Harmonikublaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 3

Harmonikublaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 3
Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarniaðiar: Friðjón Hallgrimsson Espigerði 2 108 Rej/yavík Sími 696 6422, fridjonoggndnj@,internet.is Prentvinnsla: Héraðsprent, Egilsstöðum, ivunv. beradsprent. is Netfang: print@beradsprent.is Forsíða: Þau sem voru heiðruð um Jónsmessuna í Húnaveri. Frá vinstri Hermann Jónsson frá Lambanesi, Elín Jóhannsdóttir og Jón St. Gíslason í Miðhúsum. Allt kunnir harmonikuleikarar og gleðigjafar í Skagafirði og víðar. Meðal efnis: - Á ferð og flugi - Sumarhátíð Harmonikufélags Héraðsbúa - Bragi Hliðberg níræður - Harmonikulandsmót 2014 -1 sól og sumaryl í Húnaveri - Viðtal við Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Lag blaðsins - Árshátíð Harmonikufélags Þingeyinga - Gaf Félagi harmonikuunnenda myndbandasafn - Nú þegar líður að jólum - Aðalfundur S.Í.H.U. -1 þá gömlu góðu daga Auglýsingaverð: Baks/ða Innsíður 1/1 síða kr. 23.000 1/2 siða kr. 15.000 1/1 siða kr. 18.400 1/2 síða kr. 11.500 1/4 siða kr. 6.700 1/8 síða kr. 4.600 W kr. 2.500 y Sldlafrestur efnis fyrir næsta blað er 25. apríl 2014. Stjórn S.Í.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Gunnar Kvaran alf7@mi.is Álfalandi 7,108 Reykjavík. S: 568-3670 / 824-7610 Varaformaður: Elisabet Halldóra Einarsdótár elisabete@heima.is Suðurhúsum 6, 112 Reykjavík S: 587-3179 / 864-8539 Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207 / 861-5998 Gjaldkeri: Sigurður Eymundsson sigeym@talnet.is Suðurlandsbraut 60, 108 Reykjavík S: 471-1333 / 893-3639 Meðstjórnandi: Frosd Gunnarsson hansdottír@simnet.is Vallargöm 3, 420 Súðavík. S: 456-4928/ 895-1119 Varamaður: Aðalsteinn Isfjörð unnas@simnet.is Forsætí 1 Ob, 550 Sauðárkrókur S: 464-1541 / 894-1541 Varamaður: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, 600 Akureyri S: 462-5534 / 820-8834 Enn einu merkisárinu er að ljúka. Það er árið sem tveir nemendur luku burtfararprófi í sömu vikunni. Þetta eru þeir Jónas Asgeir Ásgeirsson og Flemming Viðar Valmundsson. Þeir hafa stundað nám hjá Guðmundi Samúelssyni undanfarin ár og standa nú á vegamótum. Þeir hafa heillað harmo- nikuunnendur um árabil og verið sjálfsagðir þátttakendur í starfi síns félags, sem er Félag harmonikuunnenda í Reykjavík. Ekki er langt síðan Halldór Pétur Davíðsson steig þetta skref og stuttu áður Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Jón Þorsteinn Reynisson og Benedikt Magnússon. Þá er ótalinn Þingeyingurinn Ásta Soffía Þorgeirsdóttir. Þetta er þó aðeins hluti af þeim sem lokið hafa prófum í harmonikuleik frá tónlistarskólum landsins. Það er svo sannarlega að skila sér, það góða verk, þegar námsskráin um harmonikuna komst í gagnið. Þeir sem það verk unnu, eiga þakkir skildar fyrir. Hafi einhverjir haft efasemdir um framtíð harmonikunnar á Islandi, er ekki fráleitt að ætla að þeir hinir sömu getí andað léttar. Aldrei hafa möguleikar til náms verið betri, því aldrei hafa fleiri Islendingar, sérmenntaðir í harmonikuleik verið í boði. Þetta er þó aðeins áfangi að einhverju stærra. Þeir þurfa að komast erlendis í sérnám og síðan verðum við að vona að þeir komi til baka. Við harmonikuunnendur sjáum í hillingum hámenntaða kennara með nemendur í mörgum skólum. Við jafnvel gælum við að í hópnum leynist efnilegur dansspilari. Það væri í raun hálf raunalegt ef enginn þessara frábæru tónlistarmanna hefði áhuga á danstónlist. Ætli það standi ekki upp á okkur dansspilarana að bjóða þeim að vera með. Þeir hafa kunnáttuna og tæknina. Það þarf aðeins að vekja áhuga þeirra. Meö ritstjórajólakveóju, FriÖjón Hallgrímsson * •V j FRÉTTUWl var þhta helst Karl Jónatansson verður níræður 24. febrúar n.k. Gamlir nemendur og margir velunnarar Karls æda að halda þessum aldna meistara, harmonikuveislu í Salnum í Kópavogi laugardaginn 22. febrúar kl.l6:00. Þar munu flestir af besm harmon- ikuleikurum landsins verða teknir til kost- anna, til heiðurs kempunni, sem kennt hefur fleirum á harmoniku en tölu verður á komið. Afmælisins verður minnst í næsta tölublaði. Kominn er út diskur, þar sem Vestfirð- ingurinn Baldur Geirmundsson og félagar leika lög, sem æduð eru til kynningar í leik- skólum landsins. Diskur þessi er beint framhald af þeirri niðurstöðu aðalfundar SIHU 2012 að efla kynningar á harmo- nikunni í leikskólum landsins. Á disknum eru leikdansarnir vinsælu auk ýmissa ann- ara vinsælla laga. Von er á nýjum hljómdiski frá Garðari Olgeirssyni. Nokkur ár eru síðan Garðar gaf út disk og því á þessi nýi diskur efdr að vekja áhuga margra, enda Garðar einn af bestu harmonikuleikurum landsins. Hann hefur um árabil leikið á dansleikjum FHUR í Reykjavík og víðar og ávallt við miklar vinsældir. Heiðursfélagar SÍHU eru: Bragi Hlíðberg, Karl Jónatansson Reynir Jónasson 3

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.