Harmoníkan - 01.02.1999, Side 3

Harmoníkan - 01.02.1999, Side 3
FRÆÐSLU, UPPLYSINGA OG HEIMILDARIT FELAGA S.I.H.U. OG ANNARRA AHUGAMANNA STOFNAÐ I4.APRIL 1986 Ábyrgð: Hilmar Hjartarson, Ásbúð 17, 210 Garðabæ, símar 565 6385 & 896 5440 Netfang: harmonikan@simnet.is Ritvinnsla: Hjörtur E. Hilmarsson Prentvinnsla: Prenttækni hf. Blaðið kemur út þrisvar á ári. í október, febrúar og maí. Gíróreikningur nr. 61090-9. Meðal innihalds blaðsins: Viðtalið: Vilberg Vilbergsson . 4 Geysilegt Bjarnaball..........6 Hin eilífa spurning ..........7 Tónskáldakynning Ágúst Pétursson og fleira... 8 Nýtt harmonikuborð........10 Með Frosinitónlist........11 H.F.Þ. 20 ára.............13 Handrit fyrir næsta blað þurfa að berast fyrir 1. apríl 1999. Auglýsingaverð: 1/1 síða kr. 9.500 1/2 síða kr. 6.500 1/4 síða kr. 3.500 1/8 síða kr. 2.500 AUGLÝSIÐ í HARMONIKUNNI ódýrasta auglýsingaverðið MARKMIÐ Hér í byrjun vil ég óska öllum áskrifend- um Harmonikunnar gæfu og gengis á komandi ári með þökk fyrir gott sam- starf liðins árs. Þá vil ég þakka sérstaklega hvatningar og þakkar- orð til blaðsins sem bárust í kortum um jólin. Forspjall mitt í þessu blaði verður að mestu helgað spurn- ingum án afgerandi svara. Þó er ætlun mín að spurningarnar vekji máls á um- ræðuefninu. Þar á ég við sjálfan mig og aðra er vilja leita svara í umræðu dag- anna um okkar málefni. Ekki er heldur ætlunin að særa neinn, heldur ýta við þeim er ráðin hafa í höndum sér. Ef menn halda að framtaksleysi ríki, spyrja menn. Eg er ekki einn um að finnast að tregða eða öllu heldur að hula værðar- leysis liggi í loftinu innan raða harmon- ikuunnenda þessa lands! Ekki gott að segja, en hverjar eru byltingarkenndustu stökkbreytingar síðastliðinna 10 ára? Skemmtifundir, dansleikir og ferðalög? Varla, en það er auðvitað gott með öðru! Með þessu hlýtur samt að þurfa að út- færa nánari markmið og leiðir til mark- vissari framfara eftir að einhverjum aur- um hefur verið nurlað saman! Harmon- ikugjafir til tónlistarskóla, eru það ekki markmið? Jú, heldur betur og það hefur einnig komið mörgu góðu til leiðar! Er þá ekki Iíklega aukin þörf á námskeið- um fyrir kennara, eða gera kröfur um lágmarks kunnáttu kennara? Samræmingar hlýtur að vera þörf svo vissa sé fyrir að kennsluaðferðirnar séu réttar. Margir tónlistarkennarar sóttu eitt námskeið fyrir um tveimur árum hjá ítalanum Renzo Ruggieri við miklar vinsældir, en tæpast getur það hafa nýst öllum. Það hlýtur að vera til skrá yfir harmonikukennara í landinu. Þá er líka auðvelt að miðla upplýsingum eftir að OG LEIÐIR vitað er, hver á að miðla þeim? Eiga fé- lögin sjáll’að standa að því eða S.Í.H.U? Kostnaður, hver á að bera hann? Ein að- ferð er að halda tónleika til að standa straum af kostnaði. Endalaust má spyrja og velta vöngum. Spurningin er þó til alls fyrst. Enn má bæta við, sem furðu vekur, að aldrei sjást í dagblöðum skrif um hvað verið sé eða ætlun sé að fram- kvæma innan harmonikugeirans, þrátt fyrir að tilnefndur hafi verið sérstakur fjölmiðlafulltrúi S.Í.H.U. Enn má spyrja, er ekki þörf á að safna saman eða komast að því hvernig nálgast megi tónlist frá ýmsum eldri lagahöfundum er samið hafa dans eða dægurtónlist og koma því á einn stað til varðveislu? Ein- staka menn þekkja lög forfeðra sinna, sem ekki eru til skrifuð en gætu spilað þau inn á hljómsnældu eða myndband. Nefnd gæti komið til greina er hefði það hlutverk að nálgast höfunda, aðstand- endur eða ættingja til að safna slíku saman. En hver á að móta nefndina? Margt fleira hefur auðvitað gerst og er að gerast, s.s. kynning á harmonikunni í barnaskólum, sem er hið allra besta mál og má ekki leggjast af. Við vitum líka að viðhorf til harmonikunnar er allt annað og betra nú en fyrir 20 árum. En betur má ef duga skal! Eg held nú samt að upprunalega hafi engum komið til hugar að gera félögin að gömludansa- samtökum beint. Almenningur hefur yndi af góðum harmonikuleik, það er ljóst. Slíkan meðbyr hlotnast ekki öll- um. Siglum því þöndum seglum og not- færum okkur meðvindinn sem best. Forðumst staðvindabeltið. Hilmar Hjartarson Forsíðumyitdir: Efri mynd: Vilberg Vilbergsson í létt- um leik að Núpi í Dýrafirði síðast- liðið sumar. Neðri mynd: Grettir Björnsson leik- ur á barmi Strokks í Haukadal dag- inn eftir hið magnaða „Bjamaball" í fyrrasumar. 3

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.