Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Page 14
14
Fréttir
Föstudagur 3. janúar 2003
íþróttaannnáll Frétta 2002 - Knattspyrna:
Umrót í krinsum meistaraflokkana
-á meðan allt var meó kyrrum kjörum í krins um ynsri flokkana - Ensir titlar á árinu
MEISTARAFLOKKUR ÍBV sumarið 2002.
Knattspyrna karla - Meist-
araflokkur
Það var öllum ljóst sem að knatt-
spyrnunni störfuðu að fyrir höndum
ætti meistaraflokkur karla mjög erfítt
tímabil sumarið 2002. Arið áður hafði
verið farið út í aðhaldsaðgerðir,
þannig að leikmannahópurinn var þá
að mestu Eyjamenn. ungir sem aldnir.
2001 náði liðið hins vegar öðru sæti í
deildinni og ljóst að erfítt yrði að
fylgja þeim árangri eftir eða jafnvel
bæta hann. Liðið var í basli nánast allt
sumarið, fallbaráttan var reyndar
óvenju hörð þetta árið og gátu 5-6 lið
fallið þegar lok mótsins nálguðust.
Breytingar á leikmannahópnum
voru í lágmarki fyrir sumarið, Hlynur
byrjaði sumarið með KFS en kom svo
sínu gamla félagi til hjálpar þegar sex
umferðir voru búnar af mótinu.
Félagið losaði sig við Alexander Ilic,
Tommy Schram kom ekki aftur auk
þess sem Stoke-strákamir Lewis Neal
og Marc Goodfellow héldu sig á
heimaslóðum.
IBV fékk tvo erlenda leikmenn til
liðsins, fyrst kom Gareth Graham,
norður-írskur nagli sem sýndi lítið eða
allt þar til að honum var sagt upp, þá
blómstraði hann. Daninn Niels Bo
Daugaard kom einnig til liðs við liðið
í enda júlí. Þar var á ferð sterkur
leikmaður sem því miður nýttist illa
þar sem hann meiddist fljótlega eftir
að hann kom og var meira og minna
meiddur allt tímabilið.
Undirbúningstímabilið gekk sinn
vanagang, nema vegna aðhaldsað-
gerða varð ekkert úr því að liðið færi í
æfingaferð erlendis. 1 deildarbik-
amum spilaði ÍBV í B-riðli efri deildar
en í sama riðli voru lið eins og KA,
Fram, Keflavík og Valur. í átta liða
riðli endaði ÍBV í því sjöunda og
komst því ekki áfram í úrslit.
íslandsmótið
Það sem var áberandi í upphafí Is-
landsmótsins var hversu lítið sjálfs-
traust leikmenn liðsins höfðu, þrátt
fyrir að vera silfurliðið frá því árið
áður. Hlynur Stefánsson, hafði lagt
skóna á hilluna og virtist vanta
leiðtoga í hópinn. Liðið byrjaði á að
leika á útivelli gegn KA og nældi í eitt
stig fyrir norðan. I kjölfarið fylgdu
aðeins fjögur stig úr næstu fimm
leikjum og menn farnir að ókyrrast.
Sunnudaginn 23. júm mætti IBV KR á
Hásteinsvellinum og í liði heima-
manna var kominn aftur Hlynur
nokkur Stefánsson. Hvort innkoma
hans í liðið hafi orðið til þess að ÍBV
sigraði KR 3-0 skal ósagt látið en
sjálfstraust liðsins jókst um helming.
En Adam var ekki lengi í Paradís,
liðið steinlá fyrir Skagamönnum á
Skipaskaga í næsta leik 4-1 og allt
virtist fara í sama farið aftur. Liðið
sigraði svo FH 2-0 10. júlí en biðin
eftir næsta sigri var mörgum löng og
erfíð. 45 dögum síðar kom loksins að
því þegar liðið mætti Þór á heimavelli
en í millitíðinni hafði liðið m.a. tapað
gegn Fram á heimavelli, annað árið í
röð.
Þegar þarna var komið sögu var
öllum Ijóst að liðið var í harðri fall-
baráttu og sá möguleiki sannarlega
fyrir hendi að liðið félli og framundan
voru tveir erfíðir leikir, fyrst gegn KR
á útivelli og svo gegn ÍA á heimavelli.
