Fréttir - Eyjafréttir - 19.06.2003, Qupperneq 2
2
Frcttir / Fimmtudagur 19. júní 2003
Veitingar
og leiklist á
Skansinum
Selma Ragnarsdóttir (D) lagði fram
tillögu á fundi menningarmála-
nefndar þann 11. júní sl. Sömu
tillögu hafði hún borið upp á fundi
bæjarráðs nokkmm dögum áður en
þar var hennið vísað frá þar sem
Selma á ekki sæti í bæjarráði.
Hún er aftur á móti í menn-
ingarmálanefnd og gekk betur að
leggja tillöguna fram þar. „Menn-
ingarmálanefnd samþykkir að leita
nú þegar leiða til þess að koma upp
veitinga- og leiklistaraðstöðu á
Skanssvæðinu. Verkefnið sem
áformað er að standi yfir í a.m.k.
mánaðartíma á þessu sumri er
hugsað sem tilraunaverkefni í tilefni
að þrjátíu ára goslokaafmæli. Ef
verkefnið heppnast vel gæti þetta
orðið til þess að efla menn-
ingartengda ferðaþjónustu í Eyjum.
Bæjarsjóður taki að sér að koma
upp tjaldaðstöðu og fleira. Að öðm
leyti verði veitingarekstur á svæð-
inu boðinn út.“
Menningarmálanefnd samþykkti
að kanna með auglýsingu hvort
einhverjir eru tilbúnir til þess að
taka að sér að reka aðstöðuna til
reynslu.
Segja upp
samningi við
Gámaþjón-
ustuna ehf.
Á fundi bæjarráðs á mánudag var
samþykkt af meirihluta ráðsins að
segja upp núgildandi samningi við
Gámaþjónustuna um rekstur Sorpu
og sorphirðu, þar sem frestur til að
segja upp samningnum ertil 1. júlí
nk.
Jafnframt er bæjarstjóra og eftir-
litsmanni Sorpu falið að leggja fram
tillögur um framtíðarskipan sorp-
mála fyrir 1. september nk.
Selma Ragnarsdóttir (D) lagði
fram aðra tillögu. „Bæjarráð sam-
þykkir að freista þess að ljúka gerð
nýs samnings við núverandi
rekstraraðila Sorpeyðingarstöðvar
og sorphirðu í Vestmannaeyjum
fyrir næstu mánaðamót þannig að
nýr samningur taki gildi þegar nú-
verandi rekstrarsamningur rennur
út.“
Meirihlutinn vísaði tillögunni frá
þar sem fyrir liggur að framkvæma
þarf endurskoðun á fyrirkomulagi
sorphirðu og sorpeyðingar í Vest-
mannaeyjum og því nauðsynlegt að
allir samningar séu lausir.
Stórhýsi í
miðbæinn?
Á fundi skipulags- og bygginga-
nefndar þann 10. júní sl. lá fyrir
umsókn frá Teiknistofu Páls
Zóphóníassonar um byggingarleyfi
fyrir fjölbýlishús með blandaða
notkun á Baldurshagareitnum.
Nefndin frestaði erindinu og fól
byggingafulltrúa að koma á fundi
með umsækjanda.
FRÉTTIR
Eyjamark - markaðs- og kynningarfyrirtæki:
Kynna Eyjarnar sem heíld
í síðasta mánuði var formlega stofnað
fyrirtækið Eyjamark sf. en það er
markaðs- og kynningarfyrirtæki fyrir
Vestmannaeyjar. Þeir sem standa að
fyrirtækinu eru Viking Tours, Flug-
félag Vestmannaeyja, Hótel Þórs-
hamar, Prófasturinn og Lundinn og
loks Höllin. Sigurmundur Einarsson er
formaður stjómar fyrirtækisins en
Sigríður Lísa Geirsdóttir er þar
gjaldkeri og raunar sú sem starfar að
mestu fyrir hið nýstofnaða markaðs-
fyrirtæki.
