Harmoníkan - 01.02.1999, Síða 12

Harmoníkan - 01.02.1999, Síða 12
Alþjóðlega Frosinifélagsins 1998. Nú er einungis eftir að sjá hvernig ganga muni að stofna félagsskap hérlendis. Eg er sannfærður um að víða sé vilji fyrir hendi í landinu. Hjá metnaðarfullum kennurum í harmonikunámi er Frosini gjarnan ein- hvern tíma á dagskrá. Þegar nemendur hafa öðlast öryggi í námi þarf að skapa grundvöll til metorða. HVERS VEGNA FROSINI - HVER VAR FROSINI? Maðurinn bak við tónlistina sem grein þessi fjallar um hét fullu nafni Pietro Frosini. Hann var fæddur á Sikiley árið 1885, og lést árið 1951, þá aðeins 66 ára gamall. Hann hafði eytt mestum parti ævi sinnar í Bandaríkjunum. Pietro Frosini var heimsfrægur harmonikusnillingur og markaði varanleg spor í tónlistarlíf heimsins. Hann skildi eftir sig u.þ.b. 400 tónsmíðar ásamt heilmiklu af ýmis konar óperutónlist. Flest verka Frosinis eru leikin enn í dag um allan heim, og lítur svo út að endurfæðingarbylgja Frosinis sé í sífelldum gangi um víða veröld. Harmonikutónlist Frosinis er mikið byggð á æfingaferli því sem harmoniku- leikarar þurfa á að halda í námi og leik. Meiningin er að fjalla nánar urn þennan mikilsmetna snilling í blaðinu síðar. RÁÐSTEFNAN - STOFNFUNDUR- INN í STOKKHÓLMI Lars Ek sem verið hefur formaður F.S. frá upphafi (1985) setti þennan l'yrsta al- þjóðlega fund og kynnti fulltrúa hinna 7 landa rækilega. Fyrsta skal nefna Lars Ek og Stefan Eiriksson frá Svíþjóð, Robert Rolston frá Skotlandi, Oleg Sharov frá Rússlandi, John Mandelid frá Noregi, Kristian Rusbjerg og Jens-Peter Nielsen frá Danntörku, Seppo Lankinen frá Finn- landi og Hilmar Hjartarson frá Islandi. Lars benti á að aðrar þjóðir hefðu sýnt mikinn áhuga á að vera með, s.s. Frakk- land, Italía og Baltnesku löndin. Of langt mál yrði að telja upp alla umræðu fund- arins, en málefnin skorti ekki. Meðal mála var að auka samvinnu landanna, at- huga grundvöll fyrir stofnun félags í við- komandi landi, mikill áhugi ungra harm- onikuleikara á Frosinitónlist, upplýsinga- streymi, keppnir og fl. Þetta var söguleg- ur fundur sem vonir eru bundnar við í framtíðinni. FYRSTA EVRÓPUKEPPNIN í FROSINITÓNLIST Keppnin hófst kl.13 í glæsilegum tón- leikasal Döbbelnsgatan 3 með þátttak- endur frá fyrrnefndum löndum nema ís- landi. Helena Halleland frá Noregi 18 ára, Magnus Jonsson frá Svíþjóð 16 ára, Oleg Sharov einn affremstu harmonikuleikurum heims, gestaspUarí og dómari, leikur hér á hátíðartónleikunum rússneskan dans „Kalinka". Finninn Seppo Lankinen var dómari og gestaspilari rétt nýkomin úr uppskurði, með fyrirmœli lœknisins að spiia í Itófi. Hann er léttur og viðrœðugóður náungi. wtomsm > VERKSTÆÐI TIL ALHLIÐA VIÐGERÐA Á HARMONIKUM AÐ KAMBASELI 6 RVK. HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUÐNA í SÍMA 567 0046 / 845 4234 Alexander Matrosov frá Rússlandi 17 ára, David Nisbet frá Stóra-Bretlandi 16 ára, Kristian H. Rusbjerg frá Danmörku 20 ára, og Henrik Sandos frá Finnlandi 17 ára tóku þátt. Reglur voru þær að hver keppandi lék tvö lög. Skylt var að leika eitt Frosinilag, annað mátti vera eftir Deiro eða annan höfund ámóta að styrkleika. Dómarar voru sjö. Sex af þeim voru lokaðir bak við vegg, en aðal dómarinn ( Lars Ek ) var á senu að fylgjast með belgdrætti og tækni. Keppendur voru kynntir með númeri er þeir sjálfir höfðu dregið. Mikill keppnisandi var meðal keppenda og eftir- vænting meðal áhorfenda. Ungmennin sem fram komu bjuggu yfir mikilli tækni og sýndu feikna tilþrif. DÓMURINN UPPKVEÐINN Yfirdómarinn kom svo fram og til- kynnti fyrsta Evrópumeistarann í Frosini- tónlist. Spennan jókst og er sigurvegar- inn var kynntur kvað við mikið lófatak. Evrópumeistaratitilinn 1998 hlaut hinn 17 ára Finni, Henrik Sandos frá Hy vinge. Hann hafði stundað nám í harmonikuleik fráárinu 1992. Reglur varðandi næstu keppni um Norðurlandameistaratitilinn eru þær, að hún verður haldin í heimalandi vinnings- hafans. Þá er aðeins eftir að fá svar við hvar í Finnlandi hún verði haldin árið 1999. Stóra spurningin er, verða Islend- ingar meðal keppenda? HARMONIKUKONSERT Botninn í þennan skemmtilega dag var síðan sleginn með hátíðarkonsert. Þar komu allir keppendur fram aftur, hálfu öruggari en í keppninni. Gestaspilarar voru þeir Seppo Lankinen, ákaflega ljúf- ur og fingralipur Finni, víðförull og þekktur, ásamt Rússanum og tónlistar- prófessornum Oleg Sharov. Honum á ég engin orð yfir, það eina sem mér dettur til hugar er að vonast eftir að Islendingar fái fyrr en seinna að heyra sjálfir þennan stórkostlega meistara leika. Hann mun vera einn af bestu harmonikuleikurum heims. Meðal annarra lék Lars Ek þarna, og hann sýndi að hann hefur engu gleymt. Ekki verður annað sagt en að þessi Fros- inihelgi hafi borið mann inn á nýtt þekk- ingarsvið, og það má undirstrika að allir þeir aðilar er við sögu komu á ráðstefn- unni voru sammála um að gera þurfi átak í að efla harmonikuna m.m. og Frosini- tónlist í framtíðinni. 12

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.