Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.06.2003, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 19.06.2003, Page 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 19.júní2003 EYJAMAÐUR VIKUNNAR Fanndís Friðriksdóttir er Eyjamaður vikunnar. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Landmannalaugar og Mývatnsveit. Uppáhalds- íþróttamaður eða íþróttafélag? Henry, IBV og Arsenal. Stundar þú einhverja íþrótt? Já, fótbolta. Ertu hjátrúarfull? Já, það er bara þegar ég er búin að vinna einhvern leik þá verð ég að hafa allt alveg eins og það var í síðasta leik. Uppáhalds sjónvarps- efni? Bara MTV. Besta bíómynd sem þú hefur séð? How to loose a guy in ten days. Hvað finnst þér gera fólk aðlaðandi? Fallegt bros. Hvað finnst þér gera fólk frá- hrindandi? Fýlupokaháttur. Kom það þér á óvart að vera valin efnilegasti leikmaðurinn? Nei, engan veginn. Hvernig fannstþér mótið takast? Mjög vel. Fer 4. flokkur á fleiri mót í sumar? Já, hann fer á Gull og silfurmótið og svo er náttúrulega bara íslandsmótið. Eitthvað að lokum? Bróðir minn er bestur! Þakka Stefí sérstaklega og einnig Ernu fyrir að vera góðir þjálfarar, og fyrir að fá að vera með svona skemmtilegum stelpum í flokki. Skötuselur í BBQ sósu Eg vil þakka karli föður nu'nwn fyrir dskorunina og reyni mitt besta til að ski honum við. Það verður ekki auðvelt encla vita þeir sem þekkja hann vel að hann er listakokkur en - likefather like son. Skötuselur í BBQ sósu 400 gr skötuselur (utankvóta) liúlf flaska BBQ sósa / nmtskeið sojasósa svartur pipar 15 til 20 grœn piparkom hvítlauks kryddblanda frú Poltagöldrum Skerið skössann niður ífrekar smúa bita og setjið hann í glæran plastpoka. Hellið BBQ sósunni og sojasósunni ofan í pokann og veltið þessu saman. Takiðið kryddið og bætið við og veltið þvísaman við. Geymist íkœli ísvona sólarhring. Gott er að snúa pokanum öðru hverju og hrista aðeins upp íþessu. Grillist ú úlbakka þangað til fiskurinn er orðinn stinnur. Með þessu er gott að hafa bökuð jarðepti ogferskt salat meðfetaosti. Borðist í góðumfélagsskap. Pulsuréttur bestabarnsins 10 pulsur llaukur I epli 1 dós bakaðar baunir 1 peli rjómi soðnar kartöflur Skerið pulsurnar i tommu bita og setjið ú pönnu. Skerið niður laukinn, kartöflumar og eplið og bœtið við. Steikist í smú stund. Bœtið baununm og rjómanum við og lútið malla. Með þessu er gott að hafa grjón og nueli ég með sérsíuðu rigningarvatni úr Suðurey með þessu. Bróðir minn er bestur Vöruvalsmótið íknattspyrnu var um síðustu helgi og var árangur Eyjastúlkna nokkuð góður. Engin skilaði þó betri árangri en Fanndís Friðriksdóttir leikmaður 4. flokks ÍBV sem var valin efniiegasti leikmaður mótsins. Fanndís er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. A/afn?Fanndís Friðriksdóttir. Fæðingardagur og ár? 9. maí 1990 Fæðingarstaður? Akureyri. Fjölskylda? Foreldrar: Nanna Leifs- dóttir, Friðrik Friðriksson, systkini: Frans Friðriksson og Nína Friðriks- dóttir. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég er ekki búin að ákveða það. Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Ég er ekki mikil bílamanneskja en það verður örugglega bara einhver flottur bíll. Uppáhaldsmatur? Kjöt sem er grillað. Versti matur? Fiskur. Uppáhaldsvefsíða? Ég bara veit það ekki. