Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.06.2003, Síða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 19.06.2003, Síða 19
Fréttir / Fimmtudagur 19. júní 2003 19 Knattspyrna - Visabikarinn 32 liða úrslit: KFS 0 - IBV 4 Litli bróðir barðist vel Leikur KFS og IBV varð aldrei sú skemmtun sem flestir höfðu látið sig dreyma um, bæði voru aðstæður hinar verstu, strekkingsvindur á annað markið og kalt. Auk þess varð heimaliðið, KFS að spila einum leikmanni færri í rúmar sjötíu mínútur og það var einfaldlega of stór biti fyrir 2. deildarliðið. Leiknum lyktaði með íjöguna marka sigri, sem í raun hefði getað orðið mun stærri. Fyrri hálfleikur var bragðdaufur í meira lagi. Liðin voru að þreifa fyrir sér fyrstu mínútumar, allt þar til á 18. mínútu þegar Jóhanni Sveini Sveins- syni var vikið af velli fyrir að fá sitt annað gula spjald í leiknum. Dómurinn var harður, sérstaklega þegar litið er á dómgæsluna í heild leiksins þar sem aðrir leikmenn sluppu betur frá álíka brotum. En eftir þetta má segja að KFS hafi átt erfitt upp- dráttar. Liðið varðist reyndar mjög vel í fyrri hálfleik og fyrir vikið var jafnt í hálfleik 0-0. Seinni hálfleikur var mun ijörugri og leikmenn ÍBV nýttu sér það vel að spila gegn sterkum vindinum. Boltan- um var oftar en ekki stungið inn fyrir vörn KFS þar sem Steingrímur Jóhannesson og Bjami Rúnar Einars- son sköpuðu ávallt mikla hættu. Steingrímur skoraði svo fyrsta mark leiksins með laglegum skalla en tæpri mínútu síðar munaði minnstu að KFS tækist að jafna. Þá átti Hlynur Stefánsson langa spyrnu fram völlinn, beint á kollinn á Sindra Viðarssyni sem skallaði fyrir markið en vindurinn greip boltann sem var á góðri leið í markið. Birkir Kristinsson sýndi hins vegar meistaramarkvörslu þegar hann sló boltann frá á síðustu stundu. Leik- menn ÍBV tóku eftir þetta öll völd á vellinum og bættu við þremur mörkum fyrir leikslok. Mörk ÍBV: Bjami R. Einarsson 2, Steingrímur Jóhannesson 1, lan Jeffsl. Landsleikur kvenna: Island 4 - 1 Ungverjaland Frábær innkoma Marsrétar Láru -skoraói með sinni fyrstu snertingu í A-landsleik -Er gjaldgeng í öllum kvennalandsliðum íslands Margrét Lára Viðarsdóttir, sem verður 17 ára þann 25. júlí nk., lék sinn fyrsta leik með íslenska kvennalandsliðinu á laugardag þegar liðið tók á móti Ungverjalandi. Olga Færseth var að venju í byrjunarliðinu og hún skoraði einmitt annað mark íslenska liðsins en staðan í hálfleik var 2 - 1. Margrét Lára kom inn á þegar 24 mínútur vom eftir af leiknum og fjór- um mínútum síðar var hún búin að skora þegar hún fylgdi eftir föstu skoti MARGRÉT Lára er eit mesta efni í kvennaboltanum í dag. Olgu sem fór í slána. Margrét sagði í samtali við Fréttir að hún hafi vissulega ætlað sér að skora. „Auðvitað hugsar maður alltaf þannig, að skora en það var gaman að það gekk eftir. Ég átti alveg eins von á þvf að fá tækifæri, kannski ekki að spila svona mikið en það var bara betra fyrir vikið.“ Margrét er enn gjaldgeng í U-17 ára landslið íslands og fór beint eftir leikinn í æftngabúðir unglingaliðsins á Laugarvatni. En er stefnan sett á að spila með öllum landsliðunum? „Það er ekkert markmið í sjálfu sér. Ég geri það ef tækifærið gefst en ég ætla bara að einbeita mér að því að spila fótbolta með ÍBV, hitt kemur af sjálfu sér,“ sagði Margrét en við þetta má svo bæta að hún er fyrirliði U-17 ára liðsins. Knattspyrna: Heldur slakt sengi yngri flokkanna Stórleikir í bikarnum Á mánudaginn var dregið í 16 liða úrslitum Visa-bikarkeppni karla og 8 liða úrsliutm kvennakeppninnar. Kvennalið ÍBV fékk eríiðan leik, reyndar á heimavelli en liðið tekur á móti Islands- og bikarmeisturum KR og verður eflaust um hörkuleik að ræða. Leikurinn fer fram fimmtudaginn 26. júní á Hásteins- velli. Karlaliðið var ögn heppnara með sinn drátt en engu að síður má búast við erfiðum leik. Grindavík verður andstæðingur ÍBV og á leikurinn að faraframþriðjudaginn l.júlí. IBV sigraði einmitt Grindavík á heima- velli þeiira síðamefndu og vilja þeir eflaust hefna íyrir það tap. Annar flokkur karla lék á sunnudaginn gegn Fjölni og fór leikurinn