Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Síða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Síða 11
Fréttir / Þriðjudagur 30. desember 2003 11 JÚfí Síldarvinnsla á miðju sumri Um mánaðamótin hófst síldarvinnsla í ísfélaginu og Harpa VE landaði þá fyrstu sfldinni. Skipið hafði leyfi til að stunda veiðar í einn mánuð, frá 25. júní til 25. júlí. Sfldin var einkar góð, stór og falleg og laus við átu. Viðamikil goslokahátíð Við sjálft lá að Þjóðhátíð Vestmanna- eyja stæðist ekki samanburð við þá dagskrá sem sett var upp til að minnast 30 ára goslokaafmælis. Samfelld dag- skrá var frá fimmtudegi til sunnudags og eitthvað fyrir alla. Listsýningar, ljósmyndasýningar, tónleikar, sögu- stundir, fyrirlestrar, gönguferðir, sigl- ingar, dansleikir og þetta er aðeins brot af því sem upp á var boðið. Hátíðin hófst með því að Högni og Anna í Vatnsdal tóku fyrstu skóflustunguna að uppgreftri húsa og síðan rak hvert atriðið annað fram á sunnudagskvöld þegar hátíðinni lauk í Skvísusundi sem fékk loksins formlega nafnbreytingu á hátíðinni. Mikill fjöldi sótti hátíðina, ekki síst gamlir Vestmannaeyingar ofan af fastalandinu. Þá kom forseti fslands í heimsókn ásamt eiginkonu sinni og margir fulltrúar erlendra ríkja. I goslokanefnd sátu þeir Andrés Sig- mundsson, Amar Sigurmundsson og Páll Scheving en framkvæmdastjóri hátíðarinnar var Andrés Sigurvinsson. Átök í ferðamálageiranum Á stjómarfundi í Ferðamálasamtökum Vestmannaeyja var samþykkt að víkja formanninum, Sigurmundi Einarssyni, úr stóli og tók varaformaðurinn, Ruth Zohlen við. Ástæða þessa var sögð sú að formaðurinn hefði látið sitt fyrir- tæki hafa forgang í kynningum á vegum samtakanna. Sigurmundur neitaði því og sagðist hafa unnið af heilindum fyrir samtökin. Sumarstúlka og Herra Vestmannaeyjar Sumarstúlkukeppnin var á sínum stað en nú var aukið við hana og herra Vestmannaeyjar einnig valinn. Átta stelpur og fimm strákar tóku þátt í keppninni sem þótti takast einstaklega vel. Sædís Eva Birgisdóttir var valin sumarstúlka og Stefán Atli Agnarsson herra Vestmannaeyjar. Skipt um bæjarstjóra Það hafði legið í loftinu að nýr meiri- hluti hygðist gera ýmsar breytingar í rekstri bæjarfélagsins. Þegar lá fyrir að ýmsum yrði sagt upp störfum en hvað mesta óvissan var um afdrif Inga Sigurðssonar bæjarstjóra. Svo fór að ákveðið var að Ingi hætti og Bergur Elías Ágústsson tæki við. Margir lýstu sig andsnúna þessu ráðslagi meirihlutans og sögðu Inga hafa staðið sig vel í starfi. Engi ástæða væri til að segja honum upp störfum. Þá þótti og sýnt að biðlaun hans, vegna uppsagnarinnar, myndu nema nokkrum milljónum. Meiri breytingar Meirihluti bæjarstjómar ákvað að fara í þær breytingar á stjómskipulagi sem Jón Gauti Jónsson, hjá IBM ráðgjöf, hafði lagt til. Það þýddi að ráðnir vom fjórir framkvæmdastjórar að jafn- mörgum sviðum. Viktor Stefán Pálsson lögfræðingur var ráðinn fram- kvæmdastjóri stjómsýslu- og fjár- málasviðs, Hera