Fréttir - Eyjafréttir - 27.03.2008, Side 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 27. mars 2008
STARFSKONURNAR Aldís, Jóna Björg, Birna, Særún og Ragnheiður.
Mikilvægt að við vinnum
þetta í Vestmannaeyjum
-segir Jóna Björg Guðmundsdóttir héraðskjalavörður sem stýrir
verkefni sem hér er unnið fyrir Þjóðskjalasafnið
Samningur var gerður á milli Þjóð-
skjalasafns íslands og Vestmanna-
eyjabæjar þann 12. febrúar sl. Þar
var staðfest að Þjóðskjalasafnið
lætur vinna við innslátt manntala í
Héraðsskjalasafninu í Vestmanna-
eyjum undir umsjón héraðsskjala-
varðar í samstarfi við Vestmanna-
eyjakaupstað.
Jóna Björg Guðmundsdóttir,
héraðsskjalavörður, segir verkefnið
falla undir mótvægisaðgerðir ríkis-
stjómarinnar vegna samdráttar í
fiskveiðiheimildum í þorski. „Hér
starfa sex starfsmenn í 50% stöðum
við innslátt manntala við Héraðs-
skjalasafnið. Skilyrði fyrir því að
Þjóðskjalasafnið lét verkefnið
hingað var að hér væri héraðs-
skjalavörður í l'ullu starfi en ég
hafði verið í hálfri stöðu og er nú
komin í 100% starf.
Vestmanaeyjabær auglýsti nýlega
eftir skjalastjóra og það mun
auðvelda starf héraðsskjalavarðar
mjög mikið. Ég er ánægð með að
fá starfsmann sem hefur yfirumsjón
með skjalsafni bæjarins því það er
fullt starf að taka á móti öllum
erindum sem berast. Bærinn er
kominn með rafrænt skjalavinnslu-
kerfi og þá þarf manneskju til að
hafa yfirumsjón með því, “ segir
Jóna og er ánægð með fjölgun
starfsmanna við skjalavörslu.
„Vinnan við manntölin hefur
gengið mjög vel. Allir starfs-
mennirnir fóru á námskeið en
skráning á manntali fer líka fram á
Sauðárkróki og Egilsstöðum þannig
að starfsstöðvamar eru þrjár. Við
erum að vinna manntalið frá 1870
og nú er búið að skrá 35.866
færslur en áætlað er að manntalið
allt sé 51.544 færslur. Það er fyrsta
mannlalið sem við skráum og svo
fáum við manntal frá 1860 í næstu
viku. Einnig þarf að fara yfir pról'-
örk og starfsmaður kemur frá
Þjóðskjalasafninu og setur okkur
inn í það. Enginn les það sem hann
hefur skráð sjálfur heldur það sem
aðrir hafa verið að vinna o.s.frv.
Ég hef ekki heyrt annað en að
starfsfólkið sé ánægt og það er
margt spennandi í þessum bókum
og þar má t.d. finna stórfurðuleg
mannanöfn. Svo eru ýmsar aðrar
upplýsingar um þjóðfélagsstöðu og
þvílíkt karlaveldi sem var í gangi á
þessum tíma,“ segir Jóna og leggur
áherslu á orð sín.
„Húsbóndinn var alltaf skráður
fyrst, svo kona hans, síðan kannski
faðir og móðir húsbóndans og svo
synir og dæturnar á eftir. Síðast eru
taldir upp niðursetningar, drengir á
undan stúlkum og ýmist ölmusu-
fólk. Einnig er sagt frá því ef
maður er blindur eða heyrnarlaus
og ég held að orðið alfífl hafi ein-
hvers staðar komið fram.“
Jóna segir skemmtilegt að taka þátt
í þessu verkefni og hún sjái ekki
betur en að starfsfólkið lifi sig inn í
tímabilið og hafi áhuga á persónum
sem þar koma við sögu. „Það er
mikiivægt að þessi gögn komist á
rafrænt form og verði aðgengileg
þeim sem hafa áhuga á rann-
sóknum. Hin Norðurlöndin hafa
komið upp svona gagnagrunnum á
netinu og þú getur leitað og unnið
þínar ættfræðirannsóknir þar. Það
er líka mikilvægt að við vinnum
þetta í Vestmannaeyjum og það er
ljóst að þessi vinna þarf ekki endi-
lega að fara fram á Reykjavíkur-
svæðinu.Við fáum reyndar ekki
handskrifuð handrit til okkar því
það þarf að flytja gögn yfir sjó og
þar af leiðandi fáum við afrit af
manntalsbókum. Verkefnið eflir
Héraðsskjalasafnið og ég hef sjálf
fengið tækifæri til að vinna í
skjölum sem hafa beðið eftir frá-
gangi.“
Samningur sem gerður var milli
Þjóðskjalasafns og Vestmanna-
eyjabæjar er til tveggja ára og Jóna
segir ekki hægt að segja til um
framhaldið. „Það er til hellingur af
efni sem á eftir að vinna og von-
andi verður framhald á.
Starfsfólkið öðlast þjálfun við
manntalið og jafnvel verða til
framtíðar starfsmenn við safnið.
Við erum í mjög góðu sambandi
við Þjóðskjalasafnið og þetta er
bara skemmtilegt," sagði Jóna
þegar hún var spurð út í þetta
athyglisverða verkefni.
Snjáfríður, Neríður,
Emerenzíana og Vívat
Ragnheiður Einarsdóttir hefur verið
við skráningu og líkar mjög vel að
vinna við manntalið. „Manntalið er
frá 1870 og ég er farin að lesa mér
til um 19. öldina til að vita meira
um þetta tímabil. Ég er t.d. að lesa
um Saura-Gísla sem var svo rosa-
lega skemmtilegur að allar konur
vildu eiga hann. Hann bjó með
fjórum konum, húsmóður sem átti
tvær dætur og vinnukonu, og þær
áttu hjá honum sína nóttina hver,“
segir Ragnheiður og brosir enda
ekki hægt annað.
Hún segir ýmis sérkennileg nöfn
hafa komið upp þegar þessi gögn
eru skoðuð og þær sem vinna
manntalið punkta hjá sér sérkenni-
legustu nöfnin. „Ég hef séð nöfn
eins og Snjáfríður Skíðisdóttir,
Neríður Hafliðadóttir, Emerenzíana
Magnúsdóttir og Vívat Hallvarðs-
son. Svo sér maður oft mjög
skrautlegt fjölskyldumynstur og
það er alls ekki óalgengt að kona
giftist miklu yngri manni. Hún er
þá skráð húsfrú eða búandi. aldrei
bóndi. A heimilinu eru oft með
böm sem geta ekki verið konunnar
en eru þá skráð sem barn bóndans.
Þar hlýtur vinnukona að hafa
komið við sögu. Fólk er með ýmis
heiti eins og niðursetningur, ómagi,
vikakind, léttadrengur og létta-
stúlka. Á fínni bæjum eins og á
Eyrarbakka eru þjónustustúlkur,
annars eru þetta yfirleitt vinnu-
konur. Þetta er mjög skemmtilegt
og eins og ég segi þá er ég farin að
lesa mér til um þetta tímabil," sagði
Ragnheiður.
Kirkjur bœjarins:
Landa-
kirkja
Fimmtudagur 27. mars
Kl. 10.00. Mömmumorgunn. Guðný
Bjamadóttir kemur og verður með
stutt erindi fyrir nýbakaðar mæður.
Spjall og með’í.
Kl. 20.00. Opið hús í KFUM&K
húsinu.
Kl. 20.00. Æfing hjá Kór Landa-
kirkju.
Föstudagur 28. mars
Kl. 13.00. Ællng hjá Litlu læri-
sveinunum, yngri hópur.
Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, eldri hópur.
Laugardagur 29. mars
Kl. 11.00. Fermingarguðsþjónusta
Sunnudagur 30. mars
Kl. 11.00. Sunnudagaskóli í
fræðslustofu Safnaðarheimilis
Landakirkju. Mikill söngur og gleði
sem barnafræðarar Landakirkju sjá
um. ATH. sunnudagaskólinn er á
sama tíma og guðsþjónustan.
Kl. 11.00. Fermingarguðsþjónusta
Kl. 13.00. NTT - 9-10 ára í Safn-
aðarheimili Landakirkju
Kl. 20.30. Æskulýðsfélagsfundur í
Safnaðarheimili Landakirkju.
Mánudagur 31. mars
Kl. 19.30. Fundur í 12 spora
andlegu ferðalagi undir handleiðslu
Vina í Bata.
Þriðjudagur 1. apríl
Kl. 17.30. Æfing og fundur með
foreldrum og fermingarbörnum fyrir
fermingu 5. apríl.
Kl. 18.30. Æfing og fundur með for-
eldrum og fermingarbörnum fyrir
fermingu 6. apríl.
Kl. 20.00. Fundur hjá Gídeon-
félaginu.
Kl. 20.00. Aukaæfing hjá Kór
Landakirkju.
Miðvikudagur 2. aprfl
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 20.00. Fundur hjá Aglow í Safn-
aðarheimili Landakirkju.
Viðtalstímar prestanna eru á
mánudögum til föstudaga rnilli
ll.OOog 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Biblíulestur.
Laugardagur
Kl. 20:30 Bænastund.
Sunnudagur
Kl. 13:00 Samkoma.
Allir hjartanlega velkomnir
Bœnastundir virka daga kl. 7:30.
Nvhfiri
Laugardaginn 16. febrúar
síðastliðinn eignuðust Rannveig
Konráðsdóttir og Isak Júnsson
son sem nefndur var Bjarki. Hér
á myndinni er hann með stóra
bróður Óðni 3ja ára. Fjölskyldan
býr í Furugrund, Kópavogi.
Hér gefur að líta bekkjarmynd úr Barnaskóla Vestmannaeyja, að líkindum frá því um eða laust fyrir 1930.
Við þekkjum í efri röð þann er ystur er vinstra megin en sá mun vera Guðmundur Hákonarson. Systir
hans, Vilborg Hákonardóttir, mun vera þriðja í neðri röð talið frá vinstri. I efri röð þriðji drengur frá hægri
mun standa Húnbogi Þorkelsson eða Bogi eins og hann var jafnan nefndur. Við biðjum enn lesendur Frétta
um að rétta okkur hjálparhönd og láta okkur vita í síma 481 1184 eða koma við á Bókasafninu þannig að
allir verði að lokum rétt taldir í þessum bekk.
Aðventkirkjan
Laugardagur
Við bjóðum þig velkomin(n) til að
eiga með okkur góða stund í
kirkjunni okkar að Brekastíg 17.
Samverustundin hefst klukkan
10:30, biblíurannsókn og umræða.
Sjáumst!
Eigðu góðan dag.
Aglow
Aglowfundur verður í Safnaðar-
heimili Landakirkju miðvikudaginn
2. apríl klukkan 20.00.
Allar konur velkomnar.
Kaffigjald 500 krónur.