Harmoníkan - 01.02.2001, Side 12
Félag
harmonikucinnenda
við Eyjafjörð 20 dra
Afmælishátið F.H.U.E. var haldin með
viðhöfn laugardaginn 30. september
síðastliðinn í Laugaborg í Eyjatjarðar-
sveit. Félagið var stofnað 5. október
1980. Þar sem aðalfundur S.Í.H.U. var
Smekkfullur salur affólki á 20
haldinn í tengslum við afmælið var sam-
ankominn auk fjölda félagsmanna for-
menn annara félaga og fleiri til að sam-
gleðjast á þessum tímamótum í sögu fé-
lagsins.
Starfsemi innan F.H.U.E. hefur alla tíð
staðið með blóma. Verið fjölbreytt og
spannað vítt svið. Meðal annars hefur fé-
lagið haft samvinnu við önnur harmon-
ikufélög varðandi ferðalög, dansleiki og
fleiri samkomur. T.d. fór hópur úr félag-
inu á mót til Kristiansand í Noregi 1989
sem kallað var Atlanderhavs Basseralle.
Þá hefur félagið staðið að mótshaldi á
Breiðumýri í samvinnu við nágrannafé-
ára afmœlinu við kvöldverðinn.
lagið í Þingeyjarsýslum frá sumrinu 1991
og er það harmonikumót orðin ein nafn-
togaðasta samkoma þeirrar gerðar á land-
inu. Á vegum félagsins hefur nokkrum
sinnum verið efnt til lagakeppni og fór
ein slík fram í tengslum við afmælishófið
í sumar. Félagið hefur alltaf verið þátttak-
andi á landsmótum
Samkvæmt upplýsingum blaðsins er
F.H.U.E. eina félagið á landinu, sem hef-
ur keypt hússeign undir starfsemi sína, en
árið 1997 var undirritaður kaupsamning-
ur við Lúðrasveit Akureyrar þess efnis,
að F.H.U.E. keypti fjórðung í húsinu við
Laxagötu 5 á Akureyri
Félagið gefur út fréttabréf og miðlar
þannig ýmsum upplýsingum til félaga
sinna. Á 10 ára afmæli félagsins var gef-
ið út veglegt afmælisrit. Stefnt er að því
að sérstakt rit komi út í tilefni 20 ára af-
mælisins.
Mikið var lagt í afmælishófið. Dag-
skráin var ströng við borðhaldið en allt
small saman. Formenn harmonikufélaga
stigu á svið og voru fáorðir en gagnorðir
við afhendingu gjafa til F.H.U.E. og frá-
farandi formaður félagsins, Jóhannesi
Jónssyni var afhentur blómvöndur í til-
efni afmælis síns þetta kvöld.
Svanhildur Leósdóttir og söng gaman-
vísur og lék undir á gítar og söngkonan
Þórhildur Örvarsdóttir gladdi gesti.
Haukur Ingimarsson lék einleik á ein-
falda harmoniku og skemmti viðstöddum
á besta hátt enda sérlega góður fulltrúi
þessarar tegundar harmonika. Laga-
keppni fór fram og mörg áhugaverð lög
komu þar fram í dagsljósið. Sérstök
hljómsveit lék keppnislögin fimm sem
valin voru í úrslit. Hljómsveitina skipuðu
þeir Hörður Kristinsson á harmoniku,
Davíð Þór Helgason á bassa, Fróði Odds-
son á gítar, Konráð Aðalsteinsson á
trommur og Bjöm Leifsson á klarinett og
var hann jafnframt hljómsveitarstjóri.
Vinningslagið var Gauragangur eftir Jón
Heiðar Magnússon frá Akranesi. Það lag
sló í gegn svo ekki sé meira sagt.
Ekki var laust við að dansfiðringur hafi
verið hrokkinn fram í tær þegar laga-
keppninni lauk enda kom á daginn gólfið
fylltist við fyrsta lag eftir að dansinn
BORSINI
VICTORIA
Gæða harmonikur
77/ sölu Excelsior harmonika, model 940 professional. Möguleiki aó
taka 3ja til 4ja kóra harmoniku upp í, helst Borsini. Verð 290 þús.
S. Ólafsson & Co. ehf. Æsufelli 4, sími 587 1304
Tölvupóstur s-olafsson@islandia.is Heimasíða www.islandia.is/s-olafsson
Til sölu Harmonika
Mjög góð EXELSIOR svört að lit
3. Hóra IÍO bassa 7. shiptingar
i hljómborði 3. í bassa.
Uplýsingar gefur Jón ■
síma 505 0611 eða 865 0743
12