Fréttir - Eyjafréttir - 19.06.2003, Side 18
18
Fréttif / Fimmtudagur 19. júní 2003
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 19. júní
Kl. 10.00. Mömmumorgunn á
kvennafrídegi. Hvað ætli pabbamir
geri í því?
Sunnudagur 22. júní
Helgistund á Hraunbúðum kl.
14.00. Messufrí í Landakirkju
vegna prestastefnu á Hólum í
Hjaltadal. Allir velkomnir á
Hraunbúðir í staðinn. Prestur sr.
Baldur Gautur Baldursson.
Miðvikudagur 25. júní
Kl. 20.00. Opið hús í KFUM&K
heimilinu. Síðasta opna húsið fyrir
ferð Æskulýðsfélagsins á norrænt
mót í Danmörku.
Fimmtudagur 26. júní
Kl. 10.00. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Kaffi og spjall
og góð samverustund með böm-
unum.
Bifreiðaíþróttir - Kvartmíla - Eyjamaðurinn Gísli Sveinsson í 1. sæti í fyrstu umferð
Takmarkið að fara niður fyrir 11 sek.
Eyjamaðurinn Gísli Sveinsson hafnaði
í I. sæti í fyrstu umferð á Islands-
mótinu í kvartmílu fyrir skömmu.
Gísli keppir í SE flokki sem er flokkur
fyrir breytta götubíla og ekur hann á
Dodge Challenger R/T árgerð 1970.
sem er rúmlega 700 hestöfl.
Besti tími Gísla í keppninni var
11,14 sekúndur sem er talsvert betri
tími en hann náði í fyrra. Gísli hefur
átt bílinn síðan 1981 og er þetta þriðja
árið í röð sem hann keppir í kvartmílu.
Honum gekk mjög vel í fyrra og
endaði í heildarkeppninni í öðm sæti.
Gísli sagði að stefnan hjá sér væri
að sprengja ellefu sekúndna múrinn.
Alls eru fimm keppnir yfir sumarið
sem gefa stig í Islandsmótinu og næsta
keppni verður helgina 28. til 29. júní á
kvartmflubrautinni í Kapelluhrauni
rétt fyrir utan Hafnafjörð.
Gísli er eini Eyjamaðurinn sem
keppir í kvartmflu. Gísli sem starfar
sem sjómaður á Drangavík segir
tímann á milli móta fara í viðhald
þegar hann er í landi og að reyna að ná
því besta út úr bflnum. Margt þarf að
spila saman til þess að ná sem bestum
árangri. „Það sem skiptir mestu máli
TRILLITÆKIÐ hans Gísla er af gerðinni Dodge Challenger R/T árgcrð 1970. nieð rúmlega 700 hestöfl.
er pústkerfið og dekkin en annað getur
einnig spilað stóran þátt. Til dæmis
lctti ég bflinn fyrir fyrstu keppnina og
fjöðmnin virkaði þá ekki sem skyldi
og missti ég einhvern tíma í ræsingu
vegna þess að bfllinn var svo léttur að
aftan. Þetta mun ég laga fyrir næstu
keppni og þá er vonandi að ég nái að
fara niður fyrir ellefu sekúndur."
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur 19. júní
Kl. 20:30 Biblíufræðsla.
Jakobsbréf í umræðunni.
Föstudagur 20. júní
Kl. 20:30 Unglingakvöld, með
hressum krökkum og góðum Guði.
Laugardagur 21. júní
Kl. 20:30 Bænasamvera.
Sunnudagur 22. júní
Kl. 11:00 SAMKOMA
„.Varðveitið sjálfa yður í kærleika
Guðs.“ Júd. 21.
Komið og takið þátt í lofgjörð og
heyrið lifandi orð Guðs.
Allir hjartanlega velkomnir.
Bœnastundir á hverjum morgni
kl. 7:30.
Aðventkirkjan
Laugardagur 21. júní.
Kl. 10.30 Biblíurannskókn.
Biblían
talar
sími
481-1585
ÞAÐ var mikið um að vera hjá Tryggingamiðstöðinni á Gleðidegi TM þar
sem Guðbjörg Karlsdóttir og stelpurnar hennar tóku á móti gestum. Þar
var ýmislegt í boði fyrir blessuð börnin og þá fullorðnu líka.
Ingi stefnir hraðbyri á 200 leikja múrinn
Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri, lék sinn fyrsta leik með ÍBV í sumar þegar
hann kom inn á gegn KFS í síðari hálflcik. Ingi lék þar með leik númer 199
þannig að næst þegar hann spilar með ÍBV þá kemst hann upp í 200 leiki
með liðinu.
FYRIR skömmu var undirritaður samstarfssamningur milli Samskipa og
Knattspyrnudeildar ÍBV. Samningurinner til tveggja ára. Þeir sem
undirrituðu þennan samning voru Viðar Elíasson, formaður
knattspyrnudeildar og framkvæmdastjóri Samskipa, Agnar Már Jónsson.
Hjálpar þessi samningur mikið til þar sem samgöngumái knatt-
spyrnudeildar ÍBV hafa verið kostnaðarsöm og tíðar ferðir ákaflcga
tímafrckar. Þessi samningur liðkar töluvert til með kostnaði seni af hlýst
af við ferðalög meistaraflokkanna og 2. flokks karla og kvenna.
FréttfráÍBV.