fram í Egilshöll. ÍBV leikur í B-riðli í ár, sem líkja má við næstefstu deild en ferð þeirra í Grafarvoginn var ekki til fjár því leikurinn endaði 7-0 fyrir Fjölni en staðan í hálfleik var 3-0. Annar flokkur kvenna tók á móti KR á Helgafellsvellinum á laugardag- inn var. I fyrsta leik tapaði IBV illa fyrir Breiðabliki á heimavelli og því mikilvægyr leikur fyrir heimaliðið. En KR stillir upp sterku liði í öðrum flokki og lokatölur leiksins urðu 5-3. Mörk ÍBV: Thelma Sigurðardóttir 2, Karitas Þórarinsdóttir. Þriðji flokkur karla tók á móti Breiðabliki í síðustu viku en byrjunin á leiknum var ekki góð hjá IBV því strákamir lentu 1-3 undir. En með baráttuna að vopni tókst strákunum að snúa leiknum sér í hag og sigmðu að lokum 5-3, glæsilegursigur. Mörk ÍBV: Einar Kárason 3, Stein- grímur Jónsson, Ellert Scheving Páls- son. Fjórði flokkur karla lék tvo leiki um helgina en bæði A og B-liðin spiluðu. Fyrsta var leikið gegn Fjölni og þar gerði A-liðið jafntefli 3 - 3 en B-liðið tapaði 3 - 4. Mörk ÍBV: A: Þórarinn Valdimars- son, Guðjón Olafsson, Gauti Þorvarð- arson. B: Hafsteinn Sigurðsson 2, Ingólfur Einisson. Seinni leikurinn var gegn ÍR og þar gekk ÍBV betur. A-liðið sigraði 3-6 og B-liðið vann sinn leik 1-9. Mörk ÍBV: Eiður Sigurbjömsson 2, Amór Ólafsson 2, Þórarinn Valdi- marsson, Gauti Þorvarðarsson. Ekki fékkst uppgefið með markaskorara í B-liði. Fimmti flokkur karla lék einnig tvo leiki um helgina en í flokknum em fjögur lið og spiluðu þau öll um helgina. Fyrst var leikið gegn FH og töpuðust allir leikimir, A-liðið 4-1, B-liðið 7 - 0, C-liðið 10 - 2 og D-liðið tapaði 5-2. Daginn eftir var svo leikið gegn Breiðabliki en bæði þessi lið hafa töluvert fleiri iðkendur en ÍBV. Gegn Breiðabliki gekk lítið betur og töpuðust allir leikimir, A-liðið 7-0, B- liðið 2-0, C-liðið 6-1 og D-liðið 7-0. Tvcir lcikmcnn í raðir íslands- mcistaranna í síðustu viku gekk í raðir ÍBV sterk skytta úr röðum Hauka en hún heitir Nína K. Bjömsdóttir. Nína hefur lengi verið ein sterkasta skytta landsins en á síðasta tímabili átti hún lengi vel í meiðslum. Nína kemur hins vegar ekki til með að flytja til Eyja heldur mun hún búa áfram í Reykjavík en spila með ÍBV. Þá var einnig gengið frá samningi við danskan leikmann að nafni Anja Nielsen en hún leikur í hægra hominu. Anja er 28 ára og kemur frá danska liðinu Ikast/Bording sem varð í öðm sæti dönsku deildar- innar. Hún á 45 landsleiki að baki með danska liðinu sem er eitt það sterkasta í heiminu og skoraði í þeim 78 mörk. Anja varð Ólympíumeistari með danska liðinu árið 2000 en hún hefur mikla reynslu úr danska handboltanum, hefur einu sinni orðið danskur meistari, tvívegis bikarmeistari og svo vann Ikast/Bording Chalenge Cup. Anja þykir hraður og skemmtilegur leikmaður, hefur reyndar átt í erfiðum meiðslum undanfarin tvö ár en hefur náð sér af þeim og er að komast í upprunalegt form. Alla byrjar vel Alla Gotkorian spilaði sína fyrstu landsleiki um helgina fyrir íslands hönd en í vetur fékk hún íslenskan ríkisborgararétt. íslenska liðið var í æfíngaferð í Danmörku og lék þar tvo leiki gegn hinu geysisterka danska liði. Fyrri leikurinn endaði með átta marka sigri heimastúlkna 28-20 og skoraði Alla þijú mörk í þeim leik. í síðari leiknum skoraði svo Alla sex mörk en þau dugðu ekki til sigurs því ísland tapaði þeim leik 27-25. Framundan Fimmtudajgur 19. júní Kl. 20.00 IBV - FH Landsbanka- deild kvenna. Föstudagur 20. júní Kl. 20.00 KFS-Fjölnir 2. deild karla Kl. 20.00 ÍBV-ÍA 2. fl. kvenna Laugardagur 21. júní Kl. 14.00 ÍBV-FH Landsbanka- deild karla. Kl. 14.00 Þór-ÍBV 3. fl. karla Kl. 15.00 FH-ÍBV 3. fl. kvenna Kl. 17.00 Haukar-ÍBV 4. fl. kv. C Sunnudagur 22. júní Kl. 12.00 Fjölnir-IBV 4. fl. kvenna ABC Kl. 13.00 ÍBV-Þór3. fl. karla Kl. 13.00 ÍR-ÍBV 3. fl. kvenna Mánudagur 23. júní Kl. 20.00 KR-ÍBV Landsbanka- deild kvenna. Kl. 20.00 ÍBV-ÍR 2. fl. karla. Kl. 20.00 Þróttur-ÍBV 3. fl. karla, bikarkeppni. Þriðjudagur 24. júní Kl. 17.00 IBV-ÍR4. fl. kvenna Miðvikudagur 25. júní Kl. 20.00 Valur-ÍBV 2. fl. kvenna

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.