Harmoníkan - 01.10.2000, Page 4
S.Í.H.CI. 20. ára
Samband ís-
lenskra harmo-
nikuunnenda verður
tuttugu ára 3. maí
næstkomandi. Samkvæmt heimildum
blaðsins eru þegar hafnar þreifingar um
að fá til landsins erlendan harmoniku-
leikara, sem gæti farið um landið og
kynnt hljóðfærið í tilefni afmælisins. Að
mínu mati þarf að ígrunda þess háttar
mál gaumgæfilega. Blaðið telur að slík-
ur aðili þurfi að geta leikið listir sínar á
breiðu sviði, ekki einangraður við ákveð-
ið tónlistarform, þ.e. háklassik, jass eða
framúrstefnu. Léttleikinn dregur flesta til
sín. Annars megum við ekki gleyma
áheyrendum,heimamönnunum, og því
sögulega. Eins og áður hefur verið dregið
fram í blaðinu, eru ekki einhverjir heið-
urs verðir á slíkri stundu?.
Á þessum 20 árum hafa 5 formenn
stýrt sambandinu, þeir Karl Jónatansson,
Ingvar Hólm-
geirsson, Yngvi
Jóhannsson, Sigrún
Bjarnadóttir og núv-
erandi formaður er Jóhannes Jónsson.
Meira um sögu S.Í.H.U. síðar í blaðinu.
Aðalfundur S.Í.H.U. fór fram að Hótel
Vin í Eyjafjarðarsveit í lok september s.l.
og mun verða fjallað nánar um hann í
næsta blaði.
H.H.
Fálag Harmonika
unnenda við
Eyjafjörð
20 ára
Félag harmonikuunnenda við
Eyjafjörð varð tuttugu ára 5. október s.l..
Vegleg samkoma var af því tilefni haldin
að Laugaborg í Eyjafjarðarsveit 30.
september. Þar sem allt pláss í blaðinu
var þegar uppbókað, verða fréttir af
afmæli félagsins að bíða næsta blaðs.
H.H.
filþjóðkg
Hormonikuhótíð í Rcykjavík
Helgina 14,-16. júlí var haldin í
Reykjavík alþjóðleg harmoniku
hátíð í samvinnu við
Reykjavík ntenningarborg Evrópu
2000. Aðalhvatamaður að hátíðinni
Jónatan Karlsson sagði í viðtali á rás
96,2 að hátíðin væri tónlistarlegur
sigur fyrir harmonikuna. Fjöldi
erlendra gesta var á hátíðinni og lék á
ýmsum stöðum í borginni og mun
hátíðin hafa tekist vel. Vonir standa til
að hægt verði að segja nánar frá
hátíðinni í næsta tölublaði.
H.H.
Þorvaldur Björnsson hazttur
Daníel Bjarnason hefur verið
ráðinn stjórnandi hljómsveitar Félags
harmonikuunnenda í Reykjavík.
Daníel er 22 ára og hefur lokið námi í
píanóleik, en stundar nú nám í
hljómsveitarstjórn og tónsmíðum.
Hann tekur við af Þorvaldi Björnssyni,
sem stjórnað hefur hljómsveitinni
farsællega frá haustinu 1986 og þar
með á fimm síðustu landsmótum.
H.H.
Harmonikciþáttciriíin lagdur af
Harmonikuþáttur Ríkisútvarpsins í
umsjá Reynis Jónassonar hefur fyrir
nokkru verið tekinn út af dagskrá eina
ferðina enn. í staðinn kemur annar tón-
listarþáttur er ber heitið Blindflug. Sá
þáttur verður í umsjá Margrétar Örn-
ólfsdóttur tónlistarmanns. I fréttatil-
kynningu Morgunblaðsins 4. október
segir um þáttinn. í þessum þætti er
ekkert öruggt nema flugtak og lending.
Ennfremur í fyrsta þættinum kynnir
hún hinn egypska Mozart, en í næsta
þætti leikur hún tónlist af spiladósum
stórum og smáum!
Þessum óréttlátu breytingum hljóta
allir harmonikuunnendur að mótmæla
harðlega. Hver er skýringin á þessu?
Að fjarlægja þá einu harmonikutóna
er heyrast á útvarpsrás, er með öllu
óskiljanlegt. Samband íslenskra harm-
onikuunnenda verður að senda harð-
orð mótmæli til Ríkisútvarpsins og fá
þessari ákvörðun breytt hið snarasta.
Því miður er ekki svo margt sem
minnir á okkar vinsæla hljóðfæri í op-
inberum fjölmiðli á borð við útvarp og
sjónvarp. Síðasti harmonikuþátturinn í
bili, vonandi, var sendur í loftið 27.
september.
Af þættinum er mikil eftirsjá.
H.H.
4