 274 böm
á leikskólunum þremur og starfs-
menn 68 í 48 stöðugildum. Meðal-
vistunartími bama er ansi misjafn eftir
leikskólum, þannig er meðalvist-
unartími bama á Rauðagerði 8,18
klukkustundir.
Á Sóla er meðalvistunartími 6,42
klukkustundir og á Kirkjugerði, þar
sem fíest böm eru í vistun, er
meðalvistunartíminn 5,17 klukku-
stundir.
Fyrirspum kom frá fulltrúum for-
eldra á síðasta fundi skólamálaráðs.
Var hún um hvort fyrirhugaðar væm
framkvæmdir við leikskólann Sóla á
fjárhagsáætlun fyrir árið 2003.
Formaður nefndarinnar upplýsti að
ekki er gert ráð fyrir bygginga-
framkvæmdum f þeirri vinnu sem nú
er unnið að, við fjárhagsáætlun fyrir
árið 2003.
Aftur á móti liggur fyrir að lokið
verði við byggingu leikskóla á Sóla-
lóðinni á kjörtímabilinu en slík
framkvæmd krefst góðs undirbún-
ingstíma. Skólamálaráð samþykkti að
afla nauðsynlegra gagna sem snerta
frekari undirbúning að byggingu nýs
leikskóla á Sólalóðinni.
Fjölsýn:
Vel heppnað Eyjaskaup
Evjaskaup Fjölsýnar var sýnt á
gamlársdag þar sem góðlátlegt grín
var gert að mönnum og málefnum í
Vestmannaeyjum.
Daði Pálsson stóð meðal annarra að
gerð þess og segir viðbrögð bæjarbúa
vera góð. „Þeir sem ég hef hitt og sáu
skaupið em ánægðir og flestir sem við
gerðum grín að em sáttir við þetta.“
Daði segir að undirbúningur og vinna
við skaupið hafi verið mikil. „Eg,
Siggi Braga, Einar Bjöm og Amar
Rikka vomm famir að spá í þetta í júlí
og við hittumst ásamt Svenna seinni
hluta nóvember. Það fór allur des-
ember í skaupið hjá okkur en tökur á
hverju atriði tóku einn til tvo
klukkutíma. Það fór mikill tími í
undirbúning með búningum og öllu
sem til þarf.“
Daða fannst frábærlega gaman að
vinna að þessu og miklu skemmtilegra
að búa til skaupið en að horfa á það.
„Aðalatriðið er að hafa skemmtilega
og góða menn með sér og við stefnum
á annað skaup að ári en konumar
banna okkur að koma nálægt því
næstu sex mánuði," segir Daði hress
að vanda. Hann vildi koma á framfæri
þakklæti til allra sem komu að gerð
skaupsins, ekki síst til fyrirtækja sem
styrktu gerð þess.
Tveir leikir
hjá stelp-
unum
Kvennalið ÍBV leikur tvo leiki nú
strax í upphafi nýs árs. Fyrst tekur
liðið á móti Val í Essodeild kvenna
á laugardaginn og svo leikur liðið
gegn sameiginlegu liði Fylkis og IR
í átta liða úrslitum bikarkeppninnar.
Leikurinn fer fram í Reykjavík.
ÍBV og Valur hafa áður leikið í
vetur og endaði sá leikur með tíu
marka sigri ÍBV, 26 - 16. Leikir
liðanna undanfarin fimm ár hafa
yfirleitt endað vel fyrir IBV,
sérstaklega hin sjðari ár. Valur
hefur ekki unnið ÍBV í deildinni
síðustu þrjú tímabil. I heildina
hefur ÍBV unnið sex leiki, einu
sinni hefur orðið jafntefli og Valur
hefur unnið þrjá leiki en tímabilið
1997-98 var leikin þreföld umferð.
Erfitt að byrja
Vigdís Sigurðardóttir sagði í samtali
við Fréttir að það væri mikilvægt að
komast strax í gang eftir áramótin.
„Það getur verið dálítið erfitt svona
strax eftir áramót en við fóram í
mjög góða æfingaferð um síðustu
helgi og nýttum hana vel. Við
spiluðum fjóra leiki og fyrsti
leikurinn var mjög erfiður. Svo
bættum við okkar leik út mótið
þannig að við ættum að vera
komnar í gírinn fyrir Valsleikinn.
Varðandi bikarleikinn þá eigum við
að sjálfsögðu að vinna hann, annað
væri skandall þó maður eigi aldrei
að segja svona. Við eram hins
vegar með eldri og reyndari
leikmenn sem eiga að klára svona
leiki. Einbeitingin verður hins
vegar að vera í lagi, bæði Valur og
Fylkir/IR era með ungar og
efnilegar stelpur sem geta alveg
strítt okkur ef við bjóðum upp á
það.“
r* •• f
Fjor a
þrettánda
ÞRETTÁNDINN verður
hátíðlegur haldinn á mánudaginn.
Hann er stór í tvennum skilningi í
Vestmannaeyjum, annars vegar er
það grímuball Eyverja sem hefur
verið fastur liður á þrettándanum
í marga áratugi. Þar hafa margir
skemmtilegir búningar litið
dagsins Ijós og má vænta að svo
verði einnig nú.
Þá er það þrettándinn eini sanni
sem hefst með því jólasveinar fara
í halarófu niður af Hánni. Er það
upphafiö að mikilli skrúðgöngu
sem fer um bæinn og endar á
malarvellinum við Löngulág.
Myndin er tekin á grímuballi
fyrir nokkrum árum og þar má
sennilega sjá ýmsa sem í ár arka
með sín börn á grímuballið.