Harmoníkan - 31.05.1990, Side 4
GARÐAR JÓHANNESSON
Garðar með "Scandalli" harmoníku, myndin er tekin 1949
cJóhannes Garðar
Jóhannesson - betur þekktur
án fyrra nafns, er sonur liins
landskunna harmoníkuleikara
Jóhannesar GJóhannessonar,
og til að rugla þeim feðgum
ekki saman, var fyrra nafninu
oftast sleppt í daglegu tali.
Garðar er einn af þekktustu
harmoníkuleikurum okkar og
nú í sumar eru liðin 50 ár frá
því hann lék fyrst fyrir dansi
og er hann enn að.
Þeir eru orðnir margir sem
Garðar hefur leikið með í gegn
um árin, með sumum stuttan
tíma en öðrum í mörg ár en ef
við nefndum alla þá vœri ekki
fleira á þessari síðu. En látum
Garðar segjafrá.
*
Eg er fæddur að Mógilsá á
Kjalarnesi 8. júlí 1925. Faðir
minn vann við akstur mjólkur-
bíls á Álafossi og móðir mín
Thelma Ólafsdóttir vann þar
einnig en ól mig á Mógilsá. Við
fórum strax til Reykjavíkur og
ég hef átt þar heima síðan.
Manstu hvað þú varst gamall
þegar þú fórst spila á harmo-
níku?
Veturinn eftir að ég fermist
þá kaupir pabbi stóra hnappa-
harmoníku og ég fór í nokkra
tíma til Sigurðar Briem sem bjó
þá á Laufásveginum. Ég átti
heima á Leifsgötunni og þurfti
að bera hana fram og til baka.
Sumarið eftir 1940 fór ég í
sveit, en þá kom pabbi með
harmoníku til mín. Hann hafði
haft skifti á gömlu harmoník-
unni, en hún var svo þung að
hann réði ekki við hana og fékk
tvær hnappaharmoníkur í stað-
in. Hann kom með aðra til mín
og kennir mér á hana þrjú lög,
en ég kunni ekkert nema
nokkra skala á hnappaharmo-
níku eftir veturinn og þetta
sumar spilaði ég á balli á Minni
Borg þegar ég hvíldi Eirík á
Bóli. Hann neyddi mig til þess
- sagði við mig, þú hlýtur að
geta spilað og hvílt mig. Ég
sagði ef hann væri ekki lengur
en þrjú lög, þá skyldi ég
hvíla. Hann stóð við það og
kom eftir þessi þrjú lög.
Manstu hvaða lög þetta voru?
Já - þetta voru Viltu með
mér vaka í nótt, Pep og
Kolbrún mín einasta. Það er það
fyrsta sem ég man eftir að hafa
spilað fyrir dansi. Svo var það
um tveimur árum seinna að ég
eignast píanóharmoníku og þá
skifti ég alfarið yfir á píanó-
borðið. Á þessum árum var
erfitt að fá harmoníku, en ég var
svo heppinn að fá eina með tog-
ara, smyglaða frá Englandi.
Scandalli hét hún, fjagra kóra
með einni skiftingu. Síðan hef
ég átt margar harmoníkur, ég
hafði svo góða aðstöðu til að
skifta. Þegar ég fór að spila
með öðrum þá var það Róbert
4