Harmonikublaðið - 01.10.2013, Síða 11
Félagar úr Det Danske Harmonika Akademi á sviöi
GunnarKvaran formaður SIHU og Einar GuÖmundsson ásamt Jens, Reid-
ar og Mogens
færaleik á harmoniku og bassa, hann leikur
þarna stórt hlutverk á mótinu hvað það varðar.
Fjölskyldan öll starfar að mótinu, því eiginkon-
an leikur einnig með Harmonikufélagi Jyderup
og sonurinn Cristian er afbragðs bassaleikari,
sem lék mikið á mótinu. Hinn ungi Sören Brix
sem hér er flestum kunnur sýndi þarna yfir-
burðaspilamennsku, verð að segja hann á ofur-
flugi í færni. Þá kemur sterkur inn
Norðmaðurinn Odd Arne Halaas æði þéttholda
náungi sagður um 180 kíló, leikur á harmoniku
og syngur stútfullur af gleði, nikkan er eins og
barnaleikfang framan á honum. Jörgen Sun-
deqvist sænskur snillingur, spilar allt og glæsi-
konan Lena fiðluleikari með honum, þau hrifu
mann verulega. Sá eini sem eftir lifir af hinum
sænsku Lindqvistbræðrum, Folke Lindqvist 82
ára kom þarna fram með hljómsveit sinni
Lindqvistarna. Hann er þvílíkur gleðimaður,
syngur og hlær og segir brandara á senunni,
ásamt að sýna snilld sína á nikkuna með til-
þrifum. Margir fieiri urðu manni mjög minnis-
stæðir s.s. Det Danske Harmonika Akademi,
Kjell Harald sem stundar líkamsæfingar með
harmonikuleiknum eða Erna samspilari hans,
ungur og glæsilegur harmonikusnillingur sem
töfrar sjónrænt sem tónrænt. Fjölmargir aðrir
snillingar komu þarna fram sem allt of langt
mál yrði upp að telja, en að upplifa þessa tóna-
veislu skilur eftir ljúfar tilfinningar. Uti á svæð-
inu meðai húsvagna og bíla léku einnig margir
listir sínar, þar voru heilu hljómsveitirnar að
æfa, vinir að hittast og láta sér líða vel með krús
á borði eða kræsingar í skál. Við inngang móts-
ins stóð stór og mikill vöruflutningabíll sem
var innréttaður sem verslun full af harmonik-
um. Ég leit þar við og ræddi við sölumanninn
sem sagði töluverða eftirspurn eftir harmon-
ikum þarna á mótinu. Já þarna mátti líta marg-
an kostagripinn af öllum gerðum og verðum.
Jyderup sem er í um eins klukkutíma akstur frá
Kastrup flugvelli, er 6.000 manna bær, vina-
legur í alla staði. Bærinn var nú kvaddur eftir
mótið með söknuði og félagar F.H.U.R. voru
sannarlega ekki í henglum er heim var haldið.
Við flugstöðvarbygginguna beið nú Boing 757
- 300 vél Icelandair er bar nafnið Hengill.
Hilmar Hjartarson
Mjndir: Siguröur Harðarson
------------------------W---------^---E|
Áætlun dansleikja 2013 og 2014
Laugardaginn 14. september 2013
Laugardaginn 5. október 2013
Laugardaginn 26. október 2013 Fyrsti vetrardagur
Laugardaginn 23. nóvember 2013
Laugardaginn 28. desember 2013 Jólaball
Laugardaginn 18. janúar 2014
Laugardaginn 15. febrúar 2014
Laugardaginn 22. mars 2014
Miðvikudaginn 23. apríl 2014 - Síðasti vetrardagur
Laugardaginn 3. maí 2014 - Harmonikudagurinn
Laugardaginn 31. maí 2014 - Sjómannadagshelgin
n