Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Side 7

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Side 7
Fréttir / Þriðjudagur 30. desember 2003 7 Annáll Frétta árið 2003 hefði sjaldan eða aldrei verið til- komumeiri. Kransakakan vann Fyrrum daga voru grímudansleikir mjög vinsælir hjá öllum aldurshópum en nú eru það einungis hinir yngstu sem skemmta sér við slíka iðju. Eyverjar halda árlega grímuball fyrir böm og að þessu sinni átti Sædís Birta Barkardóttir besta búninginn að mati dómnefndar en Sædís var í gervi borðs með kransaköku. HvatttU að láta loga áfram Bæjarbúar voru hvattir til að láta jólaljósin loga áfram í janúarmánuði fram yfír 23. janúar og tóku flestir þeirri málaleitan vel. Og meira af jólaljósum því að Lionsklúbburinn og Hitaveita Suðumesja verðlaunuðu sérstaklega bestu jólaskreytinguna í bænum. Það vom þau Kolbrún Þorsteinsdóttir og Sverrir Gunnlaugs- son sem hlutu þá viðurkenningu. Viðurkenningar veittar Fréttir veittu sínar árlegu viðurkenn- ingar til þeirra sem þóttu hafa skarað fram úr á sínu sviði í Vest- mannaeyjum. Þeir Gunnlaugur Ólafs- son og Haraldur Gíslason vom valdir Eyjamenn ársins íyrir framgöngu sína í að koma ráðandi meirihluta í Vinnslustöðinni í hendur heima- manna. Björgunarfélagið, áhöfnin á björgunarbátnum Þór og Þórarinn Sigurðsson hlutu viðurkenningu fyrir björgun á tveimur mönnum sem vom hætt komnir við Elliðaey. Hlynur Stefánsson fékk viðurkenningu fyrir framlag sitt til íþrótta í Vestmanna- eyjum og Bergur Huginn ehf. varð fyrir valinu sem fyrirtæki ársins 2002 í Eyjum. Viska tekur til starfa Undirritaður var stofnsamningur fyrir Fræðslu- og sfmenntunarmiðstöð Vestmannaeyja og hlaut hún nafnið Viska. Starf forstöðumanns var síðan auglýst og var Bergþóra Þórhallsdóttir ráðin til starfans. Á sama tíma var hluti viðbyggingar við Hamarsskóla tekinn í notkun og þar með sýnt að skilyrði fyrir einsetningu skólans væm fyrir hendi. Eyja- mönnum laus höndin? I skýrslu ríkislögreglustjóra fyrir árið 2002 kom fram að langflest of- beldisbrot (sem áður hétu slagsmál og kjaftshögg) em framin í Vestmanna- eyjum, eða 97,3 sé miðað við 10 þúsund íbúa. Reykjavík kom næst með 67,5 en landsmeðaltal er 51,4. Karl Gauti, sýslumaður, sagði að Vestmannaeyjar hefðu vermt efsta sætið í mörg ár og taldi líklegt að hér væri um leifar að ræða frá vertíðar- stemmingu í skemmtanalífinu og það virtist ekki vera í karakter manna hér að kjá hver upp í annan ef til ágrein- ings kæmi. Aftur á móti vom Vestmannaeyingar langt á efitir öðmm í kynferðisafbrotum, með 4,4 brot þar sem landsmeðaltalið er 10. Þarf ekki að stóla á misvftra fiskifræðinga Gísli Valur Einarsson útgerðarmaður, sem á árinu 2002 hætti útgerð á bát sínum, Björgu VE 5, haslaði sér völl á nýjum vettvangi þegar hann keypti Hótel Þórshamar og fleiri byggingar sem tilheyrðu þeim rekstri. Hann sagðist hafa mikla trú á Eyjunum, annars væri hann ekki að fara út í þetta og taldi það