Harmoníkan - 01.02.2001, Blaðsíða 7
verð að segja að af því hefði ég ekki vilja
missa. Valdimar Auðunsson var aðal-
hvatamaður að stofnun þess og mikill
eldhugi. A sjötugsafmæli sínu í Gunnars-
hólma lét hann liggja umsóknareyðublöð
á borði fyrir þá sem vildu gerast félagar
og gengu þá fjölmargir í félagið.
Duglegir stjórnendur og formenn hafa
stýrt félaginu, fyrst Valdimar, síðan Sig-
rún Bjarnadóttir og nú Jóhann bróðir
hennar. Ég hef stjórnað hljómsveit fé-
lagsins og höfum við gefið út einn geisla-
disk. Reyndar hef ég komið við að spila á
nokkrum diskum með bæði Karlakór
Selfoss og Árneskórnum. Þá lék ég með
Gretti Björnssyni inn á disk með lögum
Valdimars Auðunssonar. Einnig átti ég
þátt í sólódisk, sem Ari Jónsson söngvari
gaf út, að ógleymdri plötu með Guðjóni
Matthíassyni og einhverju tleiru hefi ég
tekið þátt í á þessum vetvangi.
Þrátt fyrir miklar annir er manni hlýtt
til þessa tíma, þó bæði hafi verið skyn og
skúrir. Stundum baslaði maður í ófærð,
en sem betur fer lenti ég aldrei í neinum
stórslysum. Reyndar lenti ég tvisvar í bíl-
veltum á leið í spilamennsku, annað
skiptið í glórulausum byl undir Ingólfs-
tjalli. Bíllinn ráfaði útaf, á toppinn, en
engin slys urðu á fólki. I hitt skiptið snar-
snérist bíllinn á hálku, fór útaf og á hvolf.
Við vorum tveir í bílnum en menn og
hljóðfæri sluppu þá líka. Reyndar tók ég
eftir því, er ég kom heim undir morgun
að sokkarnir voru ekki á fótum mér. Þeir
höfðu brunnið í sundur af rafgeymasýru.
Harmonika nútímans!
Mikið hefur breyst, því áður fyrr má
segja að harmonikan hafí mest verið not-
uð sem danshljóðfæri. Svo kom rokkið,
tvistið og síðan Bítlarnir. Einn sagði við
mig nokkuð undrandi, að hann hafi aldrei
heyrt áður spilað rokk á harmoniku. Við
skulum bara athuga, að allt er hægt að
spila á harmoniku!
Svo er það náttúrulega klassíkin, hún
heyrist mun meir nú orðið. Nú er allt
annað viðhorf og mér líkar það.
Harmonikukeppnir
Grétar er ekki alveg sáttur við hvernig
Islendingar standa að vígi gagnvart
keppnum. og segir það grundvallaratriði í
framtíðinni, að íslendingar auki þátttöku
sína á því sviði, enda séum við tíu til tutt-
ugu árum á eftir nágrannaþjóðunum í
þessari þróun. „Harmonikan er orðin
mjög þróað hljóðfæri á Norðurlöndum,
Ítalíu, í Rússlandi og Þýskalandi og við
stöndum þessum þjóðum langt að baki,
hvað þessa þróun varðar. Það þarf að
fjölga keppnum í harmonikuleik“, segir
Grétar.
„Heimsóknir allra þessara færu erlendu
harmonikuleikara hafa haft nokkur áhrif,
svo ég tali nú ekki um erlendu kennar-
ana. Ég sótti til dæmis námskeið í hitteð
fyrra hjá Italanum Renso Ruggieri“. Og
Grétar heldur áfram. „Harmonikan á eft-
ir að vera topphljóðfæri áfram, hún er á
leiðinni í tónleikasalina, þó hún verði
sterk áfram á þjóðlega sviðinu og harm-
onikumótin hér á landi hafa þjappað fólki
saman. Það er stórmerkilegur þáttur í já-
kvæðri þróun. Að lokum vil ég segja
þetta.Blaðið Harrrionikan er ómissandi
þáttur í harmonikustarfinu. Þaðan fær
maður upplýsingar um t.d. hvað er að
gerast á landsvísu. Ég hef verið áskrif-
andi frá upphafi og ætla mér ekki að
hætta því. Ég vil svo óska Harmonikunni
og harmonikuunnendum góðrar framtíð-
ar“, sagði Grétar Geirsson að lokum.
Hilmar Hjartarsson
Hljómsveit Óskars Guðmundssonar á Selfossi 1963-64. Frá v. Asgeir Sigurðsson, saxófónn,
klarinett, sólógítar, Leifur Guðmundsson, gítar, Arnór Þórhallsson söngvari, Óskar Guð-
mundsson pípulagningameistari og trommuleikari, Elín Backmann söngkona, Loftur S. Lofts-
son bassi, og Grétar Geirsson, harmonika.
TIL SÖLU EXCELSIOR
harmonika 4 ára með
sænskum gripum,
svört að lit.
Konsert hljóðfæri í
úrvalsflokki.
Upplýsingar:
Ólafur í síma
562 2099
VERÐLAUN
Dregin verða út 4 nöfn
skuldlausra áskrifenda
14. apríl 2001
á 15. ára stofndegi blaðsins.
Verðlaun:
Aðgöngumiði á stjörnutónleika í
Langholtskirkju 5. maí 2001.
7