Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Side 15

Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Side 15
Fimmtudagur 20. febrúar 2003 Fréttir 19 Handbolti kvenna, bikarkeppnin: Hvað segja fyrirliðarnir um úrslitaleikinn Báðar eru sÍQurvissar ÍBV-stelpurnar æfa stíft fyrir leikinn laugardaginn þegar þær mæta Haukum í bikarnum. Það hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum að um helgina leika IB V og Haukar til úrslita í bikarkeppni kvenna. Leikurinn fer fram, eins og venjulega, í Laugardalshöll og má búast við mikilli stemmningu enda em þessi tvö lið með stærstu hópa stuðn- ingsmanna í kvennaboltanum. Liðin eiga saman þó nokkra sögu í bikamunt og þegar gluggað er í henni kemur í ljós að á síðustu fimm ámm hafa liðin alltaf mæst nema 1999 þegar bæði lið töpuðu fyrir Fram sem varð bikarmeistari það árið. Annað sem kemur í ljós er að Haukar hafa aðeins einu sinni slegið IBV úr keppni í bikamum síðustu fimm ár en það var árið 2000. I vetur hafa liðin leikið tvívegis, fyrst mættust þau í Eyjum í október sl. og þá hafði ÍBV betur, 27-22. Sunnudaginn 26. janúar mættust liðin svo á heimavelli Haukanna og þá höfðu Hafnfírðingar betur, 27-25 en það var jafnframt fyrsti tapleikur IBV í vetur. Fréttir slógu á þráðinn til fyrir- liðanna, þeirra Ingibjörgu Jónsdóttur og Hörpu Melsted og spurðu þær út í úrslitaleikinn sjálfann. Munum úrslitaleikinn 2001 Harpa Melsted er fyrirliði Hauka og jafnframt einn leikreyndasti leikmaður liðsins. Hún sagði að allar væm heilar sem hafa verið að spila undanfarið en Haukar höfðu fyrr í vetur misst tvo leikmenn í meiðsli og em þeir enn meiddir. „Það er auðvitað mikil stemmning hjá okkur enda emm við með leik- menn sem vita um hvað úrslitaleikir snúast um. Þetta er leikur sem allir vilja komast í- og við ætlum okkur stóra hluti. Við sem spiluðum úrslitaleikinn 2001 munum vel eftir honum þar sem IBV nánast stal af okkur sigrinum. Það er kominn tími til að hefna fyrir það.“ Hvað erþað sem ber að varast (leik ÍBV? „Ég ætla auðvitað ekki að ljóstra því upp hvað við ætlum að gera í leiknum en ÍB V er með sterkar skyttur sem verður að stoppa. Þá em þær líka með Vigdísi í markinu og við verðum að passa okkur á því að skjóta hana ekki í gang, vanda skotin. Þessi lið em annars álíka sterk en ólík. Við höfum spilað tvisvar við IBV og liðin hafa unnið sitt hvom leikinn sem sýnir að þetta getur bmgðið til beggja vona.“ Hvemig endar leikurinn ? „Ég held að það verði mikill hraði í leiknum, mikið skorað og mikið af mistökum. Eigum við ekki að segja að við tökum þetta 28 - 27.“ Alltaf jafn gaman Ingibjörg Jónsdóttir er þrautreynd þegar kemur að því að spila úr- slitaleiki en hún hefur tekið þátt í tveimur síðustu bikarúrslitaleikjum, en í öðmm var hún á bekknum enda ófrisk árið 2001. Ingibjörg segir að það sé alltaf jafn gaman að komast í bikarúrslitaleikinn. „Þetta er leikur sem allir vilja komast í enda er stemmningin mikil á pöllunum. Það er allt í húft í einum og sama leiknum og þú færð ekki annað tækifæri. Mér fínnst andinn í hópnum góður hjá okkur, spennu- stigið fer hækkandi með hverjum deginum en við ætlum fyrst og fremst að hafa gaman af því að spila þennan leik, og að sjálfsögðu að vinna líka,“ segir Ingibjörg og hlær. Hver er helsti styrkleiki Hauka? „ Ég veit ekki hvort hægt er að segja svona en mér fínnst Hanna G. Stef- ánsdóttir vera helsti styrkur þeirra. í síðasta deildarleik milli liðanna þá skoraði hún meira en helminginn af mörkum þeirra þannig að við þurfum að stoppa hana. Það er mikið af hraðaupphlaupum þannig að við verðum líka að vanda skotin í sókninni svo þær fái ekki hraðaupp- hlaup.