Harmoníkan - 01.02.2001, Blaðsíða 10
Evrópcimeistarakeppnm 2000
Frosini Gramd Prix
Allir keppendurnir í Frosini Grarnl Prix 2000. Frá v. Grettir Björnsson Islandi, Kristian
Rusbjerg Danmörk, Magnus Jonsson Svíþjóð, Erik Sildelid Noregi, Alexander Satsenko Rúss-
landi, og Liisa Ojantausta Finnlandi.
Haustið 1998 var ég viðstaddur þegar
fyrsta Evrópumeistarakeppnin í Frosini-
tónlist, fór fram en það ár var Alþjóðlega
Frosinifélagið stofnað. Þá gerðist ég full-
trúi Islands, og árið eftir mætti ég með
fyrsta íslenska keppandann til þátttöku.
Það var Matthías Kormáksson sem varð
fyrstur íslenskra ungmenna til að taka
þátt í alþjóðlegri harmonkukeppni. Þann
18. nóvember 2000 var á ný brostinn á
stór dagur í íslenskri harmonikusögu á
erlendri grund. Við vorum mættir til leiks
í smábænum Hammarstrand í norður
Svíþjóð. Nú var korninn í slaginn hinn
landskunni Grettir Björnsson er skyldi
takast á við keppendur frá fimm þjóðunt.
Þegar kom fram á haustið 2000 stóðu
mál þannig, að ekkert ungmenni gaf sig
fram á Islandi til þátttöku í Frosini Grand
Prix árið 2000. Þá var þetta nefnt við
Grettir Björnsson og hvort hann væri til í
að mæta sem fulltrúi íslands í keppnina.
Hann tók málaleitaninni vel og eftir
nokkurn umþóttunartíma kom jákvætt
svar. Loks þann 16. nóvember kom að
brottför, sem reyndar dróst um tæpa
klukkustund í Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar. Sólin roðaði himininn er flugvélin
lyfti sér upp fyrir skýin, í 38,000 feta
flughæð. Flugferðin var mjög þægileg og
ekki skorti okkur ferðafélögunum um-
ræðuefni. Áður en við vissum af lá Sví-
þjóð undir vængjum. Á Arlanda flugvelli
tók einn af meðlimum Frosinifélagsins,
Kalle Westling á móti okkur og bauð
heim til sín í mat og hvað annað sem
lysti. Hann hafði einnig tekið að sér rúss-
neska keppandann Alexander Satsenko.
Um kvöldið mættu allir keppendur ásamt
fylgdarmönnum sínum í innanlandsflug
til norður Svíþjóðar, til bæjar sem heitir
Kramfors og þaðan var ekið í rútu inn í
mitt land til Hammarstrand. Eitthvað
misskildum við Grettir vegalengdina, að-
eins fimmtán mílur sögðu Svíarnir. Eftir
þriggja stundarfjórðunga akstur fórum
við að líta hvor á annan, fannst þetta vera
langar mílur. Það kom líka á daginn að
ein svokölluð sænsk míla eru tíu kíló-
metrar. Loks eftir um tveggja tíma akstur
blasti hótelið við í Hammarstrand. Við
fengum svefnpláss í sama herberginu,
sem var með kojum og ekki stærra en
meðal apabúr. Laugardagsmorguninn 18.
nóvember hófst hin árlega ráðstefna með
10
fulltrúum þjóðanna. Var þar fjallað um
stöðu harmonikunnar og framtíð ásamt
umræðum varðandi samvinnu þjóðanna,
Frosinimál og fjölmargt annað. Það er
ótrúlega mikil upplifun að eiga þátt í
þessari atburðarrás með fólki, sem vinnur
að heilum hug við að lyfta harmonikunni
á hærri stall. Það kom fram á
ráðstefnunni að keppni sem þessi
útheimtir mikla vinnu. Það að skapa
Hljóðfærinu og þeim sem því unna betri
farveg til metnaðarfullra afreka, gerist
ekki sjálfkrafa. Keppnin fór svo fram í
nær fullsetnu kvikmyndahúsi í Hammar-
strand, seinna þennan sama dag. Kepp-
endur komu fram í þessari röð. Kristian
Rusbjerg 21 árs Dani, Erik Sildelid 23
ára Norðmaður, Alexander Satsenko 16
ára Rússi, Liisa Ojantausta 14 ára Finni,
Islendingurinn Grettir Björnsson og
Magnus Jonsson frá Svíþjóð 21 árs. Sem
skyldulag léku allir keppendur Olívu-
blómið eftir Pietro Frosini, en svo var
frjálst val á öðru Frosini verki og valdi
Grettir, Hugrakka Nautabanann. ( The
Brave Matador). Það má teljast ótrúleg
tilviljun að engin lék sama lag í sjálfsval-
inu.Undirritaður fékk gæsahúð af stolti
þegar Grettir steig á svið fyrir íslands
hönd. Dóntarar voru þeir Seppo
Lankinen frá Finnlandi, Oleg Sharov frá
Rússlandi.Tveir dómaranna voru
sænskir, þeir Henry Jonsson og yfirdóm-
arinn Lars Ek. Allir keppendurnir stóðu
sig frábærlega vel en enginn áhorfanda
varð þó undrandi þegar dómararnir
kváðu upp sinn dóm. Evrópumeistari í
Frosinitónlist árið 2000 varð hinn sextán
ára Alexander Satsenko frá Rússlandi.
Framúrskarandi nikkari frá St. Péturs-
borg. Hann lék á Rússneska „Viktor“ pí-
anóharmoniku. Allir aðrir en hann og
Grettir léku á hnappaharmonikur. Alex-
ander stundar nám í St.Pétursborg og
stefnir á tónlistarháskóla og meistara-
gráðu í harmonikuleik. Alexander hefur
áður tekið þátt í harmonikukeppni og
vann m.a. til fyrstu verðlauna á Spáni
fyrir nokkrum misserum. Eftir keppnina
hófust tónleikar með öllum keppend-
unum auk Lars Ek, Seppo Lankinen og
Oleg Sharov hinum rússneska stórmeist-
ara og prófessor í harmonikuleik og var
það mikið og töfrandi tónaflóð. Grettir
Björnsson valdi að leika við þetta tæki-
færi tvö íslensk lög, Ljósbrá eftir Eirík á
Bóli og Ausfjarðarþokuna eftir Inga T.
Lárusson. Undirtektir fullvissuðu mann
um að áheyrendum félli íslenskir tónar
vel í geð. Á staðnum munduðu margir
fjölmiðlamenn búnað sinn og Áke
Benktson frá svæðisútvarpinu tók upp á
band það sem fram fór. Hann spurði mig
nokkurra spurninga um íslenskt harmon-
ikulíf og um keppnismál hér á Fróni.
Stórkostleg upplifun var á enda er undir-
strikaði enn mikilvægi slíkrar keppni og
góðrar samvinnu meðal þjóða. Stórveisla
var svo um kvöldið í veislusal hótelsins
með mat drykk og fjölbreyttum skoðana-
skiptum og ræðum. Harmonikutónar
hljómuðu enn í höfði manns daginn eftir,
alla leið til Stokkhólms.
H.H.