Harmonikublaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 19
NU ÞEGAR LIÐUR AÐ JOLUM
Nú þegar Kður að jólum, þá er ekki úr vegi að fara örfáum orðum um það
helsta sem verið hefur á döfinni hjá FHUR það sem af er þessu starfsári.
Þá er þar fyrst til að taka, að formaður félagsins, ásamt formanni
skemmtinefndar og ritstjóra harmonikublaðsins Friðjóni Hallgrímssyni,
sóttu aðalfund Sambands íslenskra harmonikuunnenda, sem að þessu sinni
var haldinn að Hótel Hamri í Borgarfirði. Var það að vanda hin ánægjulegasta
samkoma.
Fyrsti dansleikur starfsársins var í Breiðfirðingabúð þann 5. október. Þar
léku fyrir dansi hljómsveitir undir stjórn Ingvars Hólmgeirssonar, Sveins
Sigurjónssonar og Þorleifs Finnssonar. Fyrstí skemmtifundur félagsins var
síðan í Iðnó hinn 20. október og var hann vel sóttur. Meðal spilara sem
þar komu fram má nefna Jónas Asgeir Ásgeirsson, Friðjón Hallgrímsson,
Hilmar Hjartarson, Þorleif Finnsson, Páll EKasson auk hljómsveitar undir
stjórn Reynis Sigurðssonar.
Góð þátttaka var i dansinum á árshátiðinni. Mynd: Sigurður Harðarson
Árshátíðin var haldin í Breiðfirðingabúð þann 23. nóvember. Hófst hún
með borðhaldi, þar sem fram var borinn veislukostur af bestu gerð, frá
okkar eina sanna Magga Margeirs. Leið kvöldið við söng og gleði, með
heimafengnum skemmtíatriðum, hvar í áttu drjúgan þátt tvær kempur að
vestan, þeir Emil Hjartarson og Pétur Bjarnason, sem báðir hafa komið
við sögu félagsins áður við svipuð tílefni og einnig EKsabet Einarsdóttir
ásamt Fróða Oddssyni, sem lék á gítar undir söng hennar. Að því loknu
hófst dansleikur þar sem Dansbandið frá Akureyri, undir stjórn Einars
Guðmundssonar, sá um að halda uppi fjöri og verður að segjast eins og
er, að það var með þvflíkum ágætum að vandséð er, að betur verði gert.
Aftur á mótí verður ekki undan því vikist að minnast á að ef við eigum
að geta haldið úti árshátíð sem þessari, þá þarf aðsókn að vera snöggt um
skárri en var nú.
Að þessu mæltu vil ég senda félagsmönnum öllum og velunnurum um
land allt, mínar bestu kveðjur og óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
Váll L. Elíasson, form. FHUR
Aðalfundur Sambands íslenskra harmonikuunnenda fór fram að Hótel
Hamri í Borgarnesi, 21. september s.l. Það voru Harmonikuunnendur
Vesturlands sem höfðu veg og vanda af fundinum. Aðalfundur SIHU
var síðast haldinn á Vesturlandi 1995 og þá að Varmalandi. Þó fundur-
inn standi einungis nokkra klukkutíma á laugardegi, er helgin undir hjá
flestum sem senda fulltrúa. Það er ætíð almenn tilhlökkun meðal fund-
armanna. Tilhlökkun að taka þátt í stefnumótun Sambands íslenskra
harmonikuunnenda, en ekki síður að hitta aðra þátttakendur. Þarna hitt-
ist fólk sem að öllu jöfnu er ekki á sömu slóðum og því verða margir
fagnaðarfundir. Föstudagurinn fór í að heilsa og fagna endurfundum.
Kvöldverður á föstudeginum var í boði Vestlendinga og gekk vel að
hrista saman hópinn. Ekki leið á löngu þar til harmonikur fóru að
hljóma, enda margir Kðtækir nikkarar í hópnum. Kvöldið leið hratt við
spjaU og spil, enda Kfsglatt fólk á ferð.
Sú hefð hefur myndast, að farið er með maka fundarmanna í eins kon-
ar óvissuferð á meðan á fundinum stendur. Að þessu sinni var farið um
safnaslóðir í Borgarfirði undir góðri leiðsögn. Á laugardagsmorguninn
hófst síðan fundurinn. Mættir voru fulltrúar eflefu félaga, en þrjú félög
sendu ekki fiflltrúa að þessu sinni. Það er ætíð áhyggjuefni og jafnvel ills
viti, þegar félög senda ekki fuUtrúa. Eins og annarsstaðar kemur fram í
blaðinu voru ýmsar samþykktir gerðar til hagsbóta fyrir þróun harmon-
ikunnar á Islandi. Fundurinn var ákaflega málefnalegur í aUa staði og
miklar vonir bundnar við niðurstöður hans.
Sérstakur hátíðarkvöldverður var síðan um kvöldið. Þar sá SnæfelUngur-
inn Sigurgeir Jónsson um að leika notalega dinnertónUst, en þegar leið
á kvöldið bættust nokkrir vaUnkunnir spilarar í hópinn. Þeirra á meðal
Vesdendingarnir Geir á Kjaranstöðum, Gestur Friðjóns, Jón Heiðar og
fleiri. Var þá tekið tíl við að dansa, en margir dansáhugamenn eru jafn-
an í hópnum. Stóð á þessu fram eftir kvöldi og bættust í hópinn dans-
áhugamenn af Vesturlandi, sem runnu á lyktína. Að flestra mati var
helgin vel heppnuð og héldu allir sáttir heim. Ekki má gleyma þeim
heiðurshjónum, Einar Oskarssyni og Ásu Sigurlaugu Halldórsdóttur,
formanni og varaformanni Harmonikuunnenda Vesturlands fyrir þeirra
þátt í góðum móttökum.
Friðjátt Hallgrímsson
19