Harmoníkan - 31.05.1990, Síða 14
LANDSMÓT AÐ LAUGUM
Nils Flácke kemur
Myndfráfyrsta landsmóti S.I.H.U. - Frá vinstri: Reynir Jónasson, Bragi
Hlíðberg, Grettir Björnsson og Jóhannes Pétursson. (Ijósm.Helgi Kolb.)
Nú styttist óðum tíminn fram
að landsmóti S.Í.H.U. að Laug-
um í Þingeyjasýslu dagana 22.
- 23. og 24. júní n.k.
Hljómsveitir og einstaklingar
eru væntanlega að fínslípa það
sem á að flytja og má búast við
að þetta fjórða landsmót verði
það fjölmennasta til þessa en nú
verða tónleikar á tveim dögum í
fyrsta sinn.
Svíinn Nils Flácke verður
sérstakur gestur mótsins og
heldur tvenna tónleika, en hann
er einn þekktasti harmoníku-
leikari Svía. Þetta er í fyrsta
sinn sem erlendum gesti er
boðið og trúlegt að vera hans á
mótinu auki aðsóknina. Þá er
víst að efnisskrá harmoníku-
félagana verður fjölbreytt, en
við hjá HARMONÍK UNNI
sendum öllum formönnum
félaganna bréf, og báðum um
upplýsingar um efnisskrá og
fleira sem viðkæmi lands-
mótinu. Þegar blaðið fór í
prentun höfðu eftirtalin svör
borist.
Frá F.H.U.E.
Stærð hljómsveitar u.þ.b. 16-
19 manns, stjórnandi Atli Guð-
laugsson. Lög á efniskrá eru:
Að ganga í dans, Ramóna,
Tiger-Rag, Bærinn okkar, Á
Sprengisandi, syrpa af íslensk-
um tangóum. Blús ÍC og lag úr
samkeppni um lag vegna 10 ára
afmælis F.H.U.E.
Kvintett með lögin: Hilsen til
Trondheim, Ole Guapa, Þing-
vallamars, Swedish rapsody og
mars úr Carmen.
Einleikari Einar Guðmundsson,
efnisskrá óákveðin og eins um
fleiri einleikara.
14
Frá H.F.H.
Átta manna hljómsveit undir
stjórn Kristjáns Gissurarsonar
frá Eiðum mun taka þátt í
hljómleikum og flytja lög eftir
innlenda og erlenda höfunda
t.d. Árna ísleifsson og Andrew
Walter. Á þessari stundu hefur
ekki verið ákveðið með dúett
eða kvartett en skýrist væntan-
lega á næstu dögum.
Frá H.F.R.
Landsmótsdagskrá er ekki
alveg fullmótuð hvað lagaval
varðar. Ljóst er að Valdimars
Auðunssonar verður minnst
með flutningi á lögum eftir
hann. Ágrip af dagskrá lítur
þannig út:
Níu manna harmoníkuflokkur
undir stjórn Grétars Geirs-
sonar. Dúett, Grétar Geirsson
og Eyþór Guðmundsson.
Einleikur, Grétar Geirsson.
Frá F.H.U.R.
Um 15 manna hópur undir
stjórn Þorvaldar Björnssonar
munfara á landsmót frá félag-
inu og hefur lagt aðaláherslu á
að æfa 6 lög. Einleikarar verða
Bragi Hlíðberg, Grettir Björns-
son og Jakob Yngvason.
Frá H.R.
Ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun um fjölda
þátttakenda í landsmóti né
ákveða lagaval.
Við þökkum svörin og getum
bætt við að lagið „Drömmen
om Elin" verður spilað í
sameiningu allra hljómsveita á
mótinu. Ef þú vilt vita meira -
komdu þá á landsmótið.
Hittumst að Laugum.
Þ.Þ.