Fréttir - Eyjafréttir - 27.03.2008, Síða 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 27. mars 2008
Þarna mátti sjá brottflutta Eyjamenn og gesti. Myndir Jói Iistó.
Hvítasunnudjassinn:
Höldum okkar striki
„Við höldum okkar striki með
djassinn um hvítasunnuna sem
verður 11. og 12. maí í ár. Við
erum að leggja lokahönd á dag-
skrána og þar verða margir af okkar
bestu listamönnum í djassinum,"
sagði Hermann Einarsson, tals-
maður Listvinafélagsins, sem hefur
staðið fyrir Dögum lita og tóna í
Akóges undanfarin ár.
Eins og kemur fram í blaðinu í
dag verður þess minnst þann 28.
mars að 80 ár eru frá fæðingu
Guðna Hermansen myndlistar- og
tónlistarmanns. Hermann segir að
það tengist ekki djasshátíðinni um
hvítasunnuna á nokkurn hátt.
„Þetta verður sautjánda djass-
hátíðin og meðal þeirra sem koma
fram er Guðmundur Pétursson,
gítarsnillingur, sem mætir með
Blúsband sitt. Ekki liggur enn fyrir
hver kemur til með að syngja með
þeim en það skýrist fljótlega.
Undanfarin ár höfum við fengið
nýstimi úr Tónlistarskóla FÍH og
núna verða það efnilegir hljóðfæra-
leikarar sem hafa einbeitt sér að
latíndjassi. Þá hefur Guðlaug Olafs-
dóttir, söngkona, lýst áhuga á að
koma með band sitt. Svo erum við
að vinna í að fá hingað band sem
ekki er vert að segja frá eins og er
en gangi það eftir verður mikilli
fengur að því,“ sagði Hermann.
Aldrei fleiri í páskagöngu
Metþáttaka var í árlegri páskagöngu í Páskahelli
sem farin er á páskadag. Kristján Egilsson,
forstöðumaður Náttúrugripasafnsins, sem hefur veg
og vanda af göngunni, var mjög ánægður með
hvernig til tókst, bæði með þátttökuna og veður sem
var mjög gott.
„Það hafa held ég aldrei verið fleiri en núna en
þetta er flmmta árið sem við bjóðum upp á göngu í
Páskahelli á páskadag,“ sagði Kristján.
„Það var gaman að sjá þarna brottflutta
Eyjamenn og gesti og það var meira en venjulega
um að fólk tæki börnin með sér enda var páska-
gangan auglýst sem fjölskylduganga.“
Lagt var upp frá planinu ofan við Kirkjubæjar-
brautina og fyrst stoppað við Pompei norðursins
þar sem verið er að grafa upp hús sem fóru undir
vikur í gosinu 1973. „Þar sagði Kristín
Jóhannsdóttir, menningarfulltrúi, okkur frá stöðu
verkefnisins og hvað það hefur vakið mikla athygli
erlendis. Þaðan lá leiðin upp á milli fella í
Páskahelli og þeir sem treystu sér gengu í gegnum
hann. Svo var stoppað við Krossinn í gíg Eldfells
þar sem Ruth Zoller gaf okkur brauð sem hún
bakar í hrauninu. Þar með lauk vclheppnaðri
páskagöngu þetta árið,“ sagði Kristján að lokum.
STALDRAÐ við í Páskahelli.
HRUND ÓSK var meðal listamanna sem tróðu upp á djasshátíðinni í
fyrra.
Fjölmenni á Heimakletti
á föstudaginn langa
-Raggi í Steini, Már og Svavar fóru samtals
533 sinnum á toppinn á síðasta ári
Heimaklettur var vinsæll hjá
göngufóiki á föstudaginn langa en
þá skráðu sig 37 í gestabók sem er
að finna á toppnum.
„Það er víða hægt að hreyfa sig
þó ekki sé verið á skíðum,“ sagði
Svavar Steingrímsson, sem er einn
þeirra sem oft fer á Heimaklett.
„Eg fór upp á föstudaginn langa og
kom mér á óvart hvað margir höfðu
skráð sig í gestabókina. Þetta voru
íslendingar og Pólverjar sem höfðu
lagt á sig að klífa klettinn," sagði
Svavar.
Gestabók var komið fyrir á
Heimakletti á goslokaafmælinu
2003 og var hún orðin full upp úr
áramótum. „Eg skipti um bók þann
11. mars. Ekki veit ég hvað margir
höfðu skráð sig en bókin er um 140
síður. Þar er m.a. að finna Þjóð-
verja, Dani, Japani, Færeyinga og
Bandaríkjamenn og hafa sumir
skráð skemmtilegar athugasemdir í
bókina."
Svavar er í hópi manna sem ganga
reglulega á Heimaklett og tók hann
sig til og taldi saman hverjir hefðu
verið duglegastir á síðasta ári.
„Raggi í Steini (Ragnar Guðnason)
fór 246 sinnum á Heimaklett á
árinu 2007, Már Jónsson, kennari,
var næstur með 156 skipti og ég fór
131 sinni. Aðrir voru langt undir
hundraðinu,“ sagði Svavar að
endingu.
Heimaklettur sem er á Heimaey er
hæsta fjall Vestmannaeyja, hann er
283 m á hæð yfir sjávarmáli.
Kletturinn er móbergsstapi sem
varð til við gos undir jökli seint á
síðustu ísöld. Hann stendur sæ-
brattur upp úr sjónum, en efst eru
grasi vaxnar brekkur á bólstra-
bergstoppi þar sem fé er haft á beit.
Heimaslod.is
Toppmenn á toppnum. Már, Svavar og Raggi í Steini tylla sér á toppi Heimakletts.