Harmonikublaðið - 01.10.2013, Síða 2

Harmonikublaðið - 01.10.2013, Síða 2
að fundað sé ekki eins oft yfir sumarið. Allir fundir stjórnar hafa verið símafundir, utan einn fundur sem boðað var til að Breiðumýri í enda júK. Segja má að þessi fundur að Breiðumýri sé orðinn að einskonar hefð, því það er nú einu sinni svo að það er mjög gott að stjórnin eigi þess kost að hittast og ráða ráðum sínum minnst einu sinni á ári. Það skal upplýst hér að stjórn sambandsins hefur ekki veitt neinar viðurkenningar það sem af er þessu ári og vil ég koma því á framfæri hér við formenn og stjórnir aðildarfélaganna að þau standi vaktina hvað varðar þá aðila er eiga viðurkenningu frá sambandinu skilið fyrir frábært starf í þágu harmonikunnar. Það má ekki koma fyrir að einhver gleymist bara fyrir smá hugsunarleysi og gleymsku aðildarfélaganna og sambandsins. Rekstur Harmonikublaðsins er í góðum hönd- um, undir styrkri stjórn Friðjóns Hallgríms- sonar og verður ekki annað sagt en að blaðið sé fróðlegt, fjölbreytt og skemmtilegt. Allt út- lit er fyrir að rekstur blaðsins verði í járnum þetta árið og eru fyrir því gildar ástæður, sem óþarfi er að rekja hér. Ég heyri það á ritstjóra að efni og myndir í blaðið mættu berast fyrr, þannig að hægt sé að koma blaðinu út fyrstu viku þess mánaðar er blaðið á að koma. Oska ég hér með eftir að tillit verð tekið til þessa. I síðasta tölublaði varð mér á að gleyma að minnast á fjáröflunardansleik er sambandið stóð fyrir og haldinn var í Asbyrgi, einum af sölum Hótel Islands. Þessi dansleikur þótti takast mjög vel og var vel sóttur, enda var hljómsveitin ekki af verri endanum. Dans- bandið frá Akureyri undir stjórn Einars Guð- mundssonar hélt uppi stanslausu fjöri fram á nótt. Hljómsveitin gaf sitt vinnuframlag til dansleiksins og vil ég því nota tækifæið hér og þakka öllum meðlimum Dansbandsins fyrir frábært framlag til fjáröflunarinnar. All nokk- ur tekjuafgangur varð af þessari uppákomu. S.Í.H.U. hefur ekki marga tekjupósta og er því dansleikur sem þessi kærkominn fyrir sam- bandið. Aðrar tekjur eru gjöld sem aðildar- félögin greiða árlega til sambandsins og svo hluti af ágóða af landsmótí. Það er því ljóst að stjórnin þarf að vera vakandi fyrir öllum tækifærum sem gefast til að afla sambandinu aukinna tekna. Það er ljóst að einhver halli varð á síðasta rekstrarári og við honum verð- ur að bregðast. Það er von mín að vetrarstarf aðildarfélaganna verði sem mest á komandi vetri og að allir stefni að sama marki, að hittast í sínu besta formi á landsmótí að Laugum í Reykjadal í byrjun júlí 2014. Bestu harmonikukvedjur, Gunnar Kvaran,formaður. Ágætí harmonikuunnandi Nú fer sumri að halla og við tekur haustið með sínum fallegu litum og síðan vemrinn sem er okkur öllum harmonikuunnendum skemmti- legur tími. Það sumar sem senn er á enda var í raun svipað síðustu sumrum, hvað varðar harmonikuhátíðirnar og allar skemmtilegu úti- legurnar, þar sem harmonikan var í forgrunni. Ég áttí þess kost að mæta á nokkrar af harm- onikuhátíðum aðildarfélaganna í sumar og fannst mér þær allar mjög skemmtilegar og’ ljóst að mikil sjálfboðavinna var lögð í að gera þær sem glæsilegastar. Eiga þau aðildarfélög sem halda úti þessum hátíðum mikinn heiður skilinn. Ekkert varð af því að S.Í.H.U. héldi útileguhá- tíð í sumar og var ástæðan fyrir því sú að stjórn sambandsins fannst rétt að aðalfundur sam- bandsins fjallaði um þessa hátíð og gæfi grænt ljós á að halda svona hátíð undir merkjum sambandsins, eða hafnaði því, þar sem hátíð sem þessi getur dregið úr aðsókn að öðrum hátíðum sem félögin víðsvegar um landið eru að halda og eru helsta tekjulind þeirra. Ég mun opna þessa umræðu á komandi aðalfundi og fá úr því skorið hvort áhugi sé fyrir því að sambandið standi fyrir útileguhátíð eins og gert var fyrir ári í Árbliki í Dölum. Nú tekur við vetrarstarfið hjá félögunum og má gera ráð fyrir því að aðildarfélögin leggi- mikið upp úr æfingum vegna landsmóts að Laugum næsta sumar. Það hefur verið mín skoðun að veturinn fyrir landsmót sé í raun skemmtilegastí tíminn í starfi félaganna. Allir tilbúnir að leggja sitt af mörkum við að töfra fram það besta úr harmonikunni og vera með í að gera samhljóm sinnar félagshljómsveitar sem fegurstan á komandi landsmóti. Stjórn sambandsins er með stórar væntingar til næsta landsmóts sem verður haldið að Laugum í Reykjadal næsta sumar. Það eru Eyfirðingar og Þingeyingar sem standa saman að þessu mótí. Án þess að á nokkurn sé hallað má gera ráð fyrir því að þetta mót verði enn glæsilegra en fyrri mót. Landsmótsnefnd hefur verið að störfum um all langt skeið og hafa varafor- maður og ritari sambandsins verið tengiliðir stjórnar við landsmótsnefndina. Landsmótíð verður dagana 4. - 6. júlí 2014. Starf stjórnar sambandsins hefur verið með hefðbundnu sniði það sem af er ári, þó svo 2

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.