Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Qupperneq 14

Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Qupperneq 14
14 Fréttir Fimmtudagur 20. febrúar 2003 Landa- KIRKJA Fimmtudagur 20. febrúar Kl. 10.00 Mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu. Sr. Þorvaldur Víðis- son. Kl. 16.30 Litlir lærisveinar, yngri hópur. Kórstjóri Guðrún Helga Bjamadótúr. Föstudagur 21. febrúar Kl. 13.00 Litlir lærisveinar, eldri hópur. Kórstjóri Guðrún Helga Bjamadóttir. Sunnudagur 23. febrúar, Konu- dagur Kl. 11.00 Barnaguðsþjónusta í Landakirkju. Feður hvattir til að mæta með bömin í kirkju. Mikill söngur, guðspjall, brúður, bænir og létt stemmning. Sr. Þorvaldur Víðisson og bamafræðaramir. Kl. 14.00 Guðsþjónusta á konu- degi. Konur lesa ritningarlesu-a og em sérstaklega boðnar velkomnar. Organisti Gíslína Jónatansdóttir. Kór Landakirkju syngur. Sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 20.00 Æskulýðsfélag Landa- kirkju og KFUM&K. Fundur í Landakirkju. Hulda Líney Magn- úsdóttir og leiðtogamir. Mánudagur 24. febrúar KI. 17.30 Æskulýðsfélag fatlaðra eldri hópur. Hulda Líney Magnús- dóttir, Ingveldur Theódórsdóttir og sr. Kristján Bjömsson. Þriðjudagur 25. febrúar Kl. 15.00 Kirkjuprakkarar, 6-8 ára krakkar í kirkjunni. Undirbúningur fyrir æskulýðsdag. Sr. Þorvaldur Víðisson og leiðtogamir. Miðvikudagur 26. febrúar Kl. 16.20 TTT yngri, 9-10 ára krakkar í kirkjunni. Undirbúa æskulýðsdag. Sr. Þorvaldur Víðis- son og leiðtogamir. Kl. 17.30 TTT eldri, 11-12 ára krakkar í kirkjunni. Undirbúa æskulýðsdag. Sr. Þorvaldur Víðis- son og leiðtogamir. Kl. 20.00 Opið hús í KFUM&K fyrir æskulýðsfélagið. Hulda Líney Magnúsdóttir. Hvítasunnu -KIRKJAN Fimmtudagur 20. febrúar Kl. 20.30 Biblíufræðsla, komið og kynnist Biblíunni, bók bókanna. Allir hafa gott af því og em velkomnir. Föstudagur 21. febrúar Kl.20.30 Unglingakvöld, ungt fólk hittist til að gleðjast í Guði. Laugardagur 22. febrúar Kl. 20.30 Bænasamvera. Guð er megnugur að blessa og styrkja. Sunnudagur 23. febrúar Kl. 13.00 Sunnudagaskólinn, nú er kátt í kirkjunni fyrir alla krakka. Kl. 15.00 SAMKOMA Gerir Guð kraftaverk? Komdu og athugaðu hvað er í gangi. Lofsöngur og lifandi orð Guðs. Allir hjartanlega velkomnir. Þriðjudagur 25. febrúar Kl. 17.00 Bamastarf fyrir 9-12 ára, margt skemmtilegt gert. Bænastundir hvem virkan dag kl. 7.30. Aðventkirkjan Laugardagur 22. febrúar Kl. 10.30 Biblíurannsókn. Knattspyrna: Fjórði flokkur kvenna ÍBV íslandsmeistari Fjórði flokkur kvenna lék um helgina í úrslitum í Islandsmótinu í innan- hússknattspymu sem fór fram í Austurbergi. A laugardeginum fóm fram undanriðlar en þar var leikið í tveimur þriggja liða riðlum og tvö efstu liðin komust í undanúrslit. IBV var í riðli með Einherja og Víkingi Reykjavík og unnu stelpumar báða leikina nokkuð ömgglega. í undanúrslitum mætti ÍBV Hauk- um og urðu lokatölur þar 2-1 fyrir ÍBV en mörk ÍBV skomðu þær Svava Kristín Grétarsdóttir og Kolbrún Inga Stefánsdóttir. í úrslitaleiknum sjálfum mætti ÍBV Grindavík. Leikurinn var æsispenn- andi og komst ÍBV yfir 1 - 0. Grindvíkingar svömðu með tveimur mörkum en Eyjastúlkur börðust vel og skomðu síðustu tvö mörk leiksins, sigmðu því 3-2 og em íslands- meistarar í innanhússknattspymu 2003. Mörk IBV í úrslitaleiknum skomðu þær Þórhildur Ólafsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Kolbrún Inga Stef- ánsdóttir. ISLANDSMEISTARARNIR komu heim með bikarinn á mánudaginn og var tekið á móti þeim með blómum. Hressó og Fréttir: Aldís, Heiða og Pálína tóku áskoruninni Þrjár konur tóku áskorun Hressó og Frétta um að taka upp breyttan lífsstíl með aukinni hreyfingu og breyttu mataræði. Þær hafa sett sér það takmark að ná af sér samtals um 30 kílóum á næstu tólf vikum. Þær