Harmoníkan - 01.10.2000, Side 13
Formaðurfœr-
eyska harmoniku-
félagsins Isak N.
Jacobsen þakkar
góðar móttökur.
(1999) hefðu þeir byrjað að gefa út harm-
onikublaðið „Bjólgurin" sem teldi sextán
síður. Blaðið sé félagsblað og ætlað að
halda saman félagsheimildum ásamt
ýmsu öðru er varðaði harntonikuna. Eitt
blað sé komið út en ekki ákveðið,
hvenær næsta blað birtist. Færeyska
harmonikufélagið heitir „Ahugafelag fyri
föroyskar Harmonikutónleikarar." Og var
fyrsti formaður þess Finnboði Lisberg. I
loka orðum sínum sagðist formaðurinn
þakka af heilum hug móttökur og gest-
risni Harmonikufélags Reykjavíkur.
Björn Olafur tók til máls og minnti á
vinnu og stuðning eiginkvenna í félags-
starfinu."" Við erum ekkert án kvenn-
anna“, sagði hann og þakkaði jafnframt
öllum sem höfðu lagt hönd á plóg, já
Færeyingarnir höfðu sýnt hvað í þeim
Hér stilla saman tvöfalda tóna nokkrir fœreyingar með Ólaft Þ. Kristjánssyni.
bjó í ferðinni. 1 þessu skemmtilega
kveðjuhófi tók Kristinn Valdimarsson
lagið við góðar undirtektir gesta. Loks
spiluðu allir saman, og stigu menn léttan
dans. Þá má geta þess, að harmonikufé-
lagar í Færeyjum fara síðla sumars ár
hvert í ferð með Norrænu til Bergen og
spila um borð. Þá bjóða þeir alltaf gesta-
spilara með. Meðal þeirra hafa verið Sig-
mund Dehli, Harvard Svensrud og Örvar
Kristjánsson og eru þessar ferðir orðnar
svo vinsælar, að allt pláss selst upp á
augabragði, þegar þær eru auglýstar.
Daginn eftir kveðjustund H.R. hélt
hópurinn til Norðfjarðar í heimsókn til
Félaga í Félagi harmonikuunnenda á
Norðfirði, þar sem þeir endurguldu heim-
sókn Norðfirðinga til Færeyja tveimur
árum áður. Egill Jónsson tónlistarkennari
á Neskaupstað og Færeyjavinur var með
þeim í allri ferðinni og kynnti þeim land
og þjóð. Þeir héldu svo af landi brott með
Norrænu 20. júlí.
H.H.
Kazru ksendur
Sendið blaðinu smágreinar
og frásagnir til birtingar.
Útgefandi
Hátíð harmonikunnar í maí 2000
Ekki eru neinar ýkjur að fullyrða, að
Harmonikufélag Reykjavíkur hafi svo
um munar haldið uppi merki harmon-
ikunnar allt frá stofnun þess, 1986. Þá er
og ljóst að ekki hefur farið framhjá undir-
rituðum að á þessu ári virðist sent ein-
hver nýr vaxtarbroddur sé í uppsiglingu
innan félagsstarfsins, eða einhver léttari
rordi svífí þar yfir belgjunt.
í raun er alls ekki auðvelt að skil-
greina á einfaldan hátt starf félagsins í
fáunt orðum, en almenningur verður trú-
lega mest var við Dag harmonikunnar og
Hátíð harmonikunnar. Félagið hefur gert
sér far um að koma samkomum sínum á
framfæri í blöðum ogjafnvel sjónvarpi. í
raun hefur orðið æ meiri reisn yfir öllu
þessu klukkuverki félagsins með árunum.
Hátíð harmonikunnar er punkturinn yfir
„iið“ í lok hvers starfsárs og fór síðasta
hátíðin fram 27. mai í Ásgarði Glæsibæ
síðastliðið vor.
Margt góðra upprennandi harmoniku-
leikara kom þar fram ásamt hljómsveit-
um. Allar gengu kynningar vel fyrir sig
sem og önnur skipulagning. Að auki
Leifur
Þor-
bergs-
son einn
margra
gestaspilara
frá Isafirði lék
Emorine eftir Mich-
ael Larcange og Accor-
deon Mechanic eftir Domi.
13