“ Hvernig kemur svo leikurinn til með að enda? „Mér er ekkert vel við að spá en við skulum segja að við vinnum þetta með þremur mörkum, engin framlenging, við klárum þetta bara í venjulegum leiktíma." Handbolti kvenna, Essodeild: FH 22 - IBV 29 Anna 03 Sylvia lóru Yngri flokkarnir: Asætis árangur hjá stelpunum Unglingaflokkur lék tvo leiki um helgina, fyrst var leikið gegn FH á föstudeginum og svo gegn Víking/ HK á laugardeginum. IBV tapaði fyrri leiknum gegn FH 25-16 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12-6 fyrir FH. Mörk ÍBV: Aníta Ýr Eyþórsdóttir 6, Ester Oskarsdóttir 5, Björg Olöf Helgadóttir 2, Þórsteina Sigur- bjömsdóttir 2, Sæunn Magnúsd. 1. Gegn Víking/ HK gekkÍBV hins vegar aðeins betur en þess má geta að í ferðinni voru aðeins sjö leik- menn þannig að enginn skipti- maður var með í för. Leikurinn gegn Víking/HK endaði með jafntefli. 18-18 en staðan f hálfleik var 9-10. Mörk ÍBV: Þórsteina 4, Ester 4, Björg 4, Hildur Jónsdóttir 3, Aníta 2, Sæunn 1. Fjórði flokkur kvenna lék einnig helgina 8. til 9. febrúar en þá var leikin ein umferð í riðli stelpnanna. ÍBV lék þtjá leiki, þær unnu KA 15 - 13 og Völsung 12 - 8 en töpuðu fyrirFH 14- 17. ÍBV lék gegn FH á laugardaginn, liðið rétt slapp með flugi um morg- uninn en fljótlega upp úr hádegi var orðið ófært. Leikurinn þótti vera tilþrifalítill, ÍBV hafði yfirhöndina nánast allan tímann og sigraði með 22 -29. Ingibjörg Jónsdóttir lék ekki með vegna veikinda en hún hefur í vetur verið einn sterkasti leikmaður liðsins. ÍBV lék gegn Þór frá Akureyri á þriðjudag en Þórsarar eru í mikilli baráttu um sæti í úrslitum íslands- mótsins. Það kom því fáum á óvart að þeir skyldu byija betur í leiknum og fljótlega náðu þeir undirtökunum. Eyjamenn létu hins vegar ekki slá sig út af laginu og sneru leiknum sér í hag og náðu mest ijögurra marka forystu í fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 16 -13 en lokatölur vom 31-32 gest- unum í hag. Seinni hálfleikur fór einnig ágæt- lega af stað, ÍBV var með 3-4 marka forystu framan af en um miðjan hálf- leikinn hmndi sóknarleikur liðsins eins og spilaborg. Tveimur leikmönn- um fleiri, í stöðunni 26-26 tókst Anna Rós Hallgrímsdóttir leysti hana af hólmi og þótti standa sig prýðilega. IBV byrjaði betur í leiknum og náðu stelpumar fljótlega þægilegri forystu án þess þó að ná að hrista Hafnftrðinga alveg af sér. Staðan í hálfleik var 11-15 fyrir ÍBV og Hafnfirðingar ennþá inni í myndinni. Seinni hálfleikur var á svipuðum nótum og sá fyrri, ÍBV byrjaði Eyjamönnum ekki að skora en í staðinn skomðu gestimir tvo mörk og vom komnir með pálmann í hend- umar. Undir lokin gat sigurinn endað hvomm megin sem var og allt leit út íyrir að liðin myndu skilja jöfn eftir að Sindri Olafsson hafði jafnað metin þegar aðeins tíu sekúndur voru eftir. En einum leikmanni færri tókst ÍBV ekki að koma í veg fyrir að gestimir skomðu sigurmarkið og nældu Akur- eyringar