Strákarnir stóðust prófíð á loka-
sprettinum, gerðu jafntefli við KR og
komu fram fullkominni hefnd gegn ÍA
með 4-1 sigri á þeim. Þar með var
ÍBV búið að tryggja sér áframhaldandi
sæti í efstu deild. Síðasti leikurinn var
því nánast bara formsatriði enda var
IBV með ntun betri markatölu en
bæði Keflavík og Fram. Svo fór að
þessi þrjú lið voru öll jöfn með 20 stig
en hlutskipti drengjanna úr bítlabæn-
um var að falla niður um deild ásamt
Þór frá Akureyri.
Bikarkeppnin
í bikarkeppninni skrölti IBV alla leið í
undanúrslit en sigrar IBV í bikar-
keppninni þetta árið voru alls ekki
sannfærandi. Liðið lenti í talsverðu
basli með mun slakari lið sem sýnir
hversu lágt plan það gat farið niður á.
IBV fékk heimaleiki í öllum þremur
fyrstu umferðunum sem fleytti liðinu
langt en tæpir sigrar gegn ung-
mennaliði FH og 1. deildarliðum
Þróttar og Leifturs/Dalvíkur vöktu
athygli. Þá var komið að undanúrslit-
um og þar mætti IBV Fram á
„hlutlausum" Laugardalsvellinum,
fyrir framan tæplega 800 manns.
Leikurinn tapaðist naumlega, Páll
Hjarðar kom ÍBV yfir en Framarar
skoruðu tvö mörk undir lokin og
tryggðu sér þar með sæti í úrslita-
leiknum.
Evrópukeppnin
IBV tók þátt í Evrópukeppninni eftir
árs fjarveru úr henni en liðið tók þátt í
Evrópukeppni félagsliða. Þar náði
IBV að standa í atvinnumannaliðinu
AIK frá Svíþjóð sem aftur á móti sýnir
hversu sterkt lið IBV gat verið þegar
sá gállinn var á þeim. Utileikurinn
tapaðist 2-0 og þurfti IB V því að vinna
heimaleikinn 3-0 til að komast áfram.
Seinni leikurinn byrjaði fjörlega,
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði
strax á þriðju mínútu og Svíarnir
göptu. En atvinnumennimir létu ekki
slá sig út af laginu, gestimir skoruðu
tvö mörk í fyrri hálfleik og bættu við
einu í þeim síðari og sigmðu því í
viðureigninni samanlagt 5-1. IBV
verður svo ekki með í Evrópukeppn-
inni næsta sumar.
Það sem eftir stendur eftir sumarið
er fyrst og fremst sú ákvörðun að láta
Njál Eiðsson taka pokann. Sú ákvörð-
un fór misjafnlega í stuðningsmenn
enda var tímasetningin afar vafasöm,
stutt eftir af mótinu og næsti leikur var
undanúrslit í bikarnum. En liðið hélt
sæti sínu í deildinni og þar með má
kannski réttlæta ákvörðunina en
undirritaður er á þeirri skoðun að bíða
hefði mátt fram yfir lok tímabilsins.
Næsta tímabil
Það hafa ekki orðið miklar hræringar í
leikmannamálum liðsins en manna-
breytingar hafa orðið í knattspyrnu-
ráði. Viðar Eltasson mun stýra ráðinu
næsta sumar og hefur hann fengið til
liðs við sig Jóhann Georgsson og
Gísla Hjartarson en Magnús Valsson
og Astþór Jónsson halda áfram.
Ráðið hefur tryggt sér starfskrafta
flestra þeirra sem voru með liðinu,
fyrir utan Hjalta Jónsson og ákveðið
var að semja ekki að nýju við Tómas
Inga Tómasson. Þá tryggði ráðið sér
starfskrafta Tryggva Bjamasonar,
efnilegs vamarmanns úr KR. Þá hefur
Hlynur Stefánsson gefið það út að
hann sé hættur og Ingi Sigurðsson
MEISTARAFLOKKUR ÍBV sumarið 2002.