Fréttir - Eyjafréttir - 29.05.2008, Blaðsíða 27
Fréttir / Fimmtudagur 29. maí 2008
27
Góðar gjafir í Björgunarfélagsafmæli
Björgunarfélag Vestmannaeyja
minntist þess á laugardaginn að á
þessu ári eru 90 ár liðin frá stofn-
un félagsins. Dagurinn hófst með
því að fánar voru dregnir að hún
við aðalstöðvar félagsins og í
hönd fór undirbúningur undir
afmælisveisluna sem fram fór í
Höllinni.
„Það komu margir að verki við
að undirbúa afmælisveisluna sem
var í Höllinni um kvöldið. Við
vildum setja okkar svip á húsið
þannig að talsverður tími fór í að
skreyta en það gekk vel,“ sagði
Adolf Þórsson, formaður
félagsins.
Nokkur hópur gesta kom ofan
af landi og voru þar á meðal
eldri félagar. „Þeir mættu til að
taka þátt í afmælisgleðinni með
okkur og var okkur sérstök
ánægja að fá þá í heimsókn.
Aðrir gestir voru Sigurgeir
Guðmundsson, formaður Lands-
bjargar og Kristinn Olafsson,
framkvæmdastjóri félagsins sem
mættu ásamt ritara og með-
stjórnanda. Nokkrir félagar úr
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
létu sig ekki muna um að sigla á
opnum báti frá Reykjavík til að
taka þátt í þessu með okkur.
Einnig voru þarna nokkrir félag-
ar úr Björgunarsveit Suður-
nesja.“
AUs voru um 120 manns í veisl-
unni um kvöldið þar sem Einar
Björn, Einsi kaldi, sá um veiting-
arnar. „Nokkrir komu færandi
hendi og hæst ber gjöf frá
konunum í Eykyndli sem færðu
okkur eina milljón króna til að
kaupa tuðrur. Skeljungur færði
okkur líka góða gjöf og það sama
gerðu björgunarsveitir Hafnar-
fjarðar og Suðurnesja þar sem
Grindvíkingar lögðu í púkkið.“
A eftir voru söngatriði ásamt
fleiri skemmtiatriðum og öllu
lauk þessu með dansiballi þar
sem Tríkot lék fyrir dansi. „Þetta
var gleði frá upphafí til enda og
gaman hvað margir tóku þátt í
þessu með okkur,“ sagði Adolf að
lokum.
NOKKRIR komu færandi hendi og hér er Guðfínna Sveinsdóttir, formaður Eykyndils og Eiríkur Þorsteinsson, Skeljungi að afhenda Adolf gjafír
til félagsins.
INGVAR stóð sig frábærlega sem veislustjóri.
FÁNABORG á afmælisdegi.
■*' J;V'y 'i e^æænæ 1 L V r ' ÍKÆjjfMÚ
X - éak
ALLS Voru um 120 manns í veislunni um kvöldið þar sem Einar Björn, Einsi kaldi, sá um veitingarnar.
SÖLUBÖftN
SjómannadogsblQð Vestmonnoeyjo verður ofhent
á Bósum laugardaginn 31. moí kl. 10.00.
Góð söluloun í boði.
Sjómonnodogsróö
Sófasett og
hornskápur
til sölu.
Sófasettið selst á
60.000 kr. og
homskápurinn
selst á 20.000 kr.
Upplýsingar í
síma 894-3076.
£7 004PM
lfélgæslumaður
óskast á Eydísi
Upplagt starf fyrir t.a.m. þá sem komnir
eru á eftirlaun. Uppl. í s. 863-2640.