Fréttir - Eyjafréttir - 27.02.2008, Blaðsíða 6
6
Frcttir / Fimmtudagur 28. febrúar 2008
Sundlaag - útivistarsvazði:
Áhyggjur af drætti
Dráttur hefur orc
útisvæðinu við
sundlaugina
hafi verið skilað
og ljóst að þær
muni ekki
liggja fyrir fyrr
en í mars.
Menningar- og
tómstundaráð lýsir áhyggjum sínum af drætt-
inum og því hvenær framkvæmdin geti hafist.
Ráðið beinir því til framkvæmdasviðs að
áhersla verði lögð á að verkinu verði fram
haldið í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar.
Menningar- og tómstundaráð:
Styttri vinnudagur hjá grunnskólabörnum
Menningar- og tómstundaráð hefur unnið að
því með skólamálaráði að koma skipulagi
skólaleikfimi og íþróttaæfmga í betra horf
með það fyrir augum að stytta skóladag
yngstu barnanna. Skólamálaráð hefur beint
því til skólastjórnenda Grunnskóla Vm að
fyrir skólaárið 2008 til 2009 verði skólaleik-
fimi lokið fyrir kl. 13 alla daga og verður
raðað inn í stundatöflur samkvæmt því.
MTV mun boða til fundar með forsvars-
mönnum íþróttafélaganna með það fyrir
augum að íþróttaæfmgum yngstu barnanna
verði lokið fyrir kl. 17.00 á daginn. Ráðið
leggur ennfremur mikla áherslu á að mis-
munandi æftngar hjá sama aldurshópi stangist
ekki á svo börn neyðist ekki á unga aldri til
þess að gera upp á milli íþróttagreina og geti
æft allar þær greinar sem í boði eru í Vest-
mannaeyjum ef áhugi þeirra stendur til þess.
Menningar- og tómstundaráð telur að breyt-
ingin geti átt stóran þátt í að gera Vestmanna-
eyjar að því gæðasamfélagi sem við viljum
byggja og fagnar því að þetta skref haft verið
stigið.
MTV:
Kaffi í Landlyst
Menningarfull-
trúi upplýsti
menningar og
tómstundaráð um
að húsafriðunar-
nefnd hafi sam-
þykkt fyrir sitt leyti að kaffisala verði í
Landlyst í sumar. Menningarfulltrúa er falið
að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að
vera með léttar veitingar í húsinu og hafa
samband við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands á
Selfossi.
A sama fundi var upplýst að rekstur
tjaldsvæðis verður áfram í höndum Skáta-
félagsins Faxa en unnið er að gerð samnings
við þá.
Launatap á vöktum jafngildir hálfs
árs launum miðað við dagvinnu
-segir Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda, sem vill fá tapið bætt
Amar Hjaltalín, formaður Drífanda
stéttarfélags, segir að gerð verði
krafa um að launafólki verði bætt
það tekjutap sem það verður fyrir
vegna loðnuveiðibannsins. Hann
telur tekjutap hjá landverkafólki
nema jafnvirði hálfs árs dagvinnu-
launa ef engin loðnuvertíð verður.
Arnar segir fyrirtækin ætfð hafa
greitt tryggingagjald af öllum
launum verkafólks og því hljóti að
koma bætur frá opinberum sjóðum
við svona áföll. Sjávarútvegsráð-
herra hafi lofað, eftir fund með
hágsmunaaðilum í sjávarútvegi á
mánudag, að rætt yrði við fulltrúa
launafólks um bætur vegna fyrir-
sjáanlegs tekjumissis.
Arnar talaði við Valmund Val-
mundsson, formann sjómannafé-
lagsins Jötuns, í vikunni og þeir fóru
yfir stöðuna sem upp er komin í
loðnuveiðum og fyrirsjáanlegt
tekjutap félagsmanna Drífanda og
Jötuns.
„Umræðan hefur eingöngu snúist
um hversu miklu fiskvinnslu- og
útgerðarfyrirtækin tapi, en minna
farið fyrir umræðunni um tap
verkafólks og sjómanna. Við vorum
sammála um að vinna saman að því
að fara fram á bætur fyrir launatap
sem er fyrirsjáanlegt með loðnu-
veiðibanninu.
Fyrirtæki borga tryggingagjald af
öllum launum landverkafólks og
sjómanna, þar með talið af vertíðar-
launum undanfarinna ára. Þegar
svona áfall kemur upp, hljótum við
að gera þá kröfu að launþegar fái
bætur út á þessar tryggingar.
Tekjutapið er gríðarlegt og mis-
munur á launum fiskverkafólks sem
vinnur 40 tíma vinnuviku eða á
vöktum í vikutíma er um 124.000
krónur auk bónuss sem er hærri í
loðnu en bolfiski.
