Harmoníkan - 01.02.2001, Blaðsíða 13
hófst og hélst þannig til enda. Margar
hljómsveitir héldu uppi fjörinu enda um
auðugan garð að gresja innan umrædds
félagsskapar og mikið um góða harmon-
ikuleikara og annað tónlistarfólk.
Fyrsti formaður F.H.U.E. var Hannes
Arason en aðrir formenn er haldið hafa
um stjórnvölinn eru Arni Þorvaldsson,
Jóhann Sigurðsson, Sigurður Indriðason
og Jóhannes Jónsson. Núverandi formað-
ur er Jóhann Sigurðsson.
Að lokum óskar Harmonikan félaginu
heilla um ókomna tíð og þakka dyggum
áskrifendum blaðsins í umdæminu öllu
góðan stuðning í gegnum árin. H.H.
Makalaus óvissa.
Helgina 29. september til I. október
s.l., var haldinn í tengslum við 20 ára
afmælishátíð F.H.U.E. að Hrafnagili í
Eyjafirði, aðalfundur Sambands íslenskra
harmonikufélaga. Þátttakendur mættu
flestir seinnipart föstudags en þeir voru
auk stjórnar landssambandsins, fulltrúar
hinna ýmsu félaga auk maka. Þá voru
mættir margir fleiri góðir gestir víðsvegar
að af landinu, til hátíðarinnar.
Undirritaðar eru svo lánssamar að
tilheyra makahópnum og erum við
þakklátar fyrir að þurfa ekki að sitja
fundi, en þess í stað fleytum við rjómann
af ferðinni og fáum að kynnast mannlífi
og náttúru þeirra héraða sem fundirnir
eru haldnir í. Aðurnefnda helgi var okkur
boðið í óvissuferð um Eyjafjörð.
Eins og alltaf þegar farið er í
óvissuferðir gætti eftirvæntingar í
hópnum um hvert förinni væri heitið.
Farið var sem leið liggur út vestanverðan
Eyjaijörð og ekið undir dynjandi söng og
Von er á góðri heimsókn frá Norður-
löndunum í lok mars n.k. Það eru Nor-
rænu húsin á Islandi, í Grænlandi, Fær-
eyjum og Álandi sem standa fyrir henni
í samvinnu við Musik Vást í Svíþjóð og
Harmonikufélögin í Reykjavík og bjóða
sannkallaða meistaraveislu á stöðunum.
Fjórir norrænir harmonikumeistarar fara
um Norðurlönd og hefja tónlistarflutning
og alþýðlega skemmtun í æðra veldi.
Hver harmonikuleikari hefur sinn eigin
stfl, en allir eiga það sammerkt að vera
miklir snillingar. Þeir bjóða upp á fjöl-
breytt og spennandi lagaval eða allt frá
finnskum tangó yfir í norskan dans. Tón-
listarmennirnir eru þeir María Kalaniemi
frá Finnlandi sem er fædd 1964 og hefur
leikið á harmoniku frá átta ára aldri og
lauk námi við Síbelíusarakademíuna
1990. Hún leikur á venjulega fimm raða
hnappaharmoniku og hefur unnið til
fjölda verðlauna fyrir tónlistarflutning og
gítarleik hins frábæra Núma Adolfssonar,
þar til komið var í Hauganes, sem kúrir
af eyfirsku lítillæti við fjöruborðið.
Við höfnina, hjá lágreistu húsi beið
okkar mótttökunefnd, sem í voru þeir
Elvar Reykjalín og Örn Sigurðsson
(Billi), sem heilsuðu okkur kumpánlega
og buðu okkur að ganga í bæinn, að
gömlum og góðum íslenskum sið. Þegar
inn var komið beið okkar
öndvegisdrykkur, sem skálað var í og við
boðin velkomin í Saltfiskverkunina
Ektafisk.
Þá var saga fyrirtækisins rakin á léttum
nótum og síðan boðið uppá
Spánskættaðan saltfiskrétt, sem vakti
hrifningu gesta (uppskrift fylgdi).
Honum var skolað niður með ísköldum
drykk beint úr frystigeymslunni. Loks
var öllum vísað í herbergi afsíðis. Þar
fengum við áskorun um að bragða á
óvissurétti, sem var í lokuðum potti. Að
launum yrðum við meðlimir í „Rotten
leikið með jasshljómsveitum, þjóðlaga-
hópum og flestum tegundum hljóm-
sveita. Jon Faukstad er 57 ára Norðmað-
ur og prófessor við norska tónlistarhá-
skólann. Jon er jafnvígur á gamla þjóð-
lega tónlist, sem danstónlist og munar
heldur ekki um að leika nútímaverk eins
og hann gerði m.a. þegar hann lék í Nor-
ræna húsinu fyrir u.þ.b. fimmtán árum.
Greta Sundstöm er rúmlega fertug harm-
onikudrottning frá Álandseyjum. Hún
hefur leikið víða um heim og unnið til
verðlauna fyrir glæsilegan leik og þá
ekki síst túlkun á tónlist Pietro Frosini og
Pietro Deiro. Johan Kulberg er rúmlega
tvítugur Svíi, sem leikur á tveggja raða
harmoniku, Hann kom fyrst fram sem
undrabarn sjö ára gamall og hafði þá
numið í fjögur ár. Johan Kulberg er nú
þegar orðin þjóðsagnapersóna um öll
Norðurlönd í Bandaríkjunum og víðar,
en færni hans á hljóðfærið er meira í ætt
skate club“. Og hvað skyldi svo hafa
verið í pottinum, annað en kæst skata ?, -
nema hvað. Allir þátttakendur héldu
heim með félagsskírteini uppá vasann.
Nú var haldið áleiðis til Akureyrar og
ferð ekki linnt fyrr en við Thule
bjórverksmiðjuna, þar sem við lærðum
undirstöðuatriði íbjórgerð. Einhverhefði
nú haldið að nú væri komið nóg, en þar
sem Eyfirðingar eru gestrisnir mjög var
nú ekið í Kjarnaskóg, þar sem boðið var
til veislu
Síðan hélt hópurinn að Hrafnagili eftir
vel heppnaða og eftirminnilega ferð, þar
sem stofnað hafði verið til nýrra kynna,
sem vonandi eiga eftir að endast. Að
lokum viljum við undirritaðar þakka
Eyfirðingum frábæra f'erð undir dyggri
stjórn hinar hugmyndaríku Filippíu
Sigurjónsdóttur og aðstoðarfólki hennar,
Núma Adólfssyni og Guðbjörgu
Hjaltadóttur, þökkum við einnig af
heilum hug.
Guðný og Sigríður (Sirrý) Sigurðardœtur.
við töfrabrögð heldur en hefðbundinn
hljóðfæraleik.
Tónleikar af þessu tilefni verða í Nor-
ræna húsinu í Reykjavík, þriðjudaginn
27. mars.
Bestu kveðjur
Friðjón Hallgrímsson
iIAliMDÍTIKO-
VERKSTÆÐI TIL
ALHLIÐA VIÐGERÐA Á
HARMONIKUM AÐ
KAMBASELI 6 RVK.
HAFIÐ SAMBAND VIÐ
GUÐNA í SÍMA
567 0046 / 845 4234
Konungleg harmonikuvcisla í
Norrazna húsinu.
13