Fréttir - Eyjafréttir - 29.05.2008, Blaðsíða 32
ÉTTI 3
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293
piÚB is
■Bnra suitibrfec
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
FRÉTTABIKARHAFAR Heiða Ingólfsdóttir og Kolbeinn Aron Arnarson hlutu Fréttabikarana að þessu
sinni. Hér eru þau með Ellert Scheving, blaðamanni Frétta, sem afhenti þeim verðlaunagripina á lokahófi
handboltans. Nánar á bls. 30.
Fjölbreytt dagskrá á Sjómannadaginn:
Nýir róðrabátar frá Færeyjum
Sjómannadagurinn veður haldinn
hátíðlegur um helgina og sjó-
mannadagsráð leggur nótt við dag í
undirbúningi. Hátíðahöldin verða
með nokkuð hefðbundnu sniði,
knattspyrnumót og söngkvöld í
Akóges á föstudag, kappróður,
koddaslagur og reiptog í og við
Friðarhöfn á laugardag og matur,
skemmtun og ball í Höllinni um
kvöldið.
A sjómanndaginn sjálfan verður
sjómannamessa í Landakirkju og
síðan hefst hátíðardagskrá á
Stakkagerðistúni. Um kvöldið
verða tónleikar í Höllinni.
Stefán Birgisson, formaður sjó-
mannadagsráðs, sagði það helst
bera til tíðinda að nú væru komnir
nýir kappróðrabátar frá Færeyjum.
„Bátamir voru sprautaðir hjá
Hreinsa og svo var verið að smíða
inn í þá og bera á í nótt,“ sagði
Þjóðhátíðar-
dótið varð
eldi að bráð
Slökkviliðið var kallað út vegna
elds á geymslusvæði Ahalda-
hússins klukkan 5.30 á miðviku-
dagsmorgun.
Virðist sem eldur hafi verið
borinn að mannvirkjum sem
notuð eru á þjóðhátíð og geymd
eru á svæðinu. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu gekk greið-
lega að slökkva eldinn en hún vill
ekki fullyrða neitt um eldsupp-
tök.
Friðbjörn Valtýsson, fram-
kvæmdastjóri IBV sagði tjónið
mikið og mannvirkin væru
ótryggð. „Litla sviðið er ónýtt og
svo er það þessi fræga mylla, við
vonumst til að geta lagfært hana.
Það sem er alvarlegast er stóra
sviðið, starfsmannaaðstaða, eld-
hús og snyrting er ónýtt,“ sagði
Friðbjörn sem er sannfærður um
að kveikt hafi verið í.
Hann segir þetta hellings tjón,
óþægindi og leiðindi. „Við von-
umst til að fólk styðji okkur ■
þessu,“ sagði Friðbjörn.
Stefán á miðvikudagsmorgun og
hafði í nógu að snúast. „Við erum
búnir að fá tvo nýja báta og einn
vanan, þ.e. eldri bát og fáum einn
fyrir næsta sjómannadag. Það
kemur maður til okkar á iimmtudag
og kennir okkur réttu handtökin við
færeyskt áralag.
A laugardag verður hefðbundin
dagskrá inni í Friðarhöfn. Þar
verður m.a. stórsýning Mumma
Fúsa á sjóbrettum og bmx hjólum.
Jack London verður með tónleika
og hann verður líka á Stakkó á
sunnudeginum. Við fengum nýjan
mann til að kynna dagskrána þar
sem Valmundur Valmundsson er í
barneignafríi og sr. Kristján Björns-
son „alt muligt mand“ tekur að sér
að vera kynnir. Við höfum verið
með skákmót sjómanna og land-
krabba inni í Básum en nú verður
breyting á því, við verðum með
Engin ákvörðun var tekin á fundi
ríkisstjórnarinnar á þriðjudag varð-
andi tilboð Vestmannaeyjabæjar og
Vinnslustöðvarinnar í Bakkafjöru-
ferju. Kristján L. Möller, samgöngu-
ráðherra, lagði fram tillögur sínar á
fundinum en afgreiðslu málsins var
frestað fram á föstudag. Þá er liðin
vika frá því að taka átti málið fyrir.
Bæjarráð harmar seinagang í
málinu og telur að ef ríkisstjórnin
dragi ákvörðun öllu lengur geti
málið frestast um a.m.k. eitt ár með
tilheyrandi skaða fyrir Vestmanna-
eyjar, íbúa og fyrirtæki.
Arni Johnsen, alþingismaður,
sagðist meta stöðuna þannig að það
liggi fyrir að skip sigli milli Land-
eyjahafnar og Vesmtannaeyja. „Ég
þykist viss um að ríkið ætli að fara í
þetta og láti hanna og smíða nýtt
skip. Samgönguráðherra er búinn
að fá aðila til þess að taka út kostn-
aðaráætlun Siglingastofnunar sem
hefur verið óljós að margra mati,
ekki síst tilboðsaðila frá Vinnslustöð
og Vestmannaeyjabæ. Þeir hafa ekki
mótið í Eimskipsgámnum inni við
Friðarhöfn. Boðið verður upp á
ferðir með sæþotum fyrir yngri
kynslóðina og margt skemmtilegt
fleira verður í boði.
Um kvöldið verður mikið fjör í
Höllinni, matur, skemmtun og ball.
Veislustjóri verður Arni Johnsen
og ýmislegt til skemmtunar, s.s.
K.K., Santana, Breathe, Jack
London Obbósí og fl. Þátttaka er
góð og ég hvet alla bæjarbúa til að
koma í mat, skemmtun og á ball.
Við hvetjum fólk Ifka til að mæta í
sjómannamessu á sunnudag og vera
við minningarathöfn um hrapaða og
drukknaða. Síðan verður hátíðar-
dagskrá á Stakkó og Ingi Sig-
urðsson flytur hátíðarræðu," sagði
Stefán en lesa má nánar um dag-
skrá sjómannadagsins annars staðar
í blaðinu.
fengið nein svör við því hverju
Siglingastofnun telur áfátt í þeirra
tilboði sem Siglingastofnun telur
allt of hátt. Þetta virðist vera nokkuð
í lausu lofti ennþá en það er að
vænta bráðabirgðaniðurstöðu á
þessari úttekt á föstudag.
Það segir sig sjálft að hlutirnir geta
breyst allt eftir því hver niðurstaðan
verður þ.e. hvort þeir taka tilboðinu
eða bjóða sjálfir út. Skipið verður
hannað innan stærðar útboðsins,
ekki mjórra en I5 metrar og ekki
styttra en 60 metrar, og ekki talið að
tafir verði á tímasetningum.
Tilboð vegna hafnargarða við höfn-
ina og lagningu vegar upp á þjóðveg
verða opnuð 5. júní nk. og a.m.k.
sjö verktakar sóttu gögn vegna
þessa. A hinn bóginn vil ég segja að
við sem höfum barist fyrir göngum
sem fyrsta kosti höfum haft 100%
rétt fyirr okkur varðandi kostn-
aðartölur vegna jarðganga og hafn-
arinnar. Það erum við sem höfum
haft borð fyrir báru en ekki hinir. En
allt er þetta áframhaldandi barátta."
Aætlun Siglinga-
stofnunar í skoðun
VÖRUVAL
mai ■ q. [uni
Bimla eldhúsáhöld
verð nú kr 198,“
verð áður kr 499,-
Kjúklingabringur 900g
verð nú kr 1198,-
verð áður kr 1968,-
SS Saltkjöt blandað
verð nú kr 328,"
verð áður kr 395,-
y
VÖRUKYNNING
FIMMTU- OG FÖSTUDAG KL. 16 TIL 19
\