Loðnuvertíð stendur í u.þ.b. sex til
sjö vikur og sjö vikna launatap á
vöktum jafngildir hálfs árs launum
miðað við dagvinnu. Mjög algengt
er að báðar fyrirvinnur heimilis hafi
beinar tekjur af loðnuvertíð þ.e. í
frystingu, bræðslu eða á sjó.
Tekjutapið getur því samsvarað árs
dagvinnulaunum á heimili. Hvaða
heimili þolir slíkt áfall?“
Rætt verður við fulltrúa
launafólks
Arnar spurði Einar Kristin Guð-
fmnsson, sjávarútvegsráðherra á
fundi á mánudag hvort ríkisstjómin
hefði uppi einhver áform eða væri
tilbúin að ræða við hagsmunaaðila
launafólks til að ræða um bætur.
„Ráherra svaraði mér ekki á fund-
inum en baðst afsökunar á því þegar
ég innti hann eftir svörum eftir
fundinn. Hann lofaði mér því jafn-
framt að rætt yrði við fulltrúa
launafólks um bætur vegna loðnu-
veiðibannsins, færum við fram á
það. Ég hef einnig rætt við Starfs-
greinasambandið og þeir eru tilbúnir
til að aðstoða okkur og koma að
málinu."
Hækkun á gjaldskrá Herj-
ólfs mitt í niðurskurði
Arnar sagðist vonast til þess að
viðbótarkvóti verði gefinn út, en
síðustu daga hafi þegar tapast hálfur
milljarður. „Mitt í þessum niður-
skurði kom hækkun á fargjöldum
launafólks og farmgjöldum fyrir-
tækja á Herjólfi eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Sérstaklega þar sem
á sama tíma er verið að lækka gjald
í önnur samgöngumannvirki um allt
að 20% á sama tíma. Sveitarfélög
norðan Hvalfjarðar hafa hvað eftir
annað ályktað um að gjöld í gegnum
Hvalfjarðargöng standi íbúaþróun
og atvinnuuppbyggingu fyrir þrif-
um. Gjald í göngin eftir lækkun er
frá 460 krónum upp í fullt gjald
1.600 krónur t.d. fyrir bíl með fjóra
farþega. Ef við förum með Herjólfi
þá kostar það minnst 13.125 krónur
á móti 460 krónum fyrir íbúa
Vesturlands fyrir bíl og fjóra far-
þega. Fullt verð er 21.600 krónur
fyrir okkur á móti 1600 krónum
fyrir þá. Ef þetta lága gjald sem er í
göngin stendur atvinnuuppbyggingu
norðan Hvalfjarðar fyrir þrifum,
hver eru þá áhrifin hér af far- og
farmgjöldum Herjólfs? Því tek ég
heils hugar undir ályktun bæjar-
stjórnar um verðlagningu á Herjólft
en við þurfum reyndar að ganga
mun lengra en hún gerir,“ sagði
Arnar.
ÞEIR standa vaktina í FES. Bragi, Þröstur og Stefán. Umræðan hefur eingöngu snúist um hversu miklu fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækin tapi,
en minna farið fyrir umræðunni um tap verkafólks og sjómanna. Við vorum sammála um að vinna saman að því að fara fram á bætur fyrir
launatap sem er fyrirsjáanlegt með loðnuveiðibanninu, segir Arnar..
Lögreglan:
Faldi sig inni í Féló og stal ferðasjóðnum
Einn þjófnaður var tilkynntur til
lögreglu í vikunni sem leið en unt
var að ræða þjófnað á peningum úr
ferðasjóði félagsheimilisins Rauða-
gerðis að kvöldi 18. febrúar sl.
Er talið að sá sem þarna var að verki
hafi falið sig inni í húsinu og síðan
látið til skarar skríða eftir að starfs-
fólkið var farið. Ekki er vitað hver
þama var að verki en þeir sem ein-
hverjar upplýsingar hafa um það eru
beðnir að hafa samband við lögreglu.
Um var að ræða ferðasjóð krakk-
anna sem stunda Féló. Ekki stór-
mannlegt það.
Yfirlýsing frá Starfsmannafálagi bazjarins:
Mótmælir harðlega hækkun á Herjólfí
Stjórn Starfsmanna-
félags Vestmannaeyja-
bæjar mótmælir harð-
lega þeim hækkunum
sem orðið hafa á far-
gjöldum með Herjólft,
yfirlýstum þjóðvegi
milli lands og Eyja.
Stjóm Starfsmanna-
félagsins skorar á
samgönguráðherra og
þingmenn Suðurlands að draga til baka þær óréttmætu hækkanir sem orðið hafa á far-
gjöldum.