„Við höfum unnið saman síðan á
síðasta ári en það var ekki fyrr en í
síðasta mánuði sem við stofnuðum
formlega fyrirtækið," sagði Lísa og
Sigurmundur bætti við að tilgangur
með stofnuninni sé fyrst og fremst að
hafa sameiginlegan vettvang til að
markaðssetja Vestmannaeyjar. „Við
höfum auglýst mikið saman og teljum
vænlegra til árangurs að hafa stórar
heilsíðuauglýsingar í stað þess að hver
og einn sé að auglýsa kvart úr síðu og
þess háttar.“
Eyjamark er nú þegar farið að láta
að sér kveða og hefur bæklingi um
Vestmannaeyjar verið dreift um allt
land og raunar einnig út fyrir land-
steinana á allar upplýsingamið-
stöðvar sem Norræna hefur aðgang að
víða um heim. „Svo erum við að fara
af stað með markaðsmál á Netinu í
gegnum Wats'on in lceland en það
fyrirtæki verður með alhliða upplýs-
ingar um ísland sem ferðamannaland
og um alla staði sem hægt er að
heimsækja hér á landi. Þetta gerir
ferðamönnum auðveldara fyrir að ná í
þær upplýsingar sem þeir sækjast eftir.
Eins mun fyrirtækið vera með
veltiskilti á stærstu upplýsingamið-
stöðvum landsins og á Reykja-
víkurflugvelli,“ sagði Lísa.
Sigurmundur sagði að það væri fullt
af fólki að gera góða hluti í Eyjum
þegar kemur að ferðamálum. „Nú
erum við t.d. að bjóða aðilum frá
Upplýsingamiðstöð Suðurlands og
Reykjavík til okkar í kynningarferð,
fyrri hópurinn verður héma á fimmtu-
dag og sá seinni í næstu viku. Þetta
fólk sendir mikið af fólki til Eyja og
þau verða að vita hvað þau em að
bjóða.“
Það vekur athygli að þama er aðeins
um að ræða nokkra aðila sem starfandi
em í ferðaþjónustu en aðrir njóta þó
góðs af þeirra starfi að sögn Lísu og
Sigurmunds. „Við emm að setja
peninga í þetta og kynnum Vest-
mannaeyjar, við erum ekki að segja,
komið til Eyja, gistið hjá okkur og
borðið héma eða þar. Við emm að
kynna allt sem viðkemur Vestmanna-
eyjum með því að kynna heildar-
pakkann."
Sigurmundur sagði vissan misskiln-
ing vera í gangi hjá sumum sem
starfandi em í bransanum. „Þetta snýst
bara um markaðsmál og við vitum öll
að afþreying í Eyjum er miklu meiri
en bara rúta og bátsferð. Það er hér t.d.
hestaleiga og margt fleira sem aðrir en
þeir sem em aðilar að Eyjamarki
koma að. Þau njóta líka góðs af okkar
starfi.“
Þau sögðu fullt að gerast nú þegar
hjá fyrirtækinu. „Við útbjuggum t.d.
veggspjald sem keyrð vom hringinn í
kringum landið og sett á alla mögu-
lega staði á leiðinni. Þetta leggjum við
á okkur, enda er þetta okkar áhugamál
og okkar lífsviðurværi,“ sagði Lísa og
Sigurmundur bætti við að sem betur
fer hefðu þeir sem em í fullri atvinnu í
ferðaþjónustu borið gæfu til þess að
standa saman og þannig mætti ná fram
markvissari markaðssetningu en verið
hefur.
Sigurmundur, sem starfrækir Vik-
ing Tours, segir að það þurfi að setja
sér markmið __ um aukinn fjölda
ferðamanna. „Eg tek sem dæmi að
hvalaskoðun á íslandi hófst árið 1995
með um tvö þúsund manns en núna
em sextíu og fimm þúsund manns sem
fara í hvalaskoðun á íslandi ár hvert.
