Harmonikublaðið - 01.10.2013, Side 6
Harmonikuhátíð Nikkólínu og Harmonikuunnenda í Húna-
vatnssýslum var haldin í Ásbyrgi í Miðfirði dagana 14.-16. júní
2013 og tókst, að okkur fannst með miklum ágætum, þar sem
fólk mætti vel, glatt í sinni og í mjög svo góðu formi. Stórsveit
Nikkólínu sá um dansinn á föstudagskvöld, með smá aðstoð frá
Vindbelgjunum og var þar hin besta stemming til klukkan eitt.
Laugardagurinn var með hefðbundnu sniði, skemmtun klukkan tvö,
þar sem nemendur úr Tónlistarskóla Vestur-Húnavamssýslu og fleiri
skemmtu, er þar helst að nefna Guðmund Jóhannesson á Hvamms-
tanga sem spilaði á harmoniku, mjög svo efnilegur nemandi þar og
Að skemmtisamkomu lokinni var kaffihlaðborð að hætti Nikkólínu
og H.U.H. og sala happdrættismiða, en borði með veglegum vinn-
ingum sem gefnir voru af félögum og velunnurum, var stillt upp til
sýnis og gekk salan framar öllum vonum. Nú gafst síðan tími fyrir
spjall, spil og heita pottinn og búa sig undir kvöldið. Sveinn Sigurjóns-
son og hljómsveit spiluðu fyrir dansinum um kvöldið frá klukkan 21
til 1, með smá hléi kl. 22.30 meðan Friðjón Hallgríms dró í happdrætt-
inu.
Það er skemmst frá því að segja að harmonikuhátíðin í Asbyrgi gekk
svo vel, að við erum nú þegar búin að ganga frá samningum fyrir næsta
ár .þ.e. 13.-15. júní 2014. Húsið frátekið, Nikkób'na klár, Sveinn Sigur-
Vebrid lék við gesti á Eaugarbakka
síðan fjölskylduna á Bessastöðum á Heggstaðanesi, þar sem húsfreyj-
an, bóndinn og hestakonan Guðný Björnsdóttir kynnti afkvæmi sín
þrjú, stór og smá að hætti hestamanna á stórmóti, en þau heita Helga
Rún, Magnús Björn og Fríða Rós Jóhannesarbörn. Var þetta hin
besta skemmtun þar sem börnin á Bessastöðum eru mjög fjölhæf og
efnilegt tónlistarfólk og móðir þeirra afbragðs kynnir. Vindbelgirnir
tóku einnig góða syrpu eins og svo oft áður. Melkorka las góða sögu
og stjórnaði samkomunni með glæsibrag.
Hljómsveit Sveirn Sigurjónssonar sá tilþess að engum leiddistá laugardagsballinu. Aðrirí hljóm-
sveitini, Sigvaldi Vjeídsted á harmoniku, Sveinn lngi Sigutjónsson, barnabarn hljómsveitarstjór-
ans á trommur, Jón Guðmundsson á gitar og Jónas Pétur Bjarnason á bassa
Formenn Húnvetninga og Nikkólinu taka sporið glansandi Jinar. Sólveig Friðriksdóttir og
Asgerður Jónsdóttir
jóns ráðinn, Tónlistarskólinn pantaður til að skemmta á laugardeg-
inum, aðeins eftir að framleiða og finna vinningana í happdrættinu
og smá skipulag þegar nær dregur.
Hafið þið öll sem aðstoðuðuð og voruð með okkur í Ásbyrgi í sumar,
hjartans þakkir fyrir ógleymanlega helgi 14.-16. júní. 2013.
Með bestu kveðju, Sólveig og Melkorka
Myndir: ValurHaraldsson, Bjarney G. Valdwiarsdóttir
Frá vinstri, að leika á laugardagstónleikunum. Þorvaldur Pá!sson(\Saldi á Bjargi),
EHsabet Einarsdóttir og Guðmundur Jóhannesson
6