Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Page 16
há rsnyrtistofa
SÍMI -481 3€>€,€>
LKHTERHft
VEITINGAHÚS
BÁRUSTÍG 11 hT A ^
SÍMI 481 3393
Góður matur. Góð þjónusta.
Kostar minna en þó heldur.
Senc H aakstur
- imáæþr
Vilhjálmur B * 481-2943 r b 897-1178 ergsteinsson >£MDÍF£HðABÍLl
STOLTIR foreldrar, Sigmundur, Kristín Rós, Ása og sú nýfædda.
Byggðakvótinn hefndargjöf:
Úrkynjun og sósíal-
ismi að vera með
pólitíska potta
-segir Magnús Kristinsson, formaður
Utvegsbændafélagsins
Nýlega úthlutaði sjávarútvegs-
ráðherra byggðakvóta og komu
um fjörutíu tonn í hlut Eyja-
manna og er þetta í fyrsta skipti
sem eitthvað kemur til Eyja sem
byggðakvóti.
Má ætla að um 180 tonn hafi verið
tekin af útgerðarmönnum í Vest-
mannaeyjum í þennan sameiginlega
pott sem síðan ráðherra útdeilir úr.
Magnús Kristinsson, útgerðarmað-
ur og formaður Útvegsbændafé-
lagsins, segist ekki hafa reiknað
þetta út nákvæmlega en einhverjir
tugir tonna séu teknir í þetta um-
fram það sem kemur til baka.
„Þetta er eitt allsherjar rugl og það
á að afleggja þetta. Það á ekki að
vera með neina pólitíska potta í
kvótakerfmu. Það er úrkynjun, allt
sem pólitíkin braskar með er
úrskynjun og sósíalismi og ég er
mjög mótfallinn því,“ sagði Magn-
ús og bætti við að hann hygðist ekki
taka þátt í því að veiða þetta fyrir
nokkurn í Eyjum.
Fyrsta barn ársins fæddist í Eyjum:
Jólabarnið varð að nýársbarni
Fyrsta barn ársins fæddist á
Heilbrigðisstofnun Vestmanna-
eyja á nýársmorgun, nítján
marka stúlka og 56 sentimetra
Iöng. Foreldrar hennar eru Asa
Ingibergsdóttir og Sigmundur
Kafnsson en fyrir eiga þau dótt-
urina Kristínu Rós, þriggja ára.
Ása segir að hún hafi verið sett á
24. desember en hún vonaðist eftir
því að barnið fæddist fyrir jól svo
hún yrði komin heim fyrir hátíðina.
„Kristín Rós var alveg klár á því að
þetta yrði jólabam og ætti því að
heita Jesús. Ég var auðvitað farin
að bíða en var ekkert að stfla inn á
nýja árið en Simmi var alveg á-
kveðinn í að barnið fæddist á nýárs-
dag. Ég fékk fyrst verki milli þrjú
og fimm á nýársnótt og missti vatn-
ið um sjö. Við vorum komin upp á
sjúkrahús um klukkan hálf átta um
morguninn. Fæðingin gekk mjög
vel og stúlkan fæddist klukkan
9.42. Sjálf vissum við að þetta yrði
stelpa en sögðum engum frá því,“
segir Ása
Fjölskyldan fluttist hingað sl.
haust en Ása útskrifast sem við-
skiptafræðingur á endprskoðenda-
sviði frá Háskóla íslands 22.
febrúar nk. Sigmundur er bakari og
starfar hjá Magnúsarbakaríi en hann
vann m.a. hjá Jóa Fel þegar þau
bjuggu í Reykjavík. Þau eru mjög
ánægð að vera komin aftur til Eyja
og segja það frábært auk þess sem
mun ódýrara sé að búa í Eyjum en í
Reykjavík. „Bensínkostnaður er til
dæmis mun lægri hjá okkur og við
erum ánægð að vera héma. Kristín
Rós fékk strax pláss á Sóla og er
mjög ánægð þar,“ segir Ása.
Sigmundur minnist á að fólk hér
hafi meiri tíma fyrir fjölskylduna
sem annars fer í ferðir til og frá
heimili. „Það er fínt að vera héma
þó svo að vömúrval sé ekki eins
mikið og í Reykjavík. Við verðum
hins vegar að halda því þjónustu-
stigi sem hér er og mér finnst að
Vestmannaeyingar verði að beina
viðskiptum sínum innan bæjar-
félagsins til þess að svo verði áfram.
Mér virðist umsvif vera minni hjá
fyrirtækjum hér en var fyrir fjómm
árum þegar við fluttum héðan. Við
erum hins vegar ánægð að vera
komin heim aftur,“ segir Sig-
mundur.
VIKUTILBOÐ
3. jan. - 9. jan.
SS Helgarsteik
vnú41098,-Sim-%,
Mjúkís 2 Itr.
VNÚ4 598,- */ K 779,- vkl
7up 2ltr.
Verð
r 129,-V, Xiru4r179,-V