Reykjavík - 31.05.2014, Blaðsíða 12
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4
31. maí 201412 REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Ég hvet þig til að kjósa
Skemmtilegri – en nokkuð rólegri kosningabaráttu er að ljúka. Í dag er kjördagur. Umræðan hefur ein-
kennst af því að Reykjavík stendur að
mörgu leyti vel. Það hefur verið kær-
komin ró yfir stjórn borgarinnar á liðnu
kjörtímabili. Ég er stoltur af því að við
leystum farsællega úr afleitri stöðu
Orkuveitunnar, atvinnuleysi hefur
minnkað hratt og við höfum komið
fjármálum borgarinnar á lygnan sjó.
Við höfum sparað, sýnt ábyrgð og
tryggt stöðugleika við stjórn borgar-
innar. Við höfum tekið sundlaugarnar
okkar í gegn og lýðheilsumálin fastari
tökum. Hjólreiðar og útivist eru að efl-
ast og mun fleiri borgarbúar nýta nú
þjónustu Strætó. Hugmyndir borgarbúa
hafa fengið að njóta sín eins og sést í
framkvæmdum í öllum hverfum. Og
framtíðarsýnin sem birtist í nýju aðal-
skipulagi er mikilvægt leiðarljós til að
gera góða borg betri.
Að stjórna borg snýst fyrst og síðast
um þetta, að auka lífsgæði borgarbúa í
öllu sem við gerum.
Húsnæðismálin eru
númer eitt
Næstu ár verða mjög mikilvæg. Leigu-
markaðurinn er í ólestri og við þurfum
að hefja byggingu 2.500-3.000 þúsund
nýrra leigu- og búseturéttaríbúða á næstu
þremur til fimm árum. Því vil ég koma í
verk í góðu samstarfi við reynslumikla að-
ila eins og Búseta, Félagsstofnun stúdenta,
verkalýðshreyfinguna og Félagsbústaði.
Við þurfum að bæta kjör barnafjölskyldna
og horfa á það sem skiptir þær mestu máli,
aðbúnað barnanna okkar og menntun í
skólum, leikskólum og frístundastarfi. Við
þurfum að stuðla að jöfnum tækifærum
allra Reykvíkinga, fatlaðra og ófatlaðra,
hinna eldri og hinna yngri, innfæddra sem
aðfluttra í öllum hverfum og um alla borg.
Reykjavík á að vera lífsgæðaborg fyrir alla,
eða eins og Jón Gnarr orðaði það svo fal-
lega: Alls konar borg, fyrir alls konar fólk.
Ég hvet alla til að mæta á kjörstað. Ég
mun gera mitt allra besta til að standa
undir trausti borgarbúa fái ég umboð til að
leiða stjórn borgarinnar næsta kjörtímabil.
Höfundur er
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar
Gleymdu þeir að byggja?
Það verður auðvelt verk fyrir nýja borgarstjórn að bjóða fleiri fé-lagslegar íbúðir en núverandi
borgarstjórn hefur gert. Það þarf
aðeins að fjárfesta í 17 íbúðum á ári.
Margir hnussa við þessu, en þetta er
blákaldur veruleikinn. Á þessu kjör-
tímabili bættust einungs 67 íbúðir í
eignasafn Félagsbústa eða 16,75 íbúðir
á ári. Ef niðurstöður kosninganna
verða í samræmi við skoðanakann-
anir þá verður núverandi meirihluta
þakkað þessi ótrúlega röggsemi og
fyrirhyggja í að tryggja húsnæðisör-
yggi borgarbúa.
Núna korteri fyrir kosningar er
komið fram með æðisleg loforð um
2500 leiguíbúðir. Sama fólk og lofar
þessu er fólkið sem á að vita að árið
2011 tókst að fjölga íbúðum í Reykja-
vík um 6,132 á árinu 2012 og byrjað
var að byggja 614 íbúðir í Reykjavík
árið 2013 en það er ekki Reykjavíkur-
borg sem er að byggja heldur verk-
takar og fjárfestar. Með sama hraða
og fjölgað var um eignir í eignasafni
Félagsbústaða þá tekur það núverandi
meirihluta í borginni 149 ár að fjölga
leiguíbúðum Félagsbústaða um 2500.
Reykjavík á nær engar lausar lóðir
lengur í vesturhluta borgarinnar og
því ætla þeir að fórna flugvellinum
í Vatnsmýrinni til að búa til nýjan
draumamiðbæ.
