Harmoníkan - 01.02.1999, Page 13
Harmonikufélag Þingeyinga 20 ára
Harmonikufélag Þingeyinga stóð á
þeim tímamótum síðastliðið vor að verða
20 ára. Stofndagur félagsins og þar með
löggiltur afmælisdagur var 4. maí 1978.
Vorið er ávallt heppilegasti tíminn l'yrir
ungviðið að líta tilveruna augum og jafn-
framt trygging til öruggrar fótfestu og
lífs. Þingeyskir harmonikuunnendur tóku
fljótt við sér eftir að hreyfing var komin á
með stofnun harmonikufélags fyrir sunn-
an (F.H.U.R.) um að stofna sjálfir félag,
enda mikill tónlistaráhugi og hefð innan
héraðsins svo langt aftur sem elstu menn
muna. I bókinni Fiðlur og Tónmannlíf í
Suður-Þingeyjasýslu er ágætis yfirlit um
áhuga Þingeyinga, hljóðfæraeign, hljóð-
færasmíðar og fleira í þeim dúr. Ekki er
heldur annað að heyra en norðursýslan
hafi líka hljómað af hljóðfæraleik og
söng í tímans rás. Innan H.F.Þ. er fjöldi
harmonikuleikara, margir vel þekktir um
allt héraðið og utan þess, nöfn sem tengd
verða sögu harmonikunnar um ókomin
ár. Eins og flest, ef ekki öll harmonikufé-
lög í landinu er það byggt upp með
harmonikuleikurum og áhugafólki er
vinna saman að sameiginlegu markmiði.
Mikið starf liggur að baki 20 ára félagi,
en ekki er ætlunin að fara nema lítið út í
þá sögu hér.
Aður en við lítum inn á sjálfa afmæl-
ishátíðina langar mig að vitna í orð nú-
verandi formanns H.F.Þ., Sigurðar Frið-
rikssonar þar sem hann segir m.a. í for-
ystugrein 20 ára afmælisrits félagsins:
„Margs er að minnast frá þessu tímabili.
Horfnir eru margir af okkar gömlu harm-
onikuleikurum og einnig menn á besta
aldri, menn sem héldu merki félagsins á
lofti og unnu að framgangi þess af heil-
um hug. Blessuð sé minning þeirra. Svo
vel vill þó til að flestir ef ekki allir þessir
menn voru teknir upp á myndband við
hljóðfæraleik sinn. I gegnum þessi 20 ár
hafa hljóðfæraleikarar félagsins, einstak-
lingar svo og danshljómsveitir og félags-
hljómsveitir verið teknar upp á hljóm-
snældu og er til mikið magn af þessari
tónlist", segir Sigurður í grein sinni. Þetta
atriði fínnst mér til mikillar fyrirmyndar
hjá félaginu og ætti að vera öðrum
áminning og hvatning til að gera slíkt hið
sama. Hvort heldur félag starfar áfram
eður ei standa minningarnar fyrir sínu um
menn og málefni.
I veglegu afmælisriti sem gefið var út
í tilefni afmælisins er margt góðra greina
Stjórn H.F.Þ. Fráv. Sigurður Friðriksson, formaður, Erlingur Vilhjálmsson gjaldkeri, Rósa
Þórðardóttir meðstjórnandi, lnga Hauksdóttir meðstjómandi, Grímur Vtlhjálmsson ritari og
Stefán Þórisson veislustjóri.
Frá v. Sigurður Indriðason F.H.U.E. og varaform S.I.H.U., Sigurður Friðriksson formaður
H.F.Þ. og Stefán Þórísson veislustjóri H.F.Þ. Myndin er tekin er Sigurður Indriðason afhenti
H.F.Þ. blómfyrirhöndS.Í.H.U.
Hér leikur Jón Árni Sigfússon H.F.Þ. fyrir nuitargesti Ijúfa listaukandi borðtónlist.
13