sér því í dýrmæt stig. Með örlítilli heppni og meiri ein- beitingu þá hefði ÍBV án efa tryggt sér sigurinn. Leikmenn liðsins tóku slæmar ákvarðanir í sókninni þegar mest á reyndi, sem verður að skrifast á kostum reyndar af meiri krafti en í þeim fyrri og náði átta marka forystu. Anna Yakova og Sylvia Strass voru allt í öllu og skomðu samtals 22 mörk af 29 sem eru tæp 76 % af mörkum liðsins. Mörk ÍBV: Anna Yakova 12, Sylvia Strass 10, Anna Rós Hallgrímsdóttir 2, Ana Perez 2/1, Birgit Engl 1, Alla Gorkorian 1/1, Helle Hansen 1. Varin skot: Vigdís Sigurðard. 14/2 fyrst og fremst á reynsluleysi. Það jákvæða var hins vegar baráttan í vöminni, þar sem Sigþór Friðriksson stýrði sínum mönnum eins og hann hefði 10 ára reynslu að baki. Sigþór átti fínan leik, skoraði sjö mörk úr sjö tilraunum og athyglivert að tveir markahæstu menn IBV í þessum leik, þeir Sigþór og Davíð Oskarsson, em báðir aðeins tvítugir. Mörk ÍBV: Sigþór Friðriksson 7, Davíð Þór Oskarsson 6/2, Robert Bognar 5, Erlingur Richardsson 3, Sigurður Bragason 3, Sigurður Ari Stefánsson 3, Kári Kristjánsson 2, Sindri Ólafsson 1, Michael Lauritsen 1. Varin skot: Viktor Gigov 13. Handbolti karla, Essodeild: IBV 31 - Þór 32 Heldur klaufalest hjá Eyjamönnum Dregið í bik- arnum Þó að enn séu um þrír mánuðir í að knattspymuvertíðin hefjist á Fróni þá er búið að draga í fyrstu umferð bikarkeppni KSI. Bæði karla- og kvennalið ÍBV sitja hjá í fyrstu umferð en KFS kemur til með að mæta nágrönnum sínum frá Hveragerði, Hamri, fimmtudaginn 22. maí í Hveragerði. Ef KFS tekst svo að leggja liðið að velli munu Eyjamenn fá í heimsókn sigur- vegara úr viðureign ungmennaliða Grindavíkur og Fram en áætlað er að sá leikur fari fram í byrjun júní. Eftir það eru 32ja liða úrslit en þangað hefur liðinu tekist að komast síðustu tvö ár. Jafntefli gegn HK Karlalið ÍBV lék einn æfingaleik um helgina en þá lék liðið gegn HK. Leikurinn fór fram á sunnu- daginn og var leikið í Fífunni. Úrslit leiksins urðu 1-1 en mark ÍBV skoraði Bjamólfur Lárasson eftir að HK hafði komist yfir en ÍBV stillti aðeins upp þeim leik- mönnum sem æfa með liðinu 1 Reykjavík þar sem ekki var færl milli lands og Eyja. ÍBV leikur svo sinn fyrsta leik í deildarbikarnum um næstu helgi þegar liðið mætir Grindavík og fer leikurinn einnig fram í Fífunni. Andri á úrtaksæfingu Andri Ólafsson, knattspymumaður- inn efnilegi hefur verið valinn til þess að taka þátt í úrtaksæfingu U- 19 ára landsliðsins en æfingamar fara fram um helgina. Einnig fara fram úrtaksæfingar hjá U-17 ára landsliðinu en ÍBV á engan fulltrúa þar. Ágætis árangur hjá þriðja flokki Þriðji flokkur karla lék einnig í innanhússmótinu um helgina en þar vom tveir fjögurra liða riðlar til að byrja með. ÍBV endaði í þriðja sæti í sínum riðli eftir að hafa unnið einn leik og tapað tveimur. ÍBV spilaði því um fimmta sætið gegn Þrótti Neskaupstað og sigmðu Eyjapeyjar 3-0. Framundan Föstudagur 21. febrúar Kl. 20.00 FH-ÍBV Essodeild karla Kl. 20.30 Þór Ak.-ÍBV 2. fl. karla Laugardagur 22. febrúar Kl. 11.30 KA-ÍBV 2. fl. karla Kl. 13.00 ÍBV-Haukar Bikarúrslit Laugardalshöll. Sunnudagur 23. febrúar Kl. 14.00 ÍBV-Grindavík D.bikar Fífunni. Þriðjudagur 25. febrúar Kl. 20.00 ÍBV-Fram Essodeild kvenna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.