En flugvellinum verður ekki að-
eins fórnað, heldur er í uppsiglinu
meiriháttar skipulagsmistök í Laugar-
dalnum og á hafnarbakkanum. Í hvaða
borg annarsstaðar í heiminum væri
það ásættanlegt að fórna grænu svæði
Laugardalsins, sem er samverustaður
allra borgarbúa og reyndar lands-
manna líka, sem koma í dalinn til að
eiga saman stund, fara í sund, hús-
dýragarðinn, grasagarðinn á skauta,
stunda íþróttir og hreyfingu og njóta
þess friðar sem dalurinn hefur upp á
að bjóða. Laugardalurinn er svæði sem
hefur búið til fjöldan allan af góðum
minningum fyrir borgarbúa og á að
gera það áfram, en ekki að þurfa að
hverfa fyrir steinklumpabyggingum.
Nú þurfa að veljast inn í borgar-
stjórn fólk sem er tilbúið að vinna að
raunhæfum hugmyndum um borgina,
auka lóðaframboð, lækka lóðaverð og
endurskoða aðalskipulagið til að hægt
sé að byggja Reykjavík fyrir venjulegt
fólk og koma í veg fyrir skipulagsmis-
tök. Þetta þarf að gerast til að börnin
okkar hafi það sem fyrsta val að búa
áfram í Reykjavík og að við viljum búa
áfram í Reykjavík.
Höfundur er
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
oddviti Framsóknarflokksns
og flugvallarvina
Hvers vegna kjósa dögun í Reykjavík?
Snúa mætti þessari fyrirsögn við og spyrja, hvers vegna ætti ekki að kjósa Dögun? Því er fljótsvarað.
Þannig ættu einkavæðingarsinnar að
forðast Dögun eins og heitan eldinn
því við erum staðráðin í því að standa
vörð um innviði samfélagsins og höfum
sett fram tillögur um að vinda ofan af
einkavæðingu undangenginna ára, sem
hefur haft í för með sér aukin útgjöld
fyrir útsvarsgreiðendur.
Borgarbanki, flugvöllur,
moska og bílastæðahús
Það á hins vegar ekki að stjórnast af
kreddum heldur af hagkvæmni hvaða
rekstur á að vera á hendi borgarinnar.
Þannig sjáum við því ekkert til fyrir-
stöðu að selja bílastæðahús borgarinnar
og færa þá fjármuni sem þannig öfluðust
til stuðnings almenningssamgöngum.
Við höfum mótað tillögur þessa efnis. Við
erum framboð nýhugsunar og kreddu-
leysis og er tillaga okkar um borgarbanka
þess efnis en hann á sér fordæmi víða
erlendis, þar á meðal í nokkrum borgum
Bandaríkjanna.
Þau sem vilja flugvöllinn burt úr
Vatnsmýrinni í Reykjavík ættu ekki að
kjósa Dögun því við sem að framboðinu
stöndum viljum virða vilja yfirgnæfandi
meirihluta Reykvíkinga sem í hverri
könnuninni á fætur annarri hafa lýst
vilja sínum um að flugvöllurinn verði
áfram í borginni.
Þau sem vilja afturkalla leyfi til að
byggja mosku í Reykjavík ættu ekki að
kjósa Dögun því við munum ekki standa
að slíku. Við teljum að það yrði táknrænt
fyrir skort á umburðarlyndi. Reykvík-
ingar hafa margoft sýnt að þeir eru um-
burðalyndir og vilja hafa mannréttindi
í heiðri.
Ekki bara fyrir kosningar
Þá höfum við sett fram ítarlegar tillögur
um úrbætur í húsnæðismálum bæði til
langs og skamms tíma. Við viljum stórefla
Félagsbústaði og aðra félagslega aðila á
leigumarkaði. Óljóst tal um að efla leigu-
markað er ómarkvisst því frjáls markaður
mun aldrei geta komið til móts við þarfir
tekjulágs fólks þannig að viðunandi geti
orðið. Niðurgreiðsla á almennum leigu-
markaði yrði að sama skapi ómarksviss
og félagslega óásættanleg, umfram það
sem almennt gerist í gegnum húsaleigu-
bótakerfið.
Þeir kjósendur sem vilja vita fyrir víst
að þeir séu að kjósa í þágu almannaréttar,
beins lýðræðis, opinnar stjórnsýslu, lífs-
kjarajöfnunar, með mannréttindum allra
– líka útigangsfólks – geta kosið Dögun
með góðri samvisku.
Við munum standa vörð um þessi gildi
alla daga – líka að afloknum kosningum.
Höfundur er
Þorleifur Gunnlaugsson,
leiðir framboð
Dögunar í Reykjavík
BorgarstjórnarKosningar 2014