Harmoníkan - 31.05.1990, Side 17
DALAFERÐ SUMARIÐ 1989.
Það var föstudaginn 24.
ágúst að fjórtán félagar úr
Harmoníkufélagi Rangæinga
lögðu í ferð vestur í Dali.
Ætlunin var að heimsækja
Harmoíkufélagið Nikkólínu og
taka þátt í dansleik með þeim.
Lagt var af stað um hádegisbil
frá Hellu. Þessi föstudagur var
einn af þeim sjaldgæfu dögum á
Suðurlandi, þegar sólin skín á
heiðríkum himni og náttúran
skartar sínu fegursta.
Ákveðið var í skyndi að fara
Kaldadal vestur, þar eð veðrið
væri svo gott. Stansað var á
Þingvöllum og nikkurnar dregn-
ar fram. Dró sú uppákoma fljótt
að sér gesti og gangandi. En
áfram var haldið vestur yfir
fjöllin. Fyrir neðan Kalmann-
stungu var áð, enda menn
orðnir kaffiþyrstir mjög. Að
lokinni kaffidrykkju var spilað
af innlifun, þangað til að ein-
hver, sem ekki spilaði, benti á
að löng leið væri fyrir höndum
og ball um kvöldið.
Áfram var því haldið og
stefnan tekin vestur. Þegar að
brúnni á Norðurá hjá Hnausum
kom, var hún lokuð. Tekið var
það ráð að fara Grjótháls til að
komast leiðar sinnar. Um
kvöldmatarleytið komum við í
næturstað á Efri-Brunná. Eftir
að hafa satt hungrið var farið að
búa sig á ballið. Að Tjarnar-
lundi mættum við svo galvösk
með nikkumar okkar við hlið.
Heimamenn hófu dansleikinn
með fjölmennu harmoníkuliði,
síðan tóku Rangæingar við um
stund. Skipst var á að spila alla
nóttina, en í lokin var blanda úr
báðum félögum komin á sviðið
og ekki mátti milli sjá, hvorir
skemmtu sér betur, dans-
FerÖalangar á Kaldadal
gestir eða hljóðfæraleikarar. Að
loknum morgunverði daginn
eftir var farið með nikkumar út
í góða veðrið og þær þandar um
stund áður en farið var í út-
sýnisferð um nágrennið.
Eftir hádegi lögðum við
síðan upp í heimferðina. Farið
var nú fyrir Klofning til að auka
víðsýnið. Þegar að Bifröst í
Borgarfirði kom, fengu menn
loksins kaffið sitt. Áð var í
fögrum skógarlundi og eftir að
allir vom orðnir saddir voru
hljóðfærin dregin fram og
Hreðavatnsvalsinn leikinn fyrst-
ur laga. Þegar hér var komið
sögu var spilagleðin komin á
svo hátt stig, að spilað var í rút-
unni það sem eftir var ferðar.
Spilað var til skiptis og keppt-
ust menn um að sýna hæfni
sína. Heim komu ferðalangar
ánægðir en þreyttir eftir vel-
heppnaða ferð.
Félögum úr Nikkólínu þökk-
um við ánægjulegt kvöld og
góð kynni sem vonandi eru að-
eins uphafíð að meira samstarfi.
Sigrún Bjarnadóttir.
Frá vinstri efri röð: Vigfús Sigurðsson, Kjartan Ólafsson.Grétar Geirsson.
Fremri röð: Guðmundur Ágústsson, Valdimar Auðunsson og Sigrún Bjarnadóttir
J