Osk Einarsdóttir félagsfræðingur, framkvæmdastjóri félags- og fjölskyldusviðs, Andrés Sigurvinsson kennari og leikari framkvæmdastjóri fræðslu- og menn- ingarsviðs og Frosti Gíslason iðn- tók Eyjamaðurinn Magnús Amgríms- son, viðskiptafræðingur. Óvlssa um brekkusöng Að þessu sinni snemst áhyggjur þjóðhátíðamefndar ekki aðallega um það hvort veður yrði gott á þjóðhátíð. Aðaláhyggjumar voru í sambandi við brekkusönginn á sunnudag þar sem ekki var á hreinu hvort Ámi Johnsen fengi frí úr afplánun sinni á Kvía- bryggju til að stjóma söngnum. Aftur á móti var ákveðið að Róbert Marsh- all, fréttamaður, yrði kynnir á hátfðinni í stað Áma. Gísli Valur skattakóngur Að venju var skattaálagning lands- manna birt í lok mánaðarins. I Vestmannaeyjum var það Gísli Valur Einarsson, hóteleigandi og fýrrverandi útgerðarmaður, sem var á toppnum með rétt tæpar 12 milljónir króna í gjöld. í öðm sæti var Olafur Einars- son skipstjóri með rúmar 10 milljónir og í þriðja sæti Smári Steingrímsson læknir með tæpar 8 milljónir. Ágúst: Hús ungs fólks 1 burðariiðnum Sá draumur að koma upp menningar- og kaffihúsi fyrir ungt fólk í Vest- mannaeyjum virtist nú vera að verða að vemleika. Áhugahópur, sem komið var á fót að ffumkvæði Barkar Grímssonar, bankastjóra, hafði unnið að hugmyndinni og fengið húsnæði að Vestmannabraut 36 þar sem áður var verslunin Eyjablóm. Sögðust for- svarsmenn hópsins stefna að þvf að Sannkölluð karnivalstemmning var á goslokahátíðinni og marglitir borðar og blöðrur settu svip á bæinn þá daga opna Húsið, eins og staðurinn var sem hátíðin stóð yfir. nefndur, seinna á árinu. rekstrarfræðingur, framkvæmdastjóri umhverfis- og ffamkvæmdasviðs. Aðeins Hera Osk hafði áður starfað hjá bænum, hinir þrír em allir nýir í embætti. Ekki voru allir bæjarbúar sáttir við þessa nýskipan mála. Ný Smáey Nýtt skip bættist í Eyjaflotann í júlí, Smáey Ve 144, í eigu Bergs Hugins afmæli fyrirtækisins og að sjálfsögðu bakaðar nokkrar hnallþómr í tilefni þess. Bergur Sigmundsson bakari sagði að lykillinn að góðum árangri fyrirtækisins væri góð þjónusta og gott starfsfólk. HHamet á Stórhöfða Veðurblíðan var mikil þetta sumar og hærri hitatölur í Vestmannaeyjum en Fjölskylduvæn þjóðhátíð Þjóðhátíðin að þessu sinni var í góðu meðallagi en talið var að um 8000 manns hefðu sótt hana. Veðurvarffá- bært og hátíðin fór í alla staði vel fram. Forsvarsmenn hennar lögðu áherslu á að þjóðhátíðin væri fjöl- skylduhátíð. Lítið var um alvarleg slys að sögn læknis og aðeins tveir leituðu á neyðarmóttöku vegna kyn- ferðislegs ofbeldis. Lögreglumenn vom ánægðir með hvemig til tókst þó svo að um 30 fíkniefnamál hefðu komið upp. Fastir liðir vom sam- kvæmt venju í skemmtidagskrá en hvað mest eftirvænting var bundin því hvort Ámi Johnsen myndi stjóma brekkusöngnum. Svo fór þó ekki en formaður þjóðhátíðamefndar las bréf frá Áma þar sem hann m.a. vandaði ekki fangelsisyfirvöldum kveðjurnar og sakaði þau um brot á mann- réttindum. Róbert Marshall stjórnaði svo brekkusöngnum og þótti standa sig með prýði. Forsvarsmenn þjóðhátíðar vom ánægðir með hátíðina en voru ósáttir við háan löggæslukostnað vegna hennar. Skip nr. 1000 Skipalyftan fagnaði þeim áfanga um mánaðamótin að 1000. skipið var tekið upp í lyftuna. Það var Brynjólfur ÁR sem var skip nr. 1000. Vilberg 20 ára Vilberg kökuhús hélt upp á 20 ára starfsmenn vom við fiskeldið, þeir Smári Harðarson kafari og Sverrir Haraldsson sjávarútvegsfræðingur. Þeir sögðu að stefnt væri að því að fiskurinn í kvínni tvöfaldaði þyngd sína til áramóta. Rannsóknir gengu vel Ármann Höskuldsson, jarðfræðingur, stjómaði leiðangri á rannsóknaskipinu Veiddi forijótan furðuflsk Knattspymukonan Olga Færseth sýndi og sannaði að hún kann ýmislegt fleira fyrir sér en að leika fótbolta. Hún er ein af afkomendum Binna í Gröf og brá sér í róður með frændum sínum á Portlandi VE. Veiðiferðin gekk að óskum, að vísu var aflinn ekki mikill en aftur á móti fékkst ein forljót kynjaskepna sem talin var vera af hákarlaættum. Sorgarsaga Fjórtán starfsmönnum Islenskra mat- væla var sagt upp störfum og fyrirtækið selt til Reykjavíkur. Islensk matvæli vom keypt tfl Vestmannaeyja að undirlagi Þróunarfélagsins en rekst- ur fyrirtækisins var frá upphafi ein sorgarsaga og ljóst að tap vegna þessa verkefnis nemur tugum milljóna. Stefán, Hallgrímur og Þórarinn héldu upp á það að skip nr. 1000 var tekið upp í Skipalyftunni. Jaiðgöng möguleg Armann Höskuldsson, leiðangursstjóri Stefán Atli Agnarsson var valinn herra Vestmannaeyjar og Sædís Eva Birgisdóttir sumarstúlka. ehf. Skipið er rúmlega ársgamalt, 327 brúttótonn, smíðað í Kína og var Smáey eldri látin ganga upp í kaupin. Bæði útgerðarmaður og áhöfn vom hin ánægðustu með nýja skipið. Keyptu gömlu Fiskiðjuna Hótel Express á Islandi keypti þrjár efstu hæðimar í húsnæði gömlu Fiskiðjunnar þar sem m.a. voru verbúðir áður. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagðist sjá fyrir sér ný tækifæri í hótelrekstri en fyrst og fremst væri þetta fjárfesting. Aftur á móti hygðust þeir vinna framhaldið í samvinnu við heimamenn. menn almennt mundu eftir. Og hita- met var sett þegar hitinn á Stórhöfða fór í 20° fóstudaginn 18. júli'. Reyndar hafði hiti sama dag árið 1924 mælst 21,2° en Oskar Sigurðsson, veðurat- huganamaður í Stórhöfða sagði að mælingar hefðu á þeim tíma ekki verið jafn áreiðanlegar og nú. Tilraunaeldi á réttri lelð Fiskeldið í Klettsvík í kvínni sem áður hýsti Keikó, gekk vel. Tveir fastir Áma Friðrikssyni þar sem botnlög á Vestmannaeyjasvæðinu voru rann- sökuð. Var tilgangurinn m.a. að kanna hvort gerð jarðganga væri möguleg, með tilliti til botnlaga. Ármann sagði að leiðangurinn hefði gengið vel en eftir væri að rýna í gögnin. Nýr bankastjóri Börkur Grímsson, útibússtjóri íslands- banka í Vestmannaeyjum, fór í námsleyfi í eitt ár og við starfi hans

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.