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap? Bara tónlistin á FM 957 Með hvaða aðila vildir þú helst eyða helgi? Rakel Ýr á Spáni. Aðaláhugamál? Fótbolti. Ég ætla að skora á olíubaróninn Svein Magnússon á Kletti sem ég held að leyni á sér í eldamennskunni. Sjáumst á þjóðhátíð. Nýfœddirífc/ 4 Vestmannaeyingar Þann 13. febrúarsl. eignuðust Björg Ólöf Bragadóttir og Valgeir Sigur- jónsson dóttur sem hefur verið skírð Sandra Dögg. Hún vó 3620 grömm og var 50 cm að lengd við fæðingu. Með henni á myndinni er stóri bróðir hennar Sigþór Öm. Fjölskyldan býr í Grindavík Þann 29. apríl sl. eignuðust Hrefna Díana Viðarsdóttir og Hörður Pálsson dóttur sem skírð hefur verið Nadía. Nadía fæddist á Landsspítalanum og var 51 sm og 3836 grömm við fæðingu. Fjölskyldan býr í Reykjavík. Tillaga Arnars fékk ekki afgreiðslu -þarsem hanrt varekki viðstaddur fundinn Á fundi bæjarráðs á mánudag lá fyrir tillaga frá Amari Sigurmundssyni (D) um það að fela tækni- og umhverfissviði Vestmannaeyjabæjar að gera áætlun um kostnað við að koma upp göngustíg og göngubrú í Neðri Kleifum er taki land í sandtjörunni undir Löngu sunnan Heimakletts. Vildi hann að bæjarráð óskaði eftir að kostnaðaráætlun liggi fyrir eigi síðar en 30. september nk. Komi til framkvæmda verði verkið unnið í nánu samstarfi við hafnastjóm Vestmannaeyja, enda staðsetning mannvirkja á athafnasvæði hafnar- innar. „Það hefur lengi verið draumur margra Eyjamanna að koma á tengingu milli uppfyllingar norðan Friðarhafnar og svæðisins undir Löngu. Á fyrri hluta síðustu aldar var göngubrú í berginu í Neðri-Kleifum er tók land í fjörunni Undir Löngu. Þá eiga margir Eyjamenn góðar minningar um ferðir Undir Löngu á smábátum yfír sumartímann. Þetta svæði var dæmigert útivistarsvæði, einkunt barna og unglinga á góð- viðrisdögum. Menningartengd ferða- þjónusta verður sífellt umfangsmeiri og falla nýjar hugmyndir menningar- málanefndar um staðsetningu v/b Blátinds VE á bóli á svæðinu mjög vel að þessari tillögu. Gangi þessi tillaga eftir er nauðsyn- legt að góð samvinna takist á milli allra þeirra aðila sem koma að málinu með einum eða öðrum hætti." Tillagan var ekki tekin til afgreiðslu þar sem hún var ekki tæk að mati meirihlutans þar sem Amar sat ekki fundinn. Selma Ragnarsdóttir (D) bókaði þá, þar sem hún sagði að tillagan hafi komið frá Amari Sigur- mundssyni sem er aðalmaður í bæjarráði, og var komin inn fyrir tiltekinn tíma, en hann forfallaðist á síðustu stundu vegna veðurs. „I ljósi þessa tel ég að tími sé kominn til að fá botn í tillögurétt aðal- og varamanna í bæjarráði og bæjarstjórn." Guðrún Erlingsdóttir og Stefán Jónasson (V) bókuðu þá að þau hörmuðu enda- lausan klaufaskap sjálfstæðismanna við tillöguflutning í bæjarráði og vonuðust þau eftir þvf að þeir vandi betur vinnubrögð sín. Amar Sigurmundsson var afar ósátt- ur við meðferð málsins. „Þetta er f annað skiptið sem núverandi for- maður útilokar tillögu frá okkur með þessum hætti og eru þetta alveg ný vinnubrögð sem þarf að skoða sér- staklega." Hann sagði tillöguna verða tekna fyrir á næsta túndi bæjarstjómar og meginatriðið sé að þetta fái eðlilega afgreiðslu þar. Guðrún Erlingsdóttir, formaður bæjarráðs, sagði að á síðasta kjörtímabili hafi fulltrúum minni- hlutans verið bannað að flytja tillögur, nema að sitja fundi. „Við virtum það og teljum að nú gildi hreinlega söntu lögmál. Þetta er nú að verða svolítið kómískt, að Amar komi með tillögur frá Selmu og Selma með tillögu frá Arnari. Vonandi fer þessi vitleysa að hætta svo við getum nýtt tímann í þarfari mál.“ á döfinni JÚIÍÍ 19. ÍBV - Frorn Landsbankadeild karla ki 19.15. 19. -22. Myndlistarsýning Bjarna Olafs Magnússonar í Vélasalnum. 20. Jónsmessugleði í Fiskiðjusundi, hljómsveitin A móti Sól. 20. ÍBV ■ FH Landsbonkadeild kvenna kl. 20.00. 20. KFS ■ Fjölnir. 2. deild karla. kl. 20.00 ó Helgafellsvelli. 22. ÍBV ■ FH Landsbankadeild korla kl. 16.00. 25. Shellmót ÍBV hefsl.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.