Harmoníkan - 31.05.1990, Qupperneq 18
Fjölmenn ársháb'ð F.HJJ.R. 1990
Þekktir árshátíðargestir taka lagið með hljómsveitinni.
Þar kom að því, níundi mars
rann upp bjartur og sólríkur, snjór
yfir öllu, ekki sást á dökkan díl.
Við vorum komnir suður á
Keflavíkurflugvöll Yngvi Jó-
hannsson form. F.H.U.R., og ég að
taka á móti Sigmund Deli og Siver
Olstad frá Noregi.
Flugleiðavélin F.I. 203 lenti kl.
15:40 að staðartíma og áður en
varði vorum við á fljúgandi ferð í
átt til Reykjavíkur með tvo tónlist-
armenn er skapað höfðu umtal og
eftirvæntingu vegna árshátíðar
F.H.U. í Reykjavík 1990.
Fyrst hafði ég samband við Sig-
mund D. í september ’89 út frá
þessari hugmynd og síðan af og til
eins og gengur símleiðis og bréf-
lega, allt hafði staðist sem staðist
gat og nú var hann kominn með
félaga sinn Siver Olstad frá Stjör-
dal í Tröndelag.
Kl. 14:00 tíunda mars var æfing
í Breiðfirðingabúð með íslenska
hluta hljómsveitarinnar, Þóri
Magnússyni trommara og Þor-
steini Þorsteinssyni gítarleikara,
Eyþór Guðmundsson var líka
mættur með harmoníkuna sem
fengin var að láni hjá honum og
Sigmund ætlaði að nota í stað
kontrabassaleikara á dansleiknum
er þar að kæmi.
Æfingin stóð stutt því allt small
saman á augabragði, enda S. Dehli
ánægður með meðspilarana.
Um miðjan dag tók að snjóa og
hvessa, svo skall á svarta bylur að
varla sá milli húsa. Við áttum von
á yfir 30 manns utan af landi og
var veðrið farið að skjóta
skemmtinefndinni skelk í bringu
enda stoppaði síminn ekki og
spurt var hvort aflýsa þyrfti há-
tíðinni.
Óveðrið gekk niður er líða tók á
dag og árshátíðin hófst á tilsettum
tíma, uppselt var í mat og eftir
hann (200 manns), nokkuð sem
ekki hafði gerst áður. Bóluefnið
sem skemmtinefndin bruggaði
hafði hrifið og allt gekk eins og
smurt og allir sem gátu voru
komnir. Bragi Hlíðberg lék meðan
á borðhaldi stóð og skóp notalegt
andrúmsloft strax í upphafi.
Skemmtiatriði þóttu fjölbreytt og
voru skipulögð af sérstakri nefnd
og tókust vel í alla staði með þátt-
töku hátíðargesta. Siver Olstad lék
einleik og kynnti tónlist frá Lom í
Guðbrandsdal. S. Dehli lék einnig
og sýndi svo ekki var um villst
hvað í honum býr, ótrúleg tækni
og kunnátta, hver nóta innsigluð
og ljóslifandi, hvert þrumustykkið
á fætur öðru. Hann var hylltur
með að vera tvíklappaður upp
með dynjandi lófaklappi og menn
stóðu upp honum til heiðurs. Dans
var stiginn fram á nótt með undir-
leik Dehli og félaga, einnig tón-
listafólki og söngvurum undir
stjórn Sigurgeirs Björgvinssonar,
sem skiptu með sér verkum.
Stemmningin var frábær og frjáls
blanda harmoníkuleikara tók á
stundum í belginn með hljóm-
sveitinni.
Athyglisverð er umsögn Svein
Sollid frá Hallingdal í Noregi,
kunningja S. Dehli sem var þarna
Sigmund Dehli og Siver Olstad á cefingu.
18