verða vigtaðar vikulega og verða tölurnar birtar í Fréttum í hverri viku. Jóhanna Jóhannsdóttir, íþróttafræð- ingur, hefur tekið konurnar að sér og fylgir þeim úr hlaði með ýmsum ráð- leggingum, bæði í mataræði og hreyfmgu. Fyrir það fyrsta eiga þær að setja sér raunhæf markmið. Mikil áhersla er lögð á leikfimi sem miðast bæði við að konurnar brenni fitu og byggi sig upp. Þær eiga að mæta í Hressó sex sinnum í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er lögð áhersla á styrktaræfmgar og brennsla er á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þær fengu í hendur möppu með ýmsum ráðleggingum, m.a. inniheldur hún nákvæman matseðil sem er þó ekkert slor og býður upp á einn frjálsan dag í viku. Fréttum og Hressó finnst ánægju- legt að fá konumar þrjár til að taka áskoruninni um leið til betra lífs og við óskum þeim Aldísi, Heiðu og Pálínu alls hins besta og megi þær allar ná settu marki. Vanlíðan að bera þetta allt saman Aldís Atladóttir er elst kvennanna, 43 ára og á ijögur böm. Hún er í dag 98,5 kíló og stefnir að því að missa tíu kíló á næstu tólf vikum. „Það er fyrst fremst vanlíðanin af því að bera þetta allt saman,“ sagði Aldís þegar hún var spurð um ástæðu þess að hún ákvað að taka áskor- uninni. „Mér fannst kominn tími til að gera eitthvað í málunum. Litla dóttirin er líka byrjuð í Hressó og það er því kjörið að mæta með henni.“ Aldís hefur reyndar tekið aðeins forskot á sæluna því hún byrjaði í TILBÚNAR. Heiða, Aldís og Pálína tóku áskoruninni og ætla næstu tólf vikurnar að segja lesendum Frétta frá því hvernig gengur. Verða tölur um árangurinn birtar í hverri viku. Hressó um miðan janúar og hún finnur strax mikinn mun. „Eg hef fundið mikla breytingu, þolið hefur aukist, ég finn fyrir vellíðan sem ég hef ekki fundið fyrir lengi og þetta er allt annað og betra líf.“ Hvað fannst þér erfiðast? „Að breyta mataræðinu," svaraði Aldís. „Mér finnst ég þurfa að borða alltof mikið því nú veit ég hvað ég borðaði vitlaust áður. Mig langar að snúa mér enn meira yfir í grænmeti og ávexti án þess að taka allt kjöt út,“ sagði Aldís sem horfir björtum augum til næstu tólf vikna. Vil losna við slenið Heiða Marinós er 29 ára og á tvö böm. Hún hefur sett sér það takmark að ná af sér 15 kílóum. „Eg var í leikfimi fyrir mörgum árum,“ segir Heiða þegar hún er spurð að því hvort þetta séu hennar fyrstu kynni af leikfimi en af hveiju tók hún áskoruninni? „Það er nú aðallega til að ná af sér þessu sleni. Það fylgir því ákveðið slen að vera með aukakíló og mér finnst að ef við náum árangri sé gott að geta miðlað því til annarra eins og við ætlum að gera í gegnum Fréttir." Heiða er núna í raun og vem að fara í sitt annað átak því á síðasta sumri náði hún af sér 20 kílóum og hefur henni tekist að halda því marki. „Ég veit því hvað ég er að fara út í en núna byrja ég á að taka mataræðið til endur- skoðunar og svo er það að sjálfsögðu þjálfunin á Hressó sem er stóra atriðið. Ég hlakka rosalega til að byija og er til í hvað sem er,“ sagði Heiða að lokum. Orðin þreytt á útlitinu Pálína Buch er 34 ára og á tvö böm. Hennar markmið er að ná af sér 16,2 kg. „Ég kvíði fyrir því að láta upp hvað ég er þung,“ sagði Pálína sem er 116,5 kg. ,,Ég var orðin þreytt á að líta svona út, það er erfitt fyrir sálina að vera svona," segir Pálína og vísar þar til aukakílóanna. „Ég hætti að reykja fyrir ári og þá byrjaði maður að þyngjast fýrir alvöru." Hvað um mataræði? „Jóhanna gefur okkur upp matseðil og mælir með fæðubótarefnum sem hún ætlast til að við tökum með. Ég er spennt að takast á við þetta, það verður erfitt að láta fylgjast með sér en um leið er það hvetjandi fyrir okkur að standa okkur,“ sagði Pálína að lokum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.