m.a. kost að ekki þyrfti að stóla á misvitra fiskifræðinga í þessum geira atvinnulífsins. Færri stútar Á árinu 2002 vom aðeins 12 ökumenn teknir, grunaðir um ölvun við akstur, á móti 21 árið áður. Þótti flestum þetta hin besta þróun. Vikið úr Lögreglu- skólanum vegna hand- bottameiðsla Svavar Vignisson, handboltamaður úr Vestmannaeyjum, sem leikur með FH, varð fyrir því að meiðast illa í handboltaleik og var sýnt að hann léki ekki meiri handbolta þann vetur. Það var að sjálfsögðu slæmt en þó jafnvel verra að honum var tilkynnt að honunt hefði verið vikið úr Lögreglu- skólanum vegna þessa, þar sem sýnt þætti að hann gæti ekki tekið þátt í verklegum þætti námsins. Svavar var að sjálfsögðu ekki sáttur við þessa niðurstöðu og hugðist leita réttar síns í málinu. 30 ár frá gosi Þess var minnst 23. janúar að 30 ár vom liðin frá því að eldgos hófst í Heimaey. í janúar vom sýndir á Stöð 2 þættir um gosið sem bám nafnið Ég lifi og vöktu þeir mikla athygli. SÆDÍS Birta kont sá og sigraði á þrettándaballinu. PRESTAR á 30 ára gosafmæli: Allir hafa þeir þjónað Eyjamönnum, Bjarni Karlsson, Þorvaldur Víðisson, Kjartan Örn Sigurbjörnsson, Karl Sigurbjönrsson biskup og Kristján Björnsson. FYRSTA barnið. Foreldrarnir, þau Ása Ingibergsdóttir og Sigmundur Rafnsson, voru að vonum ánægð með þessa nýársgjöf og það sama gilti um heimasætuna. Tilkomu- mikil þrettándagleði IBV stóð að vanda fyrir þrettándagleði og var það mál manna að sú gleði Janúan Fyrsta barn ársins Fyrsta bam ársins fæddist á Heilbrigð- isstofnun Vestmannaeyja að morgni nýársdags, 19 marka stúlka og 56 cm á hæð. Foreldramir, þau Ása Ingi- bergsdóttir og Sigmundur Rafnsson, vom að vonum ánægð með þessa nýársgjöf. Róleg áramót Að sögn lögreglu fóm áramótin rólega og friðsamlega fram og engin slys urðu á fólki vegna meðferðar flugelda. Fækkun um tæpt prósent Á árinu 2002 fækkaði Vestmanna- eyingum unt 0,95% en miðað er við 1. desember ár hvert. Þann 1. des. 2001 vom íbúar hér 4458 en 1. des. 2002 voru þeir4416. Þetta er heldur minni fækkun en verið hefur undanfarin ár. Vöfvan sannspá Völva Frétta rýndi í árið 2003 og kom þar margt athyglisvert fram. M.a. sagði hún að vonbrigði yrðu vegna fyrirtækis sem miklar vonir hefðu verið bundnar við. Þá spáði hún rétt fyrir um að Vestmannaeyingar myndu eiga tvo þingmenn að loknum kosn- ingum og nokkur styrr yrði um annan þeirra í lok ársins. Þá spáði hún og áframhaldandi fækkun íbúa í Eyjum. Vel heppnað Eyjaskaup Fjölsýn stóð fyrir Eyjaskaupi í sjón- varpi á gamlaársdag þar sem gert var góðlátlegt grín að mönnum og mál- efnum í Vestmannaeyjum. Þessi fmmraun í gamanþáttagerð þótti heppnast prýðilega. Þróunar- félagið stórskuldugt Á bæjarstjómarfundi kom fram að skuldir Þróunarfélags Vestmannaeyja næmu um 70 milljónum króna og var farið fram á fjárhagslega fyrirgreiðslu frá bænum upp á 20 milljónir. Var það samþykkt með atkvæðum meiri- hlutans.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.