Harmoníkan - 31.05.1990, Side 20
Hittumst í Galtalækjarskógi
13. -14. & 15. júlí 1990
Myndin er tekin í Galtalcekjarskógi á síðasta sumri. (mynd Örlygur Eyþórsson)
Undanfarin ár hefur harmo-
níkublaðið staðið fyrir
samkomu í Galtalækjarskógi
eina helgi og þá oftast í
júnímánuði. Hersvegna erum
við að þessu? Því fylgir
fyrirhöfn en í staðinn njótum
við gleðinnar sem ríkt hefur á
staðnum eins og sést á síaukinni
þátttöku Þó að bindindis-
hreyfingin hafi yfirumsjón með
svæðinu, þá hafa þeir ekki verið
með neinar athugasemdir þó að
fólk væri að skemmta sér á
góðri stund.
Við höfum öll, sem sótt hafa
mótið kappkostað að ganga vel
um en skemmt okkur vel innan
velsæmismarka. Það þarf varla
að taka það fram, að allir eru
velkomnir hvort sem fólk er í
harmoníkufélagi eða ekki en
munið umfram allt að taka með
góða skapið og harmoníkumar
- ekki má gleyma þeim.
Fyrir þá sem ekki vita hvar
Galtalækjarskógur er á landinu,
þá er best að aka eftir þjóðvegi
eitt - suðurlandsvegi. Rétt
austan við miðja vegu milli
Þjórsár og Hellu er vegur nr.
26 Er ekið eftir honum til
norðurs, í áttina að Búrfelli. Það
er drjúgur spölur að Galta-
lækjarskógi en afleggjarinn inn
á svæðið frá veginum leynir sér
ekki frekar en skógurinn. Það er
raunar merkilegt að hann skuli
vera enn til, svo nálægt Heklu
sem hefur sent frá sér ösku um
allt í nágrenni við sig. En það
sést ekki þegar komið inn í
skóginn, þó varla væri kvartað
ef einhveijum dytti í hug að
hafa með sér poka af áburði.
En að lokum - göngum vel
um skóginn eins og við höfum
alltaf gert, þá verðum við
velkomin aftur.
Þ.Þ.
Vfsur þær sem fara hér á
eftir, voru samdar sérstaklega
fyrir F.H.U.R. og fluttar á árs-
hátíð félagssins 10. mars s.l.
Templara í hárri höll
Harmoníkur hljóma
Heyra þyrfti þjóðin öll
þessa fögru hljóma
Spaugsamir og sprcekir menn
spila á harmoniku
Og gera fleira oftar en
einusinni í viku
Mikið konur þeirra þar
þeytast fram og aftur
Kaffi er til örvunar
undraverður kraftur.
Að baka það er þeirra list
Þekkja smekkinn rétta
iiafa margir karlar kysst
konur fyrir þetta
Og í sumar cetla þcer
austur að Galtalceknum
Staður sá er körlum kœr
og konum skyldurœknum
Útiskemmtun er þargóð
*
Ymsir þetta muna.
Úr tjöldum heyrist tónaflóð
í takt við náttúruna
Hita kaffi konur þar
krjúpandi á dýnum.
Úthluta svo ánœgðar
ástarpungum sínum
Harmoníkan ennþá er
yndi flestra manna.
Illa í þeirra eyru fer
öskur popparanna.
20
Texti: Númi Þorbergsson