Það er margt athyglisvert í bígerð
hjá þeim og má þar nefna kaffihús og
upplýsingamiðstöð sem Sigurmundur
ætlar að opna innan skarnms niðri við
höfn. Hótel Mamma er annað dæmi,
en það er í eigu Hótels Þórshamar, þar
er um að ræða nýjung, gistiheimili
sem hefur ákveðið þema. Utisvæðið
bakvið Prófastinn hefur tekið stakka-
skiptum og Flugfélag Vestmannaeyja
hefur unnið markvisst að því að
endurnýja flugflotann. Ekki má
gleyma Hallarmönnum sem hafa
unnið markvisst að sínum markaðs-
málum undanfarið og ljóst að tilkoma
Hallarinnar hefur breytt til batnaðar
þeim möguleikum sem hægt var að
bjóða upp á í Eyjum.
Sigurmundur taldi þó að brotthvarf
Flugleiða af flugleiðinni Reykjavík -
Vestmannaeyjar hafi haft slæm áhrif á
ferðaþjónustuna í Eyjum. „Þar þarf að
taka til hendinni, hér eru menn að tala
um göng eftir tíu til fimmtán ár, nýjan
Herjólf eftir sjö til átta ár eða ferjulægi
við Bakkafjöru eftir tíu ár. Ef ríkið
myndi leggja 100 milljónir í pott til
þess að niðurgreiða flugið væri komin
hér fimmtíu sæta vél á morgun. Það
ætti að vera þannig að hvert sæti sem
er nýtt verði niðurgreitt um ákveðna
upphæð þannig að það yrði akkur
fyrirtækisins að hafa sem flesta
farþega. Ólíkt því sem er t.d. á Höfn
þar sem íslandsflug fær vissa upphæð
fyrir að halda uppi farþegaflugi,
algjörlega óháð farþegafjölda. Við
höfum pólitíkusa sem gætu unnið í
þessum málum fyrir okkur, þetta er
ekki há upphæð fyrir ríkið og annað
eins hefur nú verið gert fyrir önnur
sveitarfélög," sagði Sigurmundur
ákveðinn en bætti við að þrátt fyrir að
Flugleiðir séu ekki lengur með
áætlunarflug til Eyja séu þeir ekki
búnir að taka Vestmannaeyjar út af
sínu korti.
Oll dýrin vinir á fjölbreyttri goslokahátíð
Undirbúningur goslokahátíðar er nú í
fullum gangi og Andrés Sigurvinsson,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar, hefur
í nógu að snúast þessa daganna.
Allsherjar Kamivalstemmning á að
ríkja í lofti, á sjó og í landi þessa daga.
Ætlunin er að fá listamenn bæjarins til
að koma með hugmyndir að skreyt-
ingum í bænum og skapa um-
hverfislistaverk þar sem náttúran er í
aðalhlutverki.
„Hugmyndin er að gera bæinn lit-
ríkan og skemmtilegan, mála bæinn
rauðan! Ég hef heyrt að fólk ætli að
setja upp myndir af húsum sínum eins
og þau litu út við goslok, skreyta götur
ofl. Allt á að iða af lífi og ljöri og t.d.
væri gaman að fólk mætti í litríkum
furðufötum í skrúðgönguna á setn-
ingarhátíðina og Skvísusundið. Menn
hafa talað um að framleiða lunda-
gogga sem bæjarbúar gætu sett upp og
ég auglýsi hér með eftir hugmyndum
frá bæjarbúum. Ef einhver er með
atriði og vill troða upp þá endilega
hafa samband. Við endurtökum 25 ára
afmælið þar sem allir lögðust á eitt við
að ná fram hinni einu og sönnu
Eyjastemmingu. Við Ieitum til bama
og unglinga og uppákomur verða um
allan bæ, á söfnunum, á Stakkó,
Baldurshagalóðinni, við höfnina,
Undir Löngu, á hafnargörðunum, í
Skvísusundi, umhverfis það og á fleiri
stöðurn," segir Andrés.
Hátíðin hefst með upphitun
fimmtudaginn 3. júlí sem er gosloka-
dagurinn. Þrjár listsýningar verða
opnaðar, tónleikar verða í Höllinni
fyrir ungmenni um kvöldið og
hugsanlega verður gestur frá vinabæ
okkar í Færeyjum með uppákomu.
Föstudaginn 4. júlí verður hátíðin
sett formlega með skrúðgöngu og
götuleikhús og óvæntar uppákomur
setja svip á miðbæinn og Stakkó.
„Um kvöldið verður opnuð ljós-
myndasýning í Alþýðuhúsinu og í
framhaldinu verða sagnaþulir með
sögur frá gostímanum. Málverka-
sýning verður í opnuð í Samkomuhúsi
Hvítasunnumanna. Papar eru aug-
lýstir í Höllinni og Skvísusundið og
bærinn mun iða af lífi og fjöri um
kvöldið.“
Víkingaskipið fslendingur verður á
svæðinu og vonandi eiga trillur og
smærri bátar eftir að setja svip á
höTnina ásamt dýpkunarprömmunum.
Á laugardeginum verður áframhald-
andi fjölskyldugleði um allan bæ.
Leikur ÍBV og KR verður á Há-
steinsvelli, útivistardagur Spari-
sjóðsins á Baldurshagalóðinni og
Samskip bjóða bæjarbúum í
skemmtisiglingu umhverfis Eyjar.
„Um kvöldið verður tónlistardag-
skrá í Höllinni, „Ó fylgdu mér í Eyjar
út“ í umsjá Hafsteins Guðfinnssonar.
Á sama tíma verða ýmis tónlistaratriði
og uppákomur í bænum. Áfram-
haldandi fjör frá kvöldinu áður verður
í Skvísusundi, hefst milli níu og tíu og
stendur fram á morgun." Þar verður
hið rómaða kaffihús „dulalndaSjöfn"
með óvæntum skemmtiatriðum,
bjórkrár, harmónikkukrá, söngur og
spil. Logamir, Obbosí, Hippabandið,
Tríkot og spumingin er? Leikfélagið
verður í stóm hlutverki alla dagana,
með spákonur, gamla kunningja,
furðuvemr og götuleikhús.
Dagskrá sunnudagsins hefst með
helgistund við krossinn á hrauninu en
gengið verður þangað frá Landakirkju
og þaðan að Stafkirkju á Skansinum.
Hugsanlega verður þar einhver
uppákoma í stíl Tyrkjaránsins. Bama-
skemmtun verður um daginn og um
kvöldið verða tónleikar Hafsteins
Guðfinnssonar endurteknir."
Þegar Andrés er spurður hvaða
hlutverki höfnin gegni í hátíðahöld-
unum stendur ekki á svari. „Við
ætlum að gera höfnina að einu alls-
herjar götuleikhúsi. Víkingaskipið
verður á staðnum og það er aldrei að
vita nema flóttaferðir með bátum verði
sviðsettar og ameríski herinn komi og
hjálpi okkur. Mottóið er, allir hjálpast
að, og öll dýrin í skóginum eiga að
vera vinir.“
Hátíðin er hugsuð fyrst og fremst
hugsuð fyrir Eyjamenn og brottflutta
og það verður ósvikin fjölskyldu-
stemming alla dagana. „Fólk hefur
talað um að allt gistirými sé upppantað
en IBV mun hugsanlega setja upp
veitingasölu í veitingatjaldinu fyrir
gesti inni í Dal kjósi menn að koma í
hópum með flugi, enda nóg pláss þar
á tjaldstæðinu en þar getum við komið
eins mörgum fyrir og við viljum.
Volcano Open golfmótið fer fram
þessa helgi þannig að það verður alls
staðar eitthvað að gerast. Ég vil taka
fram að flugfélögin eru til staðar og
hægt að fá far með Herjólfi. Nánari
dagskrá verður kynnt síðar og borin í
hús. Síðan er málið að byggja sig upp,
vaka þessa fjóra sólarhringa og safna
svo kröftum fyrir þjóðhátíðina," segir
Andrés hress að vanda.
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri:_ Ómar
Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir:
Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi
47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur:
frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni,
ísjakanum, Bónusvídeó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði
og afgreiðslu Hejrólfs í Þorlákshöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun,
hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.