Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 20
LKwrznra VEITINGAHÚS BÁRUSTÍG 11 T A ^ SÍMI 481 3393 IGóÖur matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þú heldur. fcÍílO! B9 - innmmþf Vilhjálmur B ! tr 481-2943 * 897-1178 et ergsteinsson >£Aúif£AdA6tLL VIGDÍS Sigurðardóttir, markmaður meistaraflokks kvenna í handbolta var valin íþróttamaður Vest- mannaeyja árið 2002. Er hún vel að titlinum komin sem einn af lykilmönnum bikarmeistara ÍBV 2002. Málefni Vestmannaeyja rædd í ríkisstjórn: Viðurkenna sérstöðu Eyjanna Á mánudaginn mættu þingmenn Suðurlandskjördæmis, Guðni Agústsson landbúnaðarráðherra, ísólfur Gylfi Pálmason, Lúðvík Bergvinsson, Drífa Hjartardóttir og Kjartan Ólafsson á fund stétt- arfélaga í Vestmannaeyja þar sem farið var yfir stöðu mála í Vest- mannaeyjum í skugga vaxandi atvinnuleysis. I gær voru 150 á atvinnuleysisskrá sem er meira en í janúar 2001, þegar bærinn var í sárum eftir Is- félagsbrunann. Á fundinum kom fram að sérstakar aðstæður í Vest- mannaeyjum gerðu það að verkum að aðgerða væri þörf strax. Daginn eftir var málið rætt í ríkis- stjórn og voru ráðherrar sammála um að taka yrði tillit til aðstæðna í Vestmannaeyjum sem hefðu orðið fyrir ýmsum áföllum undanfarin ár. Samkvæmt upplýsingum Frétta af fundinum lagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra, til að farið yrði yfir málið. Þegar atvinnuleysið var mest eftir Isfélagsbrunann, í janúar 2001, voru 112 skráðir atvinnulausir í Eyjum. Á vertíðinni það ár voru 47 á skrá, 105 í maí en upp úr því dró verulega úr atvinnuleysi. I haust fór aftur að sfga á ógæfuhliðina og í desember voru 112 atvinnulausir en núna eru þeir 150. Þetta gerist þrátt fyrir að íbúum hafi fækkað úr 4522 1. desember 2000 í 4429 I. desember sl. eða um 93. Útivistarfólk í heimsókn -Halda hér þorrablót og skoða sig um Kúmlega fjörutíu félagar úr Úti- vist ætla að koma til Eyja helgina 31. janúar til 2. febrúar, fara í gönguferðir um Heimaey og halda þorrablót félagsins á laug- ardagskvöldinu. Fararstjórar eru Fríða Hjálmars- dóttir og Jakob Þórhallsson og Útivistarfélagar munu m.a. fara á foma sögustaði og skoða gamlar og endurgerðar minjar. Einnig verða gosstöðvarnar skoðaðar og fólki kynntar þær breytingar sem urðu við eldgosið 1973. Gönguferðin verður ekki eingöngu fyrir félaga Útivistar heldur eru allir þeir sem vilja slást í för með göngu- fólkinu velkomnir. I þorraferðum Útivistar er venja að fólk komi með sinn þorramat og leggi á borð og haldi sameiginlegt þorrablót. Blótið verður haldið á laugardagskvöldið í Skátaheimilinu við Faxastíg en vissara er fyrir þá sem vilja vera með að skrá sig hjá Útivist, að því er kom fram hjá Lóu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Útivistar. Barnaskólinn: Þakkarbréf I tilefni þess að þrjátíu ár eru frá því að eldgos hófst í Eyjum eru krakkar í Barna- skóla Vestmannaeyja að út- búa sendingu til allra grunn- skóla. Vilja þeir þannig minna á atburðinn og líka þakka þær móttökur sem börn frá Eyjum fengu í grunnskólum landsins. Allir nemendur skólans taka þátt í verkefninu og hátt í tvö hundruð bréf verða póstlögð í dag, 23.janúar. Hjálmfríður Sveinsdóttir, skólastjóri segir að Valgeir Jón- asson, smíðakennari, eigi hug- myndina. Hver bekkur sendir sex til átta bréf og í þeim eru ýmist teikningar eða Ijósmynd- ir frá Eyjum og vikur úr Eld- felli. Hún segir krakkana hafa lagt sig fram við verkefnið og nemendur og kennarar haft gaman af. Vonaðist hún til að viðtakendur yrðu ánægðir. Byrjar með klukknahringingu Blysförin í kvöld hefst með því að klukkum Landakirkju verður hringt kl. 19.25. Herra Karl Sigurbjörnsson biskup Islands flytur hugvekju, bæn og blessun á Básaskersbryggju. Aðrir fyrrverandi prestar Eyjamanna taka og þátt í göngunni ásamt heimaprestum. Ingi Sigurðsson bæjarstjóri og Arnar Sigurmundsson flytja ávörp. Lúðrasveit Vestmannaeyja spilar. Kór Landakirkju og Samkór Vest- mannaeyja syngja. Og Heimaklettur verður lýstur upp. VIKUTILB0Ð 23. jcm. - 29. jan. pylsur 1 kg Stubba spóla kr. 1398,- Sprite 2 Itr Maarud skrúfur 100 gr Gevalia 550 gr Kelloggs Special K 750 gr Frucfis styling Maryland kex value pack Anton Berg marcipan brauð Elitess bitar+Góu rús sampakk Verð Nú 99,- 158,- 299,- 499,- 479,- 98, - 99, - 369,-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.