Harmoníkan - 31.05.1990, Qupperneq 6
fór, hálfgerðar svaðilfarir þá
voru vegirnir ekki eins og þeir
eru núna. Ég man eftir að fara
til Ólafsvíkur 1945 eða 6 og
varð að sæta sjávarföllum til að
komast þangað. Eitt sinn var ég
að spila á Minni Borg og átti þá
Paolo-Soprani. Þetta var langt
ball og ég var orðinn þreyttur,
þegar festingar fyrir ólarnar að
ofan losnuðu og ég missti
harmoníkuna í gólfið. Sem
betur fór þá var ég með bakól,
eins og alltaf, og því féll hún
ekki eins harkalega í gólfið. Það
var ansi erfitt að klára ballið án
þess að hafa ólarnar á nikkunni.
Eitt sinn fór ég með Halldóri
á Kárastöðum og Ólafi Hólm að
spila á Vatnsleysuströndinni
einhvertíman fyrir 1950. Lárus
Salomonsson var þar og ætluðu
heimamenn að ganga frá honum
þannig að allt logaði í
slagsmálum. Það varð svo
mikill atgangurinn að Halldór
lét okkur pakka saman en
bíllinn var við dyr sem voru til
hliðar við sviðið. Við fórum
með allt út í bíl, trommusettið
síðast en þó kom Halldór
síðastur með harmoníkuna á sér
og komst inn í bílinn. En við
urðum að bíða í bílnum í
rúmann klukkutíma því við
komumst ekki í burtu.
Einn vetur spilaði ég mikið
með Jónatani og fleirum á stað
sem hét "Camp Tripoli" beint á
móti þar sem Trípolíbíó stóð.
Við spiluðum frá kl. 9 og til kl.
12 en þá kom iðuglega
hljómsveitin af Hótel Borg og
tók við . Það er það eina sem ég
hef spilað fyrir herinn. Um árið
1945 spilaði ég á sunnudögum í
Rauðhólum, hér fyrir ofann
bæinn með Karli Jónatanssyni.
Það var ansi mikið að gera á
þessum tíma. Við vorum að
spila einhverstaðar suður með
sjó á laugardagskvöldið, í
Tríó Svavars Gests - Svavar á trommunum, Arni Isleifs við píanóið og
Garðar með harmoníkuna.
Rauðhólum daginn eftir og
um kvöldið í Hveragerði, en
þá var Jenni Jónsson með okkur
á trommunum.
A síldveiðiárunum var spilað
á plönunum og alltaf í land-
legum. Ég man eftir að á Seyð-
isfirði spilaði ég 9 kvöld í röð í
landlegu. Um sumarið 1952
spilaði ég oft með Baldri Júlíus-
syni frá Keflavík. Þá var hann á
Guðmundi Þórðarsyni en ég á
Faxa. Það hitti oft þannig á að
við lentum saman í landlegum.
Við spiluðum saman á Þórs-
höfn, Raufarhöfn og Vopna-
firði. Einhverju sinni fórum við
upp í sveit í Vopnafirði og
ætluðum bara að skemmta
okkur. Það var bara einn að
spila og þegar hann sá okkur,
þá vildi hann láta hvíla sig. Var
sendur jeppi niður á Vopnafjörð
til að sækja harmoníkurnar
okkar, því hamioníkan sem
hann átti var svo léleg að það
TríóJónatans Ólafssonar 1947-8 frávinstri: Jónatan, Garðar